Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 30
30
Ner ekki sérrit
heldur fjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
og býður hagstæðasta auglýsingaverð
allra íslenskra tímarita
VIKAN
nær til allra stétta og allra aldursstiga. Aug-
lýsing í Vikunni nær því til fjöldans en ekki
aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
VIKAN
selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Þess vegna geta auglýsendur treyst því að
auglýsing í Vikunni skilar sér.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 109. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðslns 1986 á
eigninni Suðurgötu 78, 1. hæð t.v„ Hafnarf., þingl. eign Jennýar Samúels-
dóttur en talin eign Guðmundar Jóhannessonar, fer fram eftir dröfu Gjald-
heimtunnar í Hafnarfirði, Bjarna Ásgeirssonar, hdl. og Ara isberg hdl. á
skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 15. júní
1987 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Vesturvör 27, hluta, þingl. eigandi Samband
eggjaframleiðenda, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 I Kópa-
vogi, þriðjud. 16. júníkl. 10.15. Uppboðsbeiðendur eru Útvegsbanki íslands,
Kristinn Sigurjónsson hrl., Ingvar Björnsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík
og Steingrímur Eiríksson hdl.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
Annað og síðara á eigninni Suðurvangi 4, 2. hæð nr. 4, Hafnarfirði, þingl.
eign Björgvins Helgasonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, mánudaginn 15. júni 1987 kl. 16.00.
________________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni lóð á Langeyrarmölum, hraðfrystihús, Hafnar-
firði, þingl. eign Langeyrar hf„ fer fram á skrifstofu embættisins þriðjudaginn
16. júní 1987 kl. 13.30.
__________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Selvogsgötu 26, jarðhæð, Hafnarfirði, þingl. eign
Ara Hafsteins Richardssonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Strandgötu
31, Hafnarfirði, þriðjudaginn 16. júní 1987 kl. 14.00.
___________________, Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 109. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Hnotubergi 19, Hafnarfirði, þingl. eign Helgu S. Friðfinnsdóttur, fer
fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Reynis Karlssonar hdl. á skrif-
stofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 15. júní 1987
kl. 15.30.
__________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 109. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Bröttukinn 6, neðri hæð, Hafnarf., þingl. eign Kötlu Árnadóttur, fer
fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands og Gjaldh. í Hafnarfirði á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 15. júní 1987 kl.
15.00.
__________________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 109. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Klausturhvammi 15, Hafnarf., þingl. eign Magnúsínu Ólafsdóttur,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á skrifstofu embættisins að
Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 15. júní 1987 kl. 14.15.
Hr, ___________________ Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Skák
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
DV
Opna Austurlandsmótið:
Útlæg skákkona
skákaði köriunum
Opna Austurlandsmótið í skák, sem
haldið var í Valaskjálf á Egilsstöðum,
varð ekki skákhátíð af sama gæða-
flokki og menn höfðu vonast eftir.
Þrátt fyrir að boðið hefði verið upp á
tólf þúsund Bandaríkjadali í fyrstu
verðlaun í efsta flokki, létu stórmeist-
aramir ekki sjá sig og keppni í
flokknum var felld niður. Aðeins var
teflt í tveim flokkum í stað sjö eins
og upphaflega var gert ráð fyrir. Bjart-
sýnustu menn áttu von á hundruðum
þátttakenda en þeir urðu mun færri,
eða 56 talsins.
Engu að síður þótti mótið takast vel
eftir atvikum og „mjór er mikils vis-
ir“, eins og einn aðstandenda orðaði
það. Sveitarfélögin á Mið-Austurlandi
kostuðu mótið, framkvæmdastjóri var
Ottó Jónsson og honum til aðstoðar
Siguijón Bjamason og Hjáhnar Jóels-
son. Guðfaðir mótsins og aðalhvata-
maður var Jóhann Þórir Jónsson,
ritstjóri tímaritsins Skákar. Og vitan-
lega lögðu margir fleiri hönd á plóg-
inn.
Þetta var sögulegt mót á margan
hátt. í fyrsta skipti var nú haldið al-
þjóðlegt opið skákmót utan höfuð-
borgarinnar og þótt ekki hafi tekist
til eins og búist hafði verið við verður
mótsins eflaust minnst með ánægju
er fram líða stundir. Staðreyndin er
sú að alþjóðleg mót af þessari tegund
þurfa sinn tíma til þess að vinna sér
fastan sess í hugum skákmanna.
Þekktustu opnu mótin nú, s.s. World
Open í Fíladelfíu, New York, Lugano,
að ógleymdu opna Reykjavíkurskák-
mótinu, fóm öll fremur rólega af stað
en nú er svo komið að þau eiga sér
sína fastagesti sem koma ár eftir ár.
Og búast má við að Opna Austurlands-
mótið bætist í hópinn von bráðar.
A.m.k. hefur verið ákveðið að hafa
framhald á þessu mótshaldi og reyna
að læra af reynslunni.
Það er staðreynd að stórmeistarar,
bæði innlendir og erlendir, sýndu mót-
inu engan áhuga og því var gripið til
þess ráðs að fella keppni í efsta flokki
niður. Mótið höfðaði einfaldlega ekki
til sterkari skákmanna vegna rangrar
stefhu mótshaldara. Atvinnumenn í
skák, sem beijast við að reyna að lifa
af listinni, hafa ekki efni á því að fara
um langan veg til íslands upp á von
og óvon. Þótt verðlaun séu há þá em
Skák
Jón L. Arnason
þau fá. Aldrei verða nema örfáir sem
fá umbun erfiðis síns. Stórmeistarar
hefðu eins getað keypt miða í happ-
drættinu sem fram að þessu hefur ekki
þótt ömggt lífsviðurværi.
Þeir sem standa að opnum mótum
og vilja manna þau sæmilega hafa
undantekningarlaust boðið sterkari
skákmönnum einhveija tryggingu og
því meira sem þeir bjóða, því fleiri stór-
meistarar sjá sér fært að mæta. Þetta
gerðu Austfirðingar ekki og því þarf
niðurstaðan ekki að koma á óvart.
Jafnvel þeim stórmeisturum, sem
spurðust fyrir um mótið og óskuðu
eftir sérkjörum, var sleppt.
Og í einhveiju dagblaðanna var veg-
ið að íslensku stórmeisturunum með
þeim orðum að það liti út fyrir að
þeir ætluðu ekki að taka þátt og út
úr greininni mátti lesa að þar væri
ástæðan fyrir lítilli þátttöku fundin.
Er greinin birtist var hins vegar löngu
orðið ljóst að ekkert yrði úr keppni í
efsta flokki og þar fyrir utan hafði
engum íslensku stórmeistaranna bor-
ist formlegt boð um að taka þátt i
mótinu. Þetta er eins og að bjóða til
veislu og gleyma að senda boðskortin.
I efri flokki mótsins, sem var ætlaður
skákmönnum með frá 2000 til 2400
Eló-stig, tóku 22 þátt en í neðri flokki
tefldu 34 skákmenn. íslendingar voru
í miklum meirihluta keppenda - út-
lendingar voru aðeins rúmur tugur.
Samt voru það útlendingamir sem
flugu burt með bróðurpart verðlauna.
Útlæga skákdrottningin Anna
Akhsharumova varð hlutskörpust í
efri flokki eftir hörkuslag og skákaði
þar með körlunum. Henni tókst að
leggja Þröst Þórhallsson í lokaum-
ferðinni eftir langa baráttu. Þröstur
átti sóknarfæri framan af tafli eftir
vænlega peðsfóm en Anna náði að
rétta sinn hlut og knýja fram sigur
eftir 80 leiki. Hún hlaut 7 v. og 6000
Bandaríkjadali að launum (um 230.000
ísl.kr.). Næstur kom Finninn Pyhálá
með 6!ó v. og síðan Sævar Bjamason
með 6 v.
Anna Akhsarumova er landflótta
Sovétmaður og er kannski betur þekkt
sem eiginkona stórmeistarans Boris
Gulko. Þau skötuhjú fengu loks brott-
fararleyfi frá Sovétríkjunum í lok maí
í fyrra eftir sjö ára baráttu við kerfið.
Þau komust í heimsfréttirnar oftar en
einu sinni með uppátækjum sínum,
svo sem hungurverkfalli, og alltaf var
þeim stungið inn öðm hverju fyrir
mótmæli af einhveiju tagi. Nú em þau
búsett í Bandaríkjunum og afla hvort
í sínu lagi til heimilisins með skákiðk-
un. Anna er alþjóðlegur meistari
kvenna, þrítug að aldri, og mér er til
efs að hún hafi í annan tíma dregið
jafnvæna fúlgu í búið og nú.
Á eftir Önnu, Pyhálá og Sævari
komu Þröstur Ámason, Hrafn Lofts-
Bridge
Bridgeblaðamenn velja
besta vamarspilið
Árlega velja bridgeblaðamenn besta
vamarspilið og em verðlaunin, sem
gefin em af C.C. Wei, höfundi Precisi-
on sagnkerfisins, kölluð Precision-
verðlaunin.
Alþjóðlegu bridgeblaðamannasam-
tökin, IBPA, bjóða nokkrum meðlima
sinna sæti í dómnefndinni og var ég
meðal þeirra sem hlotnaðist heiðurinn
í þetta sinn.
Dómnefndarstörfin em ekki marg-
brotin. Átta spil em útnefnd til verð-
launa og hver dómnefhdarmaður fær
100 stig til þess að útbýta. Ekki er
nauðsynlegt að úthluta öllum stigun-
um, það má skipta þeim á milli
keppenda eða jafhvel úthluta einu
spili öllum stigunum.
Við skulum skoða eitt spilið sem
kynnt er af heiðursfélaga og aldurs-
forseta bridgeblaðamannasamtak-
Bridge
Stefán Guðjohnsen
anna, Richard L. Frey. Þeir sem muna
eftir fyrstu árum bridgespilsins muna
ef til vill eftir bridgesveit sem kallaði
sig „the four Aces“ en Frey var ein-
mitt einn af „ásunum“.
Glæsileg varnarspilamennska
„Hugmyndarík vamarspilamennska
er oft afleiðing góðrar samvinnu vam-
arspilaranna frekar en einkaframtak
annars. Dæmi um það er spil sem G.
Rosenkranz og M. Reygadas frá Mex-
íkó vörðust í í heimsmeistarakeppni
para árið 1986 í Miami:
V/N-S
G1065 K1072 K2 A72
93 AD
74 IIG963
A10743 D862
G1076 K8752 A8 G6 K864 D3
Sagnir gengu þannig, með Rosen-
kranz og Reygadas a-v:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass ÍH 1S
pass 2Hx) pass 2S
pass pass pass
x) Góð hækkun í spaðasögn.
Fyrsta atriði vamarbragðsins var
útspil vesturs, mjög hugmyndaríkt en
samt byggt á kerfisbundnu samkomu-
lagi sem kveður á um að dobli maður
keðjusögn í lit sem maður hefur sagt
þá vill maðúr útsþil í litnum. Þar eð
austur doblaði ekki tveggja hjarta
sögn norðurs spilaði vestur út tígul-
þristi, þriðja eða fimmta. Engum til
undmnar lét sagnhafi lágt úr blindum
og austur fékk slaginn á drottninguna
og spilaði laufadrottningu til baka.
Sagnhafi drap á ásinn í blindum en
vestur kallaði.
Næst kom tromp, austur drap á ás-
inn og spilaði laufaþristi. Sagnhafi
drap á kónginn og til þess að fá meiri
upplýsingar um tromplitinn spilaði
hann tígulgosa. Hann fékk upplýsing-
amar en með heldur óvæntum hætti.
Vestur drap á ásinn, tók laufagosa og
spilaði flórða laufinu. Austur yfir-
trompaði blindan með drottningunni
og a-v fengu 100 sem gerði 125 stig
af 138 mögulegum."
Ný meistarastig frá Bridge-
sambandi íslands
Nýkomin er út stigaskrá yfir áunn-
in meistarastig frá Bridgesambandi
íslands (vorskrá) frá upphafi skrán-
ingar 1976. Á skrá eru tæplega 3
þús. spilarar í 49 félögum.
Meistarastigum er skipt í þrennt.
Um bronsstig er keppt í félögum, um
silfurstig er keppt á svæðamótum og
opnum mótum af öllu tagi og um
gullstig er keppt í landsmótum og
öðrum keppnum á vegum Bridgesam-
bands íslands.
Gildi hvers stigaflokks er 1-10-100,
þ.e. eitt gullstig samsvarar 10 silfur-
stigum eða 100 bronsstigum. Saman-
lagt nefnist svo þessi málaflokkur
einu nafni meistarastig. Um er að
ræða áunnin stig eins og núverandi
•kerfi er uppbyggt.
Fjölmennustu félögin innan vé-
banda BSÍ eru að þessu sinni: