Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. 17 i vikunni var ekki ýkja mikið að ger- ast við höfnina, þó þarf alltaf eitt- hvað að dytta að bátunum. DV-myndir Kristján Ari Sj ómannadagurinn: Mikil hátíðahöld />g sjómenn heiðraðir Hátíðisdagur sjómanna er á morgun en samkvæmt lögum á að halda upp á hann fyrsta sunnudag í júní nema þegar þann dag ber upp á hvíta- sunnu. Sú varð raurin að þessu sinni og seinkar því sjómannadeginum um eina viku. Að venju verður margt um að vera á morgun, má þar nefna kappróður sem er árlegur viðburður þennan dag. Öll hátíðahöld í Reykja- vík fara fram á gömlu bryggjunni og verður væntanlega mikið líf þar og fjör. Þá fá börn siglingu með haf- rannsóknarskipinu Árna Friðriks- syni en áður hafa slíkar ferðir verið farnar með varðskipum. Hátíðahöld sjómannadagsins verða um allt land og má búast við skemmtilegum uppá- komum á bryggjum landsins. Heldur dauft var yfir sjómönnum er DV fór á stúfana nú í vikunni, Bæði á bryggjunni í Reykjavík og í Hafnarfirði var fátt um menn og engan fisk að sjá. „Þetta byrjar ekki fyrr en fimmtánda," kallaði maður einn til okkar. Nokkrir pollar voru með stangir á bryggjubrúninni og sannarlega truflaði þá enginn. Það vakti reyndar athygli blaðamanns hvernig þeir ræddu sín á milli. „Ég fékk einn marra í viðbót,“ sagði einn guttinn. Hann átti reyndar við mar- hnút. Annar strákur dundaði sér við að skera innyfli úr fiskinum og þegar það gekk ekki eins og skyldi bölvaði stráksi með þeim orðum að þetta væri nú meiri karlremban. Annars fór veiðiskapur þeirra þannig fram að þegar þeir höfðu fengið einhvern smáfiskinn var hann umsvifalaust skorinn í litla bita og notaður sem beita fyrir næsta fisk. Sérkennilegur leikur þetta. Margur sjómaðurinn hefur sjálfsagt byrjað starfsævina á þennan hátt og ekkert út á það að setja. Á ÍSLANDL í 20 ÁR Og svo gerast þeir vart fallegri og vandaðri PFAFF Borgartúni 20 Sími 2-67-88 Við lofum því sem skiptir mestu máli: GÓÐRI ÞJÓNUSTU Strákpollarnir komu hjólandi úr Garðabænum til Hafnarfjarðar til að kasta stöng á bryggjunni. HEFUR ÞU ekki komist í ódýrt sumarfrí? Hér er tækifærið. Beint leiguflug til Kölnar á aðeins kr. 9.000.- Tilvalið að bregða sér til fallegustu héraða Þýskalands á besta tíma sumarsins á lægsta verðinu. Brottför..............................19. júlí. Heimkoma.............................9.ágúst. Dvalartimi............................3 vikur. Flugfargjald Kr. 9.000,-............................fullorðinn. Kr. 6.000,-.........................börn 2-11 ára. Kr. 1.000,-..........................börn0-1árs. Flug og bfII Kr. 9.993,-..........á mann miðað við 5 í bíl í viku. Kr. 11.986,-......á mann miðað við 5 í bíl í 2 vikur. Kr. 13.979,-.......á mann miðað við 5 í bíl í 3 vikur. Þrátt fyrir leik pollanna er sjó- mennskan ekkert grín. Þetta er að mörgu leyti hættuleg atvinnugrein Og hafa margir sjómenn komist í hann krappan við vinnu sína. Þetta er þó okkar aðalatvinnuvegur og sem betur fer eru alltaf margir hraustir menn sem vilja leggja ó sig erfiðið fyrir land sitt og þjóð. Verða að öllum líkindum nokkrir þeirra heiðraðir af forseta á morgun fyrir vel unnin störf. Við óskum sjómönnunum til hamingju með daginn og vonum að sem flestir geti verið heima og notið hans. -ELA Auk þess bjóðum við úrval sumarhúsa á nágrenni Kölnar, í Eifel héraði við Mósel og í Hochsauerland. Allt fyrsta flokks or- lofssvæði. Einstakt tilboð sem ekki verður endurtekjð. FERÐASKRIFSTOFAN TJARNARGÖTU 1 SIMI 28633 ALLRAVAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.