Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNI' 1987.
Fréttir
Furðuleg
skatt-
heimta
Fjöldi fclagsmanna í Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda hefur að
undanfomu hringt á skrifstofu fé-
lagsins og látið í ljós undrun sína
með væntanlegan eignaskatt á bif-
reiðir, sem talinn er munu nema
um 1-1,5% af matsverði bifreiða
án tillits til efhahags eigenda.
Svo segir í fréttatilkynningu sem
DV hefur borist frá FÍB, sem lýsir
furðu sinni með þessa skattheimtu
Enn fremur segir: „Ekki virðist
ætlun að leggja þennan skatt á
eftir venjulegum reglum um út>
svar, tekjuskatt né eignaskatt,
heldur virðist hann eiga að vera
fasteignaskattur á bifreiðir. Fas-
teignaskattur er lagður á að mestu
án tillits til efhahagsstöðu þess sem
skrifaður er fyrir eigninni, enda
ekki óeðlilegt þar sem slíkur skatt-
ur felur í sér greiðslu á ýmiss konar
þjónustu fyrir notendur eignarinn-
ar. Slika skatta leggja bæjarfélögin
á og veita þjónustu í staðinn.'*
Þá er vikið að því að þjónusta
ríkisins við bifreiðaeigendur er
greidd með ýmiss konar gjöldum,
til að mynda skráningargjaldi, og
álag ríkisins oft mjög hátt. Varð-
andi skatta á rekstrarvörur bif-
reiða segir í bréfinu að einungis
30% af þeim séu notuð til þjónustu
við bifreiðaeigendur eða vegfa-
rendur, annað fari í samsóun
ríkisins.
Síðan segir: „Þessi „fasteigna-
skattur" á bifreiðir mun fela i sér
gróft brot á því sérstæða og vitur-
lega samkomulagi aðila vinnu-
markaðarins og ríkisstjórnarinnar
í febrúar 1986, sem leiddi til stöðug-
leika verðlags og minnkandi
verðbólgu, landsmönnum öllum til
hagsbóta. Ef af þessari skattlagn-
ingu yrði, með þeim hætti sem
áður er lýst í ofannefhdri fregn,
þá væru stjómvöld að svíkjast aft-
an að því láglaunafólki, sem á
umliðnu ári eignaðist í fyrsta sinn
bifreið á eðlilegu verði í þeirri trú
að fjármunir þeirra yrðu ekki
teknir til baka með nýstárlegri
skattlagningu."
-JFJ
Fræðslustjórínn á Vestfjörðum
Skólastjórinn hefur
staðið sig vel
„Ég harma það að sættir hafa
ekki tekist og óttast það að tillaga
skólanefhdarinnar skaði skólann og
starfið sem þar þarf að vinna. Ég
hefði talið gmndvöll vera fyrir sátt-
argerð ef vilji hefði verið fyrir hendi
og ágreiningsmálin þannig jöfnuð
án þessara aðgerða," sagði Pétur
Bjamason, fræðslustjóri á Vestfjörð-
um, um málefni Héraðsskólans á
Reykjanesi en þar hefur skólanefnd-
in farið fram á að skólastjórinn láti
af störfum.
Pétur sagði að skólanefndin hefði
skrifað greinargerð þar sem hennar
sjónarmið kæmu fram en þar er tal-
að um agaleysi, að ekki sé staðið
nógu vel við bakið á kennurum og
ekki farið eftir tilmælum skólanefnd-
ar um ýmsa hluti. Pétur bjóst vart
við sáttum úr þessu en undirstrikaði
að það hefði hann talið æskilegast
og lagt fram bókun þess efnis.
Pétur sagði að ef Skarphéðinn Ól-
afsson léti ekki sjálfviljugur af
störfum myndi málið að öllum lík-
indum koma til kasta ráðuneytisins
sem tæki endanlega ákvörðun í
þessu máli en Skarphéðinn lýsti því
yfir í DV í gær að hann myndi sitja
sem fastast.
„Ég sem fræðslustjóri hef enga
ástæðu til annars en að bera honum
gott orð. Það hafa verið margvísleg
agavandamál þama eins og í öðrum
slíkum stofnunum og ákvarðanir
skólastjóra því umdeildar."
Hefur skólastjórinn þá að þínu mati
gegnt starfi sínu vel?
„Það er mitt mat, já.“ -JFJ
Hálfdán með einn af hundum sinum, tíkina Rósu. DV-mynd GVA
Maðurinn sem drap hundana:
„Tel mig vera í
fullum rétti“
„Ég tel mig vera í fullum rétti að
drepa hundana á mínu landi. Það er
margbúið að kvarta undan þessum
hundum, þeir hafi bitið fé. Auk þess
hafa þeir ekki verið þrifnir eins og
lög gera ráð fyrir. Fé hefur verið
dæmt í annan flokk vegna hundsbits
en við þögðum alltaf yfir þessu til
að hlífa kallinum,“ sagði Ólafur
Guðmundsson en hann er einn þeirra
sem nýverið drápu fjóra af hundum
Hálfdáns Ólafssonar að Uppsölum í
Seyðisfirði við Isafjarðardjúp.
Allt fr á árinu 1979 hafa verið deilur
milli Ólafs Guðmundssonar og Hálf-
dáns Ólafssonar vegna hundaræktar
Hálfdáns. Ólafur er ættaður frá
Hnjótum, næsta bæ við Uppsali, sem
nú er í eyði. Ólafur var með bú á
Eyri í Seyðisfirði til skamms tíma
og segir Ólafur að á þeim tíma hafi
hann átt í stöðugum vandræðum með
hunda Hálfdáns. Ólafur vill meina
að hundar Hálfdáns séu ekki þjálfað-
ir til eins né neins, þetta séu allt
villihundar. í sama streng tók Magn-
ús Jónsson, bóndi að Minni-
Hnappadal í Álftafirði, hann segist
hafa klagað til yfirvalda fjórum til
fimm sinnum á undanförnum árum
vegna hundanna. „Síðastliðinn vetur
taldi ég þrjátíu og tvo hunda hér í
fjallshlíðinni. Aðrir eru skyldugir til
að þrífa sína hunda en Hálfdán
kemst upp með það að hafa sína
hunda óþrifna, það er erfitt að sjá
hvers vegna,“ sagði Magnús Jóns-
son.
Ólafur Guðmundsson sagði að
hann myndi ekki hika við að keyra
á hunda Hálfdáns yrðu þeir á vegi
hans. Þetta væru villihundar sem
aldrei hefðu veitt mink eða tófu. Að
minnsta kosti hefði Hálfdán ekki
skilað einu einasta skotti hingað til.
Hálfdán Ólafsson sagði Ólaf ljúga
þessu, hundar sínir legðust ekki á fé,
þeir eltu ekki bíla og létu fólk í friði.
-sme
í dag mælir Dagfari
Hver verður forsætis?
Nú virðist allt klappað og klárt í
myndun nýrrar ríkisstjómar. Mál-
efnin liggja fyrir eftir að kratamir
ákváðu að bakka með öll stefnumál
sín og íhaldið ákvað að bakka með
stefhumál sín og Framsókn ákvað
að bakka með stefnumál sín. Hvað
gera menn ekki fyrir þjóðina þegar
ráðherrastólamir em annars vegar?
Þríflokkamir em meira að segja
búnir að koma sér niður á það hvað
gera skuli til að byrja með, sem er
ákaflega lofsvert, enda nauðsynlegt
að gera eitthvað til að byija með ef
ekkert verður gert þegar fram í sæk-
ir. Þeir kalla þetta fyrstu aðgerðir,
en um þessar fyrstu aðgerðir hefur
staðið nokkur ágreiningur því nú-
verandi stjómarflokkar vildu lengi
vel að ekki jrði gripið til fyrstu að-
gerða. Með því urðu þeir að viður-
kenna að eitthvað væri ógert frá tíð
núverandi ríkisstjómar, en það
stangast á við það sem þeir sögðu í
kosningabaráttunni og er ekki nógu
gott. Þessu hafa þeir líka kyngt af
tillitssemi við þjóðina sem er orðin
langþreytt eflir nýrri ríkisstjóm og
þeir sjálfir orðnir langþreyttir eftir
nýjum ráðherrastólum.
Það er aðeins eitt vandamál eftir.
Hver á að verða forsætisráðherra?
Allir em þeir jafhhæfir, Jón Bald-
vin, Þorsteinn og Steingrímur, og
því er úr vöndu að ráða. Lítum að-
eins á nokkrar staðreyndir sem
mæla með hveijum og einum.
Jón Baldvin Hannibalsson er bú-
inn að leiða þessar stjómarmyndun-
arviðræður. Hann hefur umboðið frá
forsetanum. Hann hefur kokgleypt
stærsta bitann með því að fallast á
að Framsóknaráratugurinn ffam-
lengist í tvo áratugi. Jón Baldvin
drap Bandalag jafnaðarmanna, bauð
þingmönnum þess í framboð fyrir
Alþýðuflokkinn þar sem vonlaust
var að þeir næðu kjöri. Hann jók
. þingmannatölu Alþýðuflokksins
nægilega til að drepa núverandi rík-
isstjórn og hefur síðan lagt sig fram
um að endumýja hana. Þessi maður
er réttborinn til forystu, samkvæmt
baráttuaðferðinni: ifyou cannot beat
them, join them.
Steingrímur Hermannsson er nú-
verandi forsætisráðherra. Vinsældir
hans eru svo miklar að Framsóknar-
flokkurinn stendur í stað í kjörfylgi
þótt enginn vilji lengur með flokkinn
hafa. Steingrímur var ómögulegur
sjávarútvegsráðherra. Hann var
ómögulegur landbúnaðaráðherra.
Hann verður ómögulegur utanrík-
isráherra. Hann er eini íslendingur-
inn sem er ómögulegur í allt annað
heldur en að vera forsætisráðherra.
Þar að auki fældi Steingrímur Stefán
Valgeirsson úr Framsóknarflokkn-
um en hefur síðan boðið honum
formlega aftur til liðs við Framsókn
upp á býtin: if you cannot beat them,
join them. Þessi maður er réttborinn
til forystu.
Þorsteinn Pálsson er ekki lengi
búinn að vera formaður í Sjálfstæð-
isflokknum. Þó hefur hann unnið
það afrek að fækka kjósendum
flokksins um þriðjung. Hann fældi
Albert í sérframboð vegna þess að
hann vill ekki hafa menn í flokknum
sem draga að fylgi. Þorsteinn er
greinilega sams konar snillingur og
Jón Baldvin í því að drepa flokka,
þó að sá sé að vísu munurinn að Jón
Baldvin drepur aðra flokka meðan
Þorsteinn drepur sinn eigin. Þar að
auki er Þorsteinn í þeirri aðstöðu
að geta kálað öllun núverandi ráð-
herrum Sjálfstæðisflokksins að
undanskildum sjálfum sér. Hann
starfar eftir sömu kenningu og hin-
ir: if you cannot beat them, join
them. Með því formerki þó að Þor-
steinn vill þannig stækka hópinn
sem er á móti flokknum en ekki
þann sem er í honum. Þorsteinn
hefur alla burði til að verða góður
forsætisráðherra.
Allir hafa þeir þremenningamir
það sameiginlegt að koma öðrum
fyrir kattarnef. Jón Baldvin fyrrver-
andi þingmönnum Bandalagsins,
Steingrímur sjálfum sér og Þor-
steinn samheijum sínum og flokks-
mönnum. Allir ættu þeir að fara létt
með að drepa ríkisstjórnina.
Það er algert aukaatriði þótt mál-
efnin sé rýr. Engu skiptir þótt
flokkamir bakki með stefhumál sín.
Aðalatriðið er að næsti forsætisráð-
herra sé vanur maður í að koma
sjálfum sér, flokki sínum og ríkis-
stjórn fyrir kattamef sem fyrst;
Dagfari