Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1987, Page 8
8
LAUGARDAGUR 20. JUNl 1987.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Álfhólsvegi 28, þingl. eigandi Halldór Halldórsson, fer fram í
skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikud. 24. júní kl.
13.35. Uppboðsbeiðendur eru Bæjarsjóður Kópavogs, bæjarfógetinn í Kópa-
vogi og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteiginni Kársnesbraut 70, hluta, þingl. eigandi Elín Elke
Ellertsdóttir, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, mið-
vikud. 24. júní kl. 13.40. Uppboðsbeiðendur eru bæjarfógetinn í Kópavogi,
Svala Thorlacius hrl., Róbert Árni Hreiðarsson hdl., Veðdeild Landsbanka
íslands, Landsbanki íslands og Klemens Eggertsson hdl.
_____________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Víðigrund 19, þingl. eigendur Erna S. Jóhannesdóttir og Krist-
inn Guðlaugs, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi,
miðvikud. 24. júní kl. 13.40. Uppboðsbeiðendur eru bæjarfógetinn í Kópa-
vogi, Veðdeild Landsbanka Islands og Friðjón Örn Friðjónsson hdl.
____________________Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skeljabrekku 4, þingl. eigandi Blikkver hf., fer fram í skrifstofu
embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikud. 24. júní kl. 13.50. Upp-
boðsbeiðendur eru Póstgíróstofan, bæjarfógetinn í Kópavogi, Guðjón
Ármann Jónsson hdl., bæjarsjóður Kópavogs, Sigríður Thorlacius hdl. og
Sigurmar Albertsson hdl.
__________________________Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Smiðjuvegi 46, neðri hæð, þingl. eigendur
Lárus Þ. Sigurðsson o.fl., fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í
Kópavogi, miðvikud. 24. júní kl. 13.55. Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður
Kópavogs.
_________________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Kársnesbraut 55, þingl. eigandi Guðbrandur
ívar Ásgeirsson, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 I Kópavogi,
miðvikud. 24. júní kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Ingólfur Friðjónsson hdl.
____________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Bjarnhólastíg 10, þingl. eigandi Stefán Stefánsson, fer fram í
skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikudaginn 24. júní
kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Kristján Ólafsson hdl.
____________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Sæbólsbraut 20, þingl. eigandi Jóhann G.
Ásgeirsson, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, mið-
vikud. 24. júní kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir Thoroddsen hdl.,
Sigurður G. Guðjónsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 17. og 24. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Hjallabraut 5, 2. hæð, íbúð C, Hafnarfirði, þingl. eign Aðalheiðar
Ámadóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Bjarna Ás-
geirssonar hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 24. júní 1987 kl. 14.30.
__________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Hjallabraut 6, 2 herb. íbúð á 3. hæð, Hafnar-
firði, þingl. eign Valgerðar Gröndal, fer fram á skrifstofu embættisins að
Strandgötu 31, Hafnarfirði, miðvikudaginn 24. júní 1987 kl. 14.45.
____________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Langeyrarvegi 7, hæð og risi, Hafnarfirði,
þingl. eign Jóns Marteins Guðröðarsonar, fer fram á skrifstofu embættisins
Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 22. júní 1987 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Arnarhrauni 21, 1 .h., Hafnarfirði, talin eign Sæ-
bjöms Sigurðssonar og Kristínar Gunnarsdóttur, fer fram á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 22. júní 1987 kl.
15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur fer fram uppboð í dómssal embættisins
að Skógarhlíð 6, föstudaginn 26. júní nk. kl. 10.00. Seldar verða eftirfarandi
eignir þb. Kvikmyndafélagsins Óðins hf., svo sem: Kvikmyndaverkin Punktur
punktur komma strik og Atómstöðin með öllum þeim réttindum er tilheyra
framleiðanda. Ennfremur 6 sýningareintök af kvikmyndinni Punktur punktur
komma strik, þar af eitt með enskum texta, 4 sýningareintök af Atómstöð-
inni, þar af eitt með enskum texta og eitt með frönskum texta. Greiðsla við
hamarshögg.
Upplýsingar um ofangreint veitir Gréta Baldursdóttir ftr. í síma 25323.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
Ferdamál
Húsfreyjur í hótelrekstri
Þær eru bjartsýnar og framtaks-
samar, húsfreyjumar á bæjunum í
Bjamarfirði ó Ströndum, en Bjamar-
fjörður er næsti fjörður norðan Stein-
grímsfjarðar.
Þessar „fósturlandsins freyjur" hafa
tekið skólahúsið ó Laugarhóli í þjón-
ustu sína og ferðamanna en þar munu
þær reka sumarhótel fram á haust.
„Hugmyndin að rekstrinum kvikn-
aði sl. haust en við vorum svo að
bræða þetta með okkur í vetur,“ sagði
Hafdís Baldursdóttir frá Odda þegar
við ræddum við hana um hótelið og
rekstur þess.
Konumar munu allar leggja sitt af
mörkum til rekstursins og gera svo
upp reikningana sín á milli í haust.
„Það eru nú aðallega tvær konur sem
sjá um að panta inn en við komum
allar nálægt rekstrinum, meira eða
minna. Við erum ekkert smeykar við
að þetta rekstrarform gangi ekki upp
hjá okkur. Við ræðum sameiginlega
öll veigamikil mál en samkomulagið
er mjög gott og það er auðvitað aðalat-
riðið,“ sagði Hafdís.
Við Laugarhól er Gvendarlaug, vígð
af Guðmundi biskupi góða. Sú laug
hefur ekki verið notuð en ylvolgt
hveravatnið rennur úr henni í sund-
laug staðarins.
Á hótelinu verða fimm herbergi not-
uð í sumar en sjötta herbergið verður
til reiðu ef með þarf. Á staðnum er
gott eldhús og vistlegur matsalur.
Auk hótelsins í Djúpuvík verður
sumarhótelið að Laugarhóli eina hót-
elið á Ströndum, norðan Hólmavíkur,
eftir því sem við komumst næst. Það
ætti því að verða nóg að gera á Laug-
arhóli í sumar, eða hvað?
„Byrjunin lofar mjög góðu hjá okk-
ur,“ sagði Hafdís. „Það eru allar
helgar upppantaðar hjá okkur í júní
og júlí, að einni helgi undanskilinni.
Yfirleitt eru þetta nokkuð fjölmennir
ferðamannahópar sem við eigum von
á í sumar, fjörutíu til fimmtíu manna
hópar, og svo eigum við von á hundr-
að manna ættarmóti.
Ferðamannastraumurinn um
Strandimar hefur verið mjög misjafn.
Hann var t.d. ekki mjög mikill sl. sum-
ar en ýmislegt bendir til þess að hann
verði mun meiri nú í ár.“ Það er því
allt útlit fyrir að húsfreyjumar í
Bjamarfirði komist ekki í heyskapinn
ef heldur fram sem horfir.
Verðið á gistingu yfir nóttina er
1.450 kr. fyrir uppbúið tveggja manna
herbergi en svefhpokaplássið kostar
300 kr. á dýnu og 500 kr. í rúmi.
Og ætla svo ekki húsfreyjumar í
Bjamarfirði að reka þama sumarhótel
til frambúðar?
„Við ætlum að sjá til hvemig þetta
gengur í sumar hjá okkur og ef þetta
gengur vel er auðvitað ekkert því til
fyrirstöðu að reyna aftur. Reyndar
hvetjum við konur til sveita að gera
svona tilraunir þar sem það á við,“
sagði Hafdís að lokum.
-KGK
Það litur ekki út tyrir aö vera neinn leigubílaskortur í London, enda fyrirhugaðar ráðstafanir í þágu farþeganna
en ekki þeirra sem reka bílana.
Spamaður í Londoti
í sumar verður gerð tilraun til
spamaðar fyrir ferðamenn varðandi
leigubíla í London. Farþegum, sem
koma til Heathrowflugvallar, verður
boðið upp á sameiginlega leigubíla
sem munu flytja farþegana sem eru á
leið til ákveðinna staða í London þar
sem flestar ferðaskrifstofúmar hafa
aðsetur sitt. Ferðamenn eru auðvitað
ekki neyddir til þess að taka þátt í
svona sameiginlegum leigubílum en
þetta mun lækka leigubílakostnað til
muna. Það er ferðamálaráðuneytið
breska sem stendur fyrir þessum
spamaðartifraunum.
Þetta fyrirbæri er þekkt annars stað-
ar frá, hefur t.d. verið í gangi lengi í
París en einnig fyrir utan London, á
ýmsum smærri stöðum, þar sem e.t.v.
þarf ekki að viðhafa eins mikinn asa
og í stórborginni.
-A.BJ.