Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. Útlönd Muammar Gaddafi, ieiðtogi Líbýu, sagði í gær að ef arabaríki vildu ná virðingu yrðu þau að koma sér upp kjamorkuvopnum. Sagði hann kjam* orkuvopn vera nauðeynleg sem vamarvopn og að Arabarfki yrðu að vera reiðubúin að beita þeim ef öryggi þeirra og sjálfetæði væri ógnað. Sagði Gaddafi að arabar yrðu að hafa undir höndum slík vopn þar til þeir væm orðnir þúsund milljónir að tölu, þar til þeir lærðu að gera drykkjarvatn úr sjó og þar til þeir frelsuðu Palestínu. Yrði þessum vopnum beitt ef öryggi ríkjanna væri ógnað, hvort sem þaö væri með eða án kjamorkuvopna. Fred Astaire látinn Pred Astaire lést i gær, áttatíu og átta ára gamall, úr lungnabólgu á sjúkrahúsi í Century City, einni af útborgum Los Angeles í Bandaríkjunum. Astaire lék í miklum fjölda kvikmynda, flest dans-og söngvamyndir, og varð einkum kunnur fyrir leik sinn með stjömunni Ginger Rogers. í upphafi fer- ils síns var Astaire ekki talinn til mikils líklegur því umboðsmaður einn sagði um hann að hann gæti hvorki leikið né dansað vel og væri að auki ofurlítið sköllóttur. Á löngum og gifturíkum feili hefur Astaire þó afsannað þessar kenningar. Hamadei verður ekki framseldur Gabriele Steck-Brommer, skipaður lögfræðingur Mohammed Ali Hama- dei, sem talinn er hafa verið einn af flugræningjum þeim sem tóku þotu frá Trans World Airlines traustataki árið 1985, fagnaði í gær þeirri ákvörðun stjómvalda í Vestur-Þýskafandi að framselja Hamadei ekki til Bandaríkj- anna. í flugráni því, sem Hamadei er talinn hafa átt aðild að, var einn bandarísk- tn- farþegi í þotunni, kafari úr bandaríska sjóhemum, myrtur. Talið er að Hclmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, hafi tekið þessa ákvörð- un í þeirri von að komn í veg fyrir að v-þýskir gíslar, sem em í haldi í Líbanon, verði myrtir. Talið er að embættismenn V-Þýskalands skýri Bandaríkjamönnum frá því í dag að Hamadei verði sóttur til saka fýrir rétti í Frankfurt, fyrir fiugrán,. morð og að hafa haft sprengiefhi undir höndum. Dauðadómur fyrir morðtilraun Kínverskur háskólastúdent, sem fyrr í ies. um mánuði særði átta af starfe- mönnum háskóla síns með hnífi, var í gær dæmdur til dauða. Pilturinn réðst inn á fund í skólanum eftir að hafa verið vísað úr skóla fyrir lélegan náms- árangur og veittist að skólastjóra og sjö öðrum starfemönnum með hnffi. Hann komst síðan undan á hjóli. Ný tegund kæUgama frá Japan Japanir sýndu í gær í fyrata sinn nýja tegund kælikerfa fyrir gáma sem þeir fullyrða að geri kleift að fiytja osta og önnur fersk matvæh með skipum fyrir þriðjung af því sem það kostar að flytja þau með flugvélum. Kælikerfi þetta, sem hægt er að setja í venjulega gáma, á aó halda matvæl- unum við rétt hitastig og rakastig í allt að sextíu daga. Kælikerfi þetta hefur þegar verið reynt og farmur af camembertosti, sem sendur var frá Frakklandi til Japan fyrr á þessu ári, var úrskurðaður í full- komnu ástandi við komuna þangað þrátt fynr þijátf u og fimm daga á hafi úti. Segja Japanir að kæUkerfi þetta megi nota til að flytja ávexti og græn- meti og að hægt verði að flytja gámana á flutningabifreiðum landveg ef á þurfi að halda. Sovétmenn ekki hasfir enn Háttsettir bandarískir embættismenn munu í næsta mánuði skýra sovésk- um starfebræðrum sfnum frá þvi að bandarísk stjómvöld telji ekki að Sovétmenn hafi áunnið sér rétt til að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefhu um lausn á deilumálum Mið-Austurlanda. Auk þess að fjalla um leiðir til að binda enda á átök araba og ísraela í Mið-Austurlöndum er búist við að fyrirhuguð ráðstefna fjalli um styrjöldina milli fran og írak, svo og Afganistan. Shultz, utanrfkisráðherra Bandaríkj- anna, sagði nýlega að Sovétríkin gætu leikið stórt hlutverk í friðarmálum í Mið-Austurlöndum en hefðu hins vegar ekki enn sýnt vilja til að gera það. Hann sagði að Sovétraenn yrðu þess vegna að sýna fram á hæfiú sína til að taka þátt í ráðstefhu af þessu tagi áður en aðild þeirra yrði sam- þykkt. Ekki hefrtr verið tiltekið hvað Sovétmenn þurfa til að vinna. Boðar þjóðarstyrjöld til hægri sem vinstri Corazon Aquino, forseti Filippseyja, boðaði í gær „þjóðarstyijöld" gegn bæði vinstri og hægri mönnum sem nú reyna að steypa ríkisstjórn hennar á eyjunum. Sagði Aquino í gær að óvinir ríkisstjómarinnar, bæði til hægri og vinstri, hefðu ekki látið af herferðum sínum gegn lýðræði í landinu, þrátt fyrir að þjóðin hafhaði þeim í kosningunum í síðasta mánuði. Sagði Aquino að það væri friður og frelsi þjóðarinnar sem þessir aðilar reyndu að eyðileggja og því væri greinilega þörf á þjóðarstyrjöld gegn hermdarverkum þeirra. Aquino gaf þessa yfirlýsingu sína i ræðu við afinælishátíð filippínska flot- ans sem var 89 ára í gær. Hún gaf þá yfirvöldum hers og vamarmála fyrir- mæli um að skipuleggja aðgerðir til þess að nota vald þjóðarinnar til þess að stöðva hryðjuverkin. Aquino sagði að fyrirsátin sem gerð var presti einum um síðustu helgi, svo og morð á þrjátíu og tveim lögreglu- mönnum á þessu ári og sprengjutil- ræði við opinberar byggingar í Corazon Aquino, forseti Filippseyja, kemur til afmælishátíðar (ilippinska sjóhersins þar sem hún boðaði herferð sína. -Símamynd Reuter verkamenn og uppræta þá. Aquino skýrði frá því í gær að hópar andkommúnista sem skipulagt hafa borgaralega aðgerðahópa, myndu fá að bera skotvopn. Hins vegar yrði þeim gert að starfa undir stjóm hers eða lögreglu. Manila, væm allt merki örvæntingar og tilraunir til að ná aftur með ógnun- um því sem óvinir stjómarinnar hafa glatað í kosningum. Hún sagði að slíkt yrði ekki heimil- að, stjómvöld myndu stöðva hryðju- Opinn vopnamarkaður í Evrópu Hermaður gætir vamarmálaráðherra 13 NATO-ríkja sem ákváðu i gær að gera vopnaiðnaðinn í Evrópu ábatasamari. Vestur-Evrópa á að verða einn vopnamarkaður og framleiðsla og sala á vopnum NATO-ríkjanna í Evrópu verður samræmd. Þetta var niður- staða fundar vamarmálaráðherra 13 NATO-ríkja í Evrópu sem funduðu í Sevilla á Spáni í gær. Ráðherrarnir komu sér saman um drög sem hafa það að markmiði að gera Vestur-Evrópu sjálfetæðari vopnaframleiðanda. Einnig á vopna- framleiðslan að verða ábatasamari atvinnuvegur en hingað til. Drögin gera ráð fyrir að fyrirtæki í einu ríki geti tekið að sér að framleiða hergögn fyrir annað ríki en stefhan hingað til hefur verið sú að hvert ríki um sig framleiði sem mest af þeim hergögnum sem það notar. Andrew Young, vamarmálaráð- herra Bretlands, sagðist vona að fleiri ríki fylgdu fordæmi Breta og gæfu sem flestum smáfyrirtækjum tækifæri til að þéna á hergagnaiðnaðinum með því að gera þau að undirverktökum í stærri verkefnum. Þessi ákvörðun vamarmálaráðherr- anna stuðlar að því að gera efhahagslíf viðkomandi þjóða enn háðara fram- leiðslu á vopnum. Vopn og framleiðsla þeirra em hætt að vera hluti af vöm- um sjálfetæðra ríkja, eins og áður var. Hergagnaframleiðsla er fyrst og fremst orðin ábatasamur atvinnuvegur og engu máli skiptir í hvaða höndum þau á endanum lenda. Olympíuleikamir verða haldnir í Suður-Kóreu Þrátt fyrir miklar óeirðir í Suður- Kóreu undanfarið og þá hótun kommúnistaríkja að taka ekki þátt í ólympíuleikum þar hefur Alþjóða ólympíunefndin ekki uppi neinar áætl- anir um að flytja leikana þaðan til annarrar borgar. Talsmaður nefndar- innar sagði í gær að engar breytingar hefðu orðið á afetöðu hennar, að ákveðið hefði verið að halda ólympíu- leikana 1988 í Seoul og í Seoul yrðu þeir haldnir. Undanfamar vikur hafa víða skotið upp kollinum efasemdir um að mögu- legt reynist að halda leikana í S-Kóreu næsta sumar. Hafa tvær borgir þegar boðist til að halda leikana, það em Los Angeles í Bandaríkjunum og V est- ur-Berlín. Báðar borgimar segjast reiðubúnar til þess að halda leikana með stuttum fyrirvara, enda séu öll Ólympíufáninn veröur dreginn að hún við ráðhús Seoul, höfuðborgar S- Kóreu, í dag til þess að minnast stofnunar Alþjóða ólympiuhreyfingar- innar árið 1894. Símamynd Reuter nauðsynleg mannvirki þegar fyrir hendi. Tillaga bo.rgarstjóra V-Berlínar hljóðaði upp.á að bæði Austur- og Vestur-Berlín myndu halda leikana í sameiningu. Stjómvöld í A-Þýska- landi hafa þegar hafnað þeirri hugmynd sem óraunhæfri. Olympíuleikamir voru haldnir í Los Angeles árið 1984. í Berlín hafa þeir ekki verið haldnir síðan 1936. Það hefur aldrei komið fyrir, frá því að ólympíuleíkamir vom endurreistir árið 1896, að hætt hafi verið við þá vegna innanlandsátaka. Þrisvar hefur ólympíuleikum verið afetýrt, það er árin 1916,1940, þegar þeir áttu að vera í Helsinki, og 1944, en þá áttu þeir að vera í Tokýo. I öll skiptin var leikun- um aflýst vegna heimsstyrjalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.