Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
Hélt ég fyndi hann á barnum
u
Helgarblaðið lítur á mannlífið í nýju flugstöðinni þar sem aðalumræðan er flugstöðin sjálf
Barinn er vinsæll staður hjá ferðalöngum á leið til útlanda og reglan er að fá sér bjór fyrir brottför.
góðan. Við spurðum nokkra unga
menn, sem þarna sátu, hvort þeim
þætti ekkert að því að fá sér áfengt
Texti:
Elín Albertsdóttir
Myndir:
Jóhann A. Kristjánsson
bráðabirgðahúsnæði sem er brot
miðað við það sem áður var. Það
yfírfyllist því oft af fólki þegar stórar
vélar koma, eða tvær koma í einu.
Oft hefur það komið fyrir að fríhöfn-
in er tæmd en þá hafa sex til sjö
hundruð manns farið í gegn. Starfs-
maður í fríhöfn sagði að talsverður
misskilningur hefði komið upp hjá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er
glæsileg bygging, á því er enginn
vafi. Margir eru að fara þar í gegn
í fyrsta skipti þessa dagana og hafa
beðið með eftirvæntingu eftir að sjá
gripinn. Ekki hefur svo lítið verið
um hana rætt. Helgarblaðið fékk
leyfi til að heimsækja flugstöðina
einn morgun fyrir stuttu og virða
fyrir sér mannlífið þar á mesta anna-
tímanum. Einnig tókum við tali
nokkra ferðalanga og spurðum þá
hvernig þeim litist á sig í nýju flug-
stöðinni.
Ys og þys
Það var nokkuð margt um mann-
inn klukkan sjö að morgni í nýju
flugstöðinni. Vélar voru að fara til
Kaupmannahafnar, London, Stokk-
hólms og Osló og ekki síst var vél
að koma frá New York sem halda
átti áfram til Lúxemborgar. Það var
því ys og þys og greinilegt að margir
höfðu vaknað um miðja nótt til að
vera vel vaknaðir á vellinum. Menn
skimuðu í allar áttir, kíktu á loftið
og horfðu lengi á glerlistaverk Leifs
BreiðQörð. „Þetta er fallegt," sagði
kona ein sem kom upp rúllustigann.
Maður einn sagði hins vegar: ,,Eru
þetta nú öll herlegheitin." Síðan
bætti hann við: „Það er nú bara
spýtnabrak þegar maður lítur hér
niður.“ Aðalumræðuefni fólksins var
stöðin sjálf. Pétur Guðmundsson
flugvallarstjóri, sem gaf DV-mönnum
leyfi fyrir heimsókninni, vakti at-
hygli blaðamanns á því að í nýju
flugstöðinni tækju menn ekki mynd-
ir af kærustunni heldur stöðinni
sjálfri. Þetta var rétt og satt. Menn
stóðu um allt og mynduðu flugvélina
Ögn og listaverk Leifs.
Bjórinn er regla
Islendingar eiga sér ákaflega sér-
kennilegan sið er þeir fara til út-
landa. Fyrst er
verslað og síðan er
snaps á barnum. Þetta er regla. En
allar reglur geta verið brotnar. Við
sáum konu eina skima eftir manni
sínum og segja við sjálfan sig: „Ég
hélt að ég gæti gengið að honum
vísum á barnum.“ I það skiptið var
flugstöðin sjálf meira spennandi en
bjórinn góði. Það er samt sem áður
alveg merkilegt að einn eða fleiri
bjórar fyrir brottför skuli vera jafn-
almenn regla og raun ber vitni. Öll
borð voru sneisafull af bjórflöskum
og klukkan rétt sjö að morgni. Flest-
ir þekkja tilfinninguna að vera á leið
í frí og slappa fyrst af í flugstöðinni
og fá sér einn bjór. Kannski væri
hann ekki svona spennandi ef við
gætum fengið hann daglega. Það er
einmitt bannið sem gerir hann svo
í nýju flugstöðinni rekst maður á hin
ýmsu þekktu andlit. Albert Guð-
mundsson var einn þeirra sem voru
á leið til útlanda þennan morgun.
öl svona snemma morguns. „Við
værum ekki að fara útlanda ef við
fengjum okkur ekki bjór, það bara
tilheyrir," sögðu þeir.
Ákaflega heimilisleg
Fólk, sem við ræddum við, var al-
mennt mjög ánægt með stöðina og
var helsta undrunin sú að fólk hafði
haldið hana stærri en hún er. „Þetta
er ákaflega heimilislegt," sagði ein
konan. Fólk talaði einnig um að það
mætti vera betri biónusta í sambandi
við hreinsun áf borðum og fleiri
ruslafötur. „Mér finnst inngangur
hér upp misheppnaður," heyrðist frá
einni konu og önnur talaði um að
fríhöfnin væri allt of lítil. Þannig
voru umræðurnar meðal fólks, ekki
væntanlegt ferðalag -eða flug-
hræðsla, heldur Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
Þá var mjög skemmtilegt að fylgj-
ast með útlendingum sem komu með
vélinni frá New York. Þessir far-
þegar fengu hálftíma til að líta í
kringum sig í flugstöðinni og versla.
Það var alveg greinilegt að fólkið
var undrandi og litu flestallir upp í
loft. Margir höfðu á orði að þetta
væri „pretty". Mesta undrunin virt-
ist vera í sambandi við litlu flugvél-
ina sem hangir í loftinu en hún vakti
óskipta athygli.
Bjórsalan vefst fyrir mörgum. Menn
kaupa bjórinn sinn í litlu bráða-
birgðafríhöfninni, taka við kassa-
kvittun og framvísa henni á næstu
hæð fyrir neðan, þar sem töskurnar
koma á færibandinu. Hér eru þekkt-
ir popparar að ná í ölið sitt, þeir
Eyjólfur Kristjánsson, Stefán Hjör-
leifsson og Jón Ólafsson, allt Bítla-
vinafélagar. Þeir voru að koma frá
New York. DV-myndir JAK
komufarþegum í sambandi við bjór-
inn. Menn taka við kassakvittun, um
að bjórinn sé greiddur, en gleyma
síðan að taka bjórinn með sér út
þegar þeir eru komnir niður, þar sem
hann er afhentur. „Blessuð vektu
athygli á bjórnum," sagði starfsmað-
urinn „Þetta hefur valdið miklum
misskilningi enda erum við farin að
kalla fríhöfnina hér litlu hryllings-
búðina." Ekki er pláss fyrir bjór í
bráðabirgðahúsnæðinu og því verð-
ur skipulagningin að vera á þennan
máta. „Það er verið að tala um að
bæta við tveimur afgreiðslukössum
því það er ekki hægt að taka við
svona mörgum farþegum í einu í
þetta litla herbergi. Sú stækkun
verður um helming og má búast við
henni í júní. Þá verða þeir settir hér
fyrir framan og fríhöfnin stækkuð
sem því nemur. Þetta er bráðabirgða-
úrlausn sem verður að vera þar til
nýja fríhöfnin verður tilbúin," sagði
starfsmaðurinn ennfremur. Fríhöfn-
in fyrir farþega á leið út er hins vegar
komin í endanlegt horf og þó fannst
sumum hún ekki nógu stór.
Nýja fríhöfnin fyrir komufarþega
verður væntanlega tilbúin í byrjun
september. Þá er auk þess ófullgerð-
ur veitingasalur niðri, þar sem beðið
er eftir farþegum. Þar verður glæsi-
leg aðstaða og ætti hún að verða
skemmtilegt afdrep á meðan beðið
er eftir ættingjum frá útlöndum.
Einnig fyrir þá sem vilja fara í
sunnudagsbíltúr og fá sér kaffi í nýju
flugstöðinni og virða fyrir sér
stemmningu flugvallarins. Sú að-
staða verður opnuð í lok júlí.
Margir hafa einnig gagnrýnt að
ekki skuli vera bílskýli eins og víð-
ast er erlendis á flugstöðvum. Þá
gætu menn geymt bíla sína innan-
húss á meðan þeii skreppa nokkra
daga til útlanda. Mjög margir skilja
bíla sína eftir og mátti greinilega sjá
það á öllum þeim bílaflota sem var
á bílastæðum utan við bygginguna.
Ætti það að vera sjálfsagt mál að
hílarnir séu á öruggum stað. Hins
vegar mun bílskýli ekki vera á áæti-
un og verðum við því að bíða eftir
því. Hins vegar er gert ráð fyrir sér-
stökum langtímastæðum. Þar geta
bílar staðið í daga eða vikur gegn
ákveðnu gjaldi og mun vaktmaður
fylgjast með þeim.
-ELA
Fríhöfnin er ekki síður vinsæl og þar gera menn reyfarakaup núna þegar
dollarinn er í lægri kantinum. Þessi unga kona var að íhuga kaup á sólgler-
augum.
Ýmislegt ógert
Ennþá er ýmislegt ógert í flugstöð-
inni. Grillstaður á eftir að koma fyrir
innan þar sem nú eru borð og stólar
í biðsalnum og verður hann opnaður
um miðjan ágúst. Þá færist barinn
og terían þar innfyrir.
Fríhöfnin fyrir komufarþega er í
Farþegar að koma eftir ganginum langa. Þessi voru að koma með vél frá
New York og sumir ætluðu áfram til Lúxemborgar.
„Vantar góðan
matsölustað“
„Mér líst vel á þetta nema mér
finnst að það vanti góðan matsölu-
stað. Að öðru leyti er ég sáttur við
flugstöðina eins óg hún er,“ sagði
Sigurgeir Ingvarsson og félagi hans,
Grétar Þór Svavarsson, var sam-
mála. Þeir voru á leið til Kaup-
mannahafnar og þaðan ætluðu þeir
til Ibiza. „Við erum í félagi pipar-
sveina sem er nýstofnað og kallast
Ungmannafélagið Óli pjakkur. Þetta
félag á að hafa að markmiði að ferð-
ast og við ætlum að kynna það fyrir
dönskum piparsveinum," sögðu þess-
ir hressu strákar.