Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 15
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. 15 Brynja Garðarsdóttir, fulltrúi Samtaka óháðra Góð samvinna á heimilinu Brynja Garðarsdóttir er fulltrúi Samtaka óháðra. Hún er 32 ára kennari við Nesskóla. Brynja er gift Viðari Sveinssyni kennara. Þau eiga tvö börn, Tinnu (átta ára) og Svein Tjörva (tveggja ára). Brynja lék lengi handbolta með Þrótti og til gamans má geta þess að þrettán ára gömul lék hún með þeim Elmu og Sigrúnu leik gegn Völsungi frá Húsavík. ílvað kom þér út í stjórnmál? „Ég hef alltaf haft áhuga á stjórn- málum og fundist að ungt fólk ætti að starfa í bæjarstjórnum. Þegar ég var hvött til að fara í framboð fyrir Samtök óháðra fannst mér ég fmna leið til að starfa að bæjarmálum, óháð pólitískum flokkadrætti." -Hvemig gengur að láta sólar- hringinn endast? „Þetta tekst náttúrlega ekki nema með góðri samvinnu á heimilinu. Auk þess á ég góða fjölskyldu og vini sem hjálpa til og hlaupa undir bagga ef með þarf. Það hefur einnig sýnt sig að það fólk, sem með mér stóð að framboðinu, hefur verið ein- staklega duglegt og ósérhlífið og létt mína vinnu mjög mikið og það hefur styrkt mig í trúnni á að þetta fram- boð hafi verið og sé nauðsynlegt." —Áttu þér einhver áhugamál? „Ég er óttaleg dellukerling og fjöl- skyldan er með skíða- og golfdellu. Þannig fer mestur frítíminn í ,úti- vist.“ -Hvernig líst þér á stöðuna í bæj- armálum og væntanlega samvinnu við kynsysturnar? „Ég er mjög ánægð með að konur skuli loksins vera búnar að ná þeim áfanga að vera í meirihluta kjörinna fulltrúa i bæjarstjórn. Þetta endur- speglar í raun þá þjóðfélagsbreyt- ingu sem nú er að gerast, það er að konur séu tilbúnar til að axla ábyrgð og að takast á við verkefnin til jafns við karlmenn. Þessi skipun bæjarfulltrúa ætti að vera kynsystrum okkar hvatning til að bjóða sig fram til starfa. Ég vona bara að við sem konur stöndum sam- an í málum sem okkur varða sér- staklega.“ Brynja Garðarsdóttir með soninn Svein Tjörva. DV-mynd KAE Stella Steinþórsdóttir við vinnu sina í frystihúsinu. Stella Steinþórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisílokksins: Sólarhringurinn þyrfti að vera 36 klukkutímar Stella Steinþórsdóttir er fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins. Hún er 48 ára gömul verkakona með sérhæfða fiskvinnslumennt- un. Stella er gift Þórði Víglundssyni stýri- manni. Þau eiga þrjú börn, Ragnheiði (24 ára), Steinþór (21 árs) og Viglund (19 ára). Þá eiga þau eitt barnabarn. Stella hefur starfað mikið að verkalýðs- málum. Hún er trúnaðarmaður verkafólks í Verkalýðsfélagi Norðfirðinga og hefur starfað mikið að jafnréttismálum. -Hvers vegna hófstu afskipti af stjórn- málum? „Ég var beðin um að taka annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar og mér fannst ég ekki geta skorast undan. Það væri líka til litils allt tal um jafnrétti ef konur neituðu að taka þátt í stjórnmálum. Hlutur kvenna í sveitar- stjórnum hér á landi hefur verið áberandi minni en í nágrannalöndunum og mig grunar að það sé að nokkru leyti konunum sjálfum að kenna.“ -Endist sólarhringurinn hjá þér fyrir vinnu, stjórnmálaafskipti og heimilisstörf? „Sólarhringurinn hjá mér þyrfti helst að vera 36 tímar ef ég ætti að geta sinnt öllum verkum sem skyldi. Ég er í fullri vinnu í frystihúsinu og þar getur vinnudagurinn orðið ansi langur. Ég er sjómannskona og því sé ég að mestu um heimilishaldið. Svo eru nefndarstörfin og setan í bæjarstjórn- inni. Og ekki má gleyma ömmubarninu sem tekur lika drjúgan skerf af tíma rnínum." -Helstu áhugamál? „Ég hef nánast engan tíma til að sinna öðrum áhugamálum en stjórnmálunum. Mig skortir til dæmis tíma til að lesa þær bækur sem ég hef áhuga á og ég á hest sem ég hef ekki haft tíma til að sinna neitt í vetur og hef ekki komist á bak í lengri tíma." -Hvað um stöðuna sem upp er komin í bæjarstjórninni og hvað um samvinnu ykk- ar kvennanna á þeim vettvangi? „Það er vissulega athyglisvert að konur skuli vera komnar í meirihluta í bæjar- stjórninni og sýnir það þá miklu sókn sem konur hafa hafið á sviði stjórnmálanna á síðustu árum. Ég hef tekið þátt í starfi að jafnréttismál- um og verkalýðsmálum með konum allra flokka og ekki orðið vör við annað en að konur geti komið sér saman um málin. Ég kvíði því engu um samstarf okkar í bæjar- stjórn, það væri helst að körlunum þættu fundirnir bragðdaufari en áður.“ Elma Guðmundsdóttir, fulltrúi Alþýðubandalags: Eg held ég sé bara þokkalegasta amma Eima Guðmundsdóttir er fulltrúi Al- þýðubandalagsins. Hún er 44 ára húsmóðir. gift Jóni E. Jóhannssyni stýrimanni. Þau eiga tvö börn. Petru (25 ára) og Jóhann (12 ára). Auk þess eiga þau þrjú barnabörn. Elma hefur starfað mikið að íþrótta- og fé- lagsmálum. Elma spilaði handbolta með Þrótti á árum áður og hefur verið formaður Þróttar og ÚÍA. Hún er nú fyrsti varafor- seti bæjarstjórnar. -Hvers vegna hófstu afskipti af stjórn- málum? „Ætli kveikjan hafi ekki verið störf mín að íþrótta- og æskulýðsmálum svo og félags- störfum almennt. Það er sagt að vinna við slík málefni séu ópólitísk en ég held nú síð- ur. Það er nefnilega þannig að ef fólk er virkt í félagsstörfum þá er fyrr eða síðar leitað til þess um þátttöku í stjórnmála- flokkunum. Sjálf var ég á tímabili ritari. formaður eða varaformaður í sex félögum. var það sem er kallað félagsmálafrík." -Hvernig gengur að samræma stjórn- málavafstrið og heimilisstörfin? Er sólar- hringurinn nógu langur? ..Mér finnst ég hafa nógan tíma núna þó kunningjarnir segi þetta fundastúss á mér endalaust. Þetta var erfiðara þegar ég fór fyrst inn í bæjarstjórn 1982. Þá var ég jafn- framt framkvæmdastjóri félagsheimilisins sem einnig var hótel. Þá hefðu stundirnar í sólarhringnum mátt vera miklu fleiri. Núna er ég BARA heimavinnandi svo ég hef yfirleitt nógan tíma. Ég held ég sé bara þokkalegasta amma og eyði drjúgum tíma með barnabörnunum. Ég hef mikla ánægju af því og það er líka ósköp þægilegt að geta skilað þessum krilum þegar maður hefur fengið nóg!" -Hver eru helstu áhugamálin? Félagsmálin eru mín helstu áhugamál. einkum þó störf að ungmenna- og íþrótta- málum. Þar fær maður mesta umbun fyrir störf sín því þetta er vettvangur eins mesta uppeldisstarfs sem fram fer á landinu. En aðaltómstundagamanið er bridge." -En hvað segirðu um þessa stöðu sem upp er komin í þæjarstjórn Neskaupstaðar og áttu von á samstarfi á milli fimmmenn- inganna sem kvenna? ..Það er óneitanlega rnjög ánægjulegt að það skyldi verða hér í Neskaupstað að kon- ur verða í meirihluta kjörinna bæjarstjórn- arfulltrúa í fyrsta sinn í íslandssögunni. Ég hef þó ekki trú á því að þetta valdi miklum breytingum í pólitískum málum hér í bæjar- stjórninni. Hins vegar er ég viss um að okkur er stuðningur hver af annarri í þessu margumtalaða karlasamfélagi." Elma Guðmundsdóttir fyrir utan heimili sitt ásamt tveimur barnabörnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.