Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 7
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. 7 Fréttir Sendibílstjóri sýknaður í Hæstarétti: Sendibílar geta skotist í fólks- flutninga „Það virðist allt riðlast við þennan dóm, ég skil þetta ekki,“ sagði Ingólfur Ingólfsson, formaður Frama, stéttarfé- lags leigubiíreiðarstjóra, um þá niðurstöáu Hæstaréttar að sýkna sendibílstjóra af ákæru um ólöglega fólksflutninga. „Ég vona að tortryggn- in í okkar garð hverfi með _þessu,“ sagði hins vegar Sigurður Ármann Sigurjónsson, stöðvarstjóri Steindórs- sendibíla hf. Hæstiréttur staðfesti héraðsdóm í þessu máli með þrem af fimm atkvæð- um. Tveir dómarar voru gagnstæðrar skoðunar og vildu sekta sendibílstjó- rann um 10.000 krónur fyrir lögbrot. Sendibílstjórinn var ákærður fyrir að hafa notað bíl sinn til fólksflutninga „allt frá skráningardegi bifreiðarinn- ar“ í ársbyrjun 1985. í ákærunni voru hins vegar einungis tilgreind tvö slík tilvik sem sendibíl- stjórinn staðfesti. Hann var hins vegar ekkert spurður um þann þátt ákæ- runnar sem laut að því að hann hefði stundað leiguakstur með menn og engin gögn voru færð fram því til sönnunar. Og það er mergurinn máls- ins. Dómur meirihluta Hæstaréttar rís á því að skýra beri ákveðna málsgrein laga eftir orðum sínum, en þar er lagt bann við því að stunda leiguakstur á fólksbifreiðum nema að uppfylltum skilyrðum er þar greinir. Dómurinn fjallaði aðeins um tvö tilgreind tilvik sem Hæstiréttur metur ekki jafngild því að viðkomandi bílstjóri hafi stund- að leiguakstur. Þessi dómur þýðir að sendibílstjór- um er ekki meinað að skjótast í fólksflutninga og hann kann jafnvel að þýða að hver sem er geti átölulaust gripið í leiguakstur með fólk. -HERB Aukinn farþegaakstur sendibfla? Mun ódýrara fiar í sendibflunum - meiraprófsbílstjórar geta nú skotist í leiguakstur „Við höfum aldrei flutt fólk ein- göngu nema í óverulegum mæli og ég á varla von á að það aukist mikið þótt Hæstiréttur hafi dæmt þannig að okkur sé heimilt að fara túr og túr. En það er skiljanleg viðleitni hjá fólki að sækjast eftir því að greiða-bílamir okkar flytji það, því styttri túrar með þeim eru 18-19% ódýrari en með leigu- bílurn," segir Sigurður Ármann Sigurjónsson, stöðvarstjóri Steindórs- sendibíla hf. Sú bílastöð hefur nú 74 greiða-bíla, auk 11 stærri sendibíla. Sams konar smásendibílar eru á fleiri stöðvum og kallaðir ýmsum nöfnum. Það virðist ekkert því til fyrirstöðu, eftir dóm Hæstaréttar, að þeir skjótist í leigu- akstur svo framarlega að þeir teljist ekki beinlinis stunda hann. En þau mörk em vissulega óljós og það er óvíst að þessu deilumáli milli leigubíl- stjóra og sendibílstjóra sé hér með lokið. Klögumálin hafa gengið á milli um að hvorir gengju í störf hinna. Leigubílstjórar hafa sakað sendibíl- stjóra um að ganga í leiguakstur en til hans þurfi sérstakt ráðherraleyfi auk þess sem bifreiðamar þurfi að hljóta samþykki heilbrigðiseftirlits. Sendibílstjórar hafa sakað leigubíl- stjóra á móti um að stunda akstur með pakka og vaming. En málið er ennþá flóknara eftir héraðsdóm og staðfestingu Hæstarétt- ar um að tiltekinn bílstjóri hafi ekki brotið lög með því að fara eina og eina ferð með farþega gegn gjaldi, þótt Kirkjulistartiátíð: Kór, kammersveit og Margrét Bóasdóttir Bach-tónleikar verða í Hallgríms- kirkju í dag, laugardag, kl. 17.00. Margrét Bóasdóttir sópransöngkona flytur mótettur ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju og kammersveit. Til- efni tónleikanna er Kirkjulistarhátíð í tilefhi vígsluárs Hallgrímskirkju sem staðið hefur í um viku og lýkur með tónleikunum í dag. Á efnisskránni em þrjú verk eftir Jóhannes Sebastian Bach, mótett- umar: „Singet dem Herm ein neues Lied“ BWV 225 og „Der Geist hilft unserer Schwachheit auf‘ BWV 226 og kantatan „Falche Welt“ BWV 52. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. hann hefði ekki réttindi til leiguakst- urs. Með þessum dómum virðist ekkert því til fyrirstöðu að hver sem er geti gripið í leiguakstur, að sjálfsögðu gegn gjaldi, á meðan hann telst ekki stunda þessa atvinnu. Og mörkin em óþekkt. Othar Öm Petersen hæstaréttarlög- maður, sem var verjandi sendibílstjór- ans í Hæstarétti, er sammála þessari túlkun. Eina hindmnin. sem sjáanleg er í fljótu bragði, er sú að viðkomandi þarf að hafa meirapróf bifreiðarstjóra. -HERB ERU ÞITT 9 EF SVO ER, VERÐUR ÞÚ AÐ GERA EITTHVAÐ í MÁLINU. HROTUSTOPPARINN er einfalt og öruggt tæki sem stoppar hrotur og tryggir væran svefn, sem er öllum lífsnauösynlegur. Hrotur eru ekki bara hvimleiðar, þær geta verið lífshættulegar. HROTUSTOPPARINN er hljóðnæmt lítið rafeindatæki, sem fest er á fót eða handlegg þegar menn fara að sofa. Hann sendir frá sér boð er hann nemur hrotur. Boðin valda örlítilli ertingu sem I4ður hjá strax, en veldur því að menn hætta (stoppa) að hrjóta og ná að festa svefn þannig að full hvíld fæst jafnt fyrir sál og líkama. Verð kr. 3.950,- SÉJAPIS BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133 SENDUM I POSTKROFU VERÐLÆKKUN Bjóðum á örfáum fjölhnífavögnum sérstakt afsláttar- verð vegna hagstæðra samninga við, verksmiðju, MENGELE SUPER QUADRO LW 290 25 m3 33 hnífar..........490.000,- LW 310 30 m3 33 hnífar..........590.000,- LW 370 34 m3 33 hnífar..........610.000,- LW 390 34 m3 33 hnífar..........660.000,- FRANSGAARD fjölfætlur og stjörnumúgavélar FT-510 4ra stjörnu 6 arma lyftutenqd ...........................98.000,- SR-320 7 arma múgavél.......69.500,- ATH. Aðeins er um takmarkað magn að ræða. BOÐI HF KAPLAHRAUNI 18 220 HAFNARFIRÐI: S-91.651800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.