Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Side 9
9 #......... ' " ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. DV Krefjast aðgerða af hálfu stjórnar Um sjö hundruð og fimmtíu þús- imd manns tóku í gær þátt í mótmælaaðgerðum í Barcelona á Spáni vegna sprengjutilræðis Baska þar í borg á föstudag þegar seytján ve^farendur létu lífið í sprengingu í bílageymslu við stórverslun. Reiði- öldur þær, sem gengið hafa yfir Spán frá því á föstudag, virðist ekki ætla að lægja að sinni. Spánverjar neita að taka skýringar ETA, aðskilnað- arhreyfingar Baska, gildar og fjöl- miðlar krefjast þess nú að stjómvöld í landinu grípi til afgerandi aðgerða gegn hryðjuverkamönnum. Mótmælaaðgerðimar í gær vom hinar fjölmennustu sem sögur fara af í Barcelona. I fararbroddi fyrir mótmælagöngunni gengu Jordi Pu- jol, forseti héraðsstjómar Katalóníu, og Jesus Eguiguren, forseti þings Baska. Felip Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, átti um síðustu helgi tvo langa fundi með Jose Barrionuevo, innanríkisráðherra landsins, þar sem þeir ræddu hugsanlegar aðgerð- ir gegn ETA. Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, hefúr lýst ábyrgð á sprengingunni á hendur sér, en segir að mistök hafi orðið í sambandi við hana því alls ekki hafi verið ætlunin að myrða svo marga almenna borgara sem raun varð. Hefur hreyfingin beðist afsök- unar á atburðinum. Hundruð þúsunda Spánverja fóru í gær í mótmælagöngur um götur Barcelona vegna sprengjutilræðis Baska í síðustu viku. Þeir krefjast nú aðgerða af stjórnvöldum. Simamynd Reuter Kongsbergmálið vindur upp á sig Björg Eva ErlendsdóttirJDV, Osló Sala Kongsberg Vaapenfabrikk á hátæknibúnaði til Sovétríkjanna dregur sífellt lengri dilk á eftir sér. Johan Jörgen Holst, vamarmálaráð- herra, fer í kvöld til Bandaríkjanna til að reyna að blíðka þarlend stjóm- völd. Nefhd á vegum norsku ríkisstjómar- innar hefur komist að þeirri niður- stöðu að herða þurfi reglur um sölu á tæknibúnaði til landa Varsjárbanda- lagsins. Thorvald Stoltenberg, utan- ríkisráðherra, segir að nýju reglumar þurfi að taka gildi samstundis. Sam- kvæmt þeim verður hert eftirlit með öllum fyrirtækjum sem selja tækni- búnað til austantjaldsríkjanna. Auk þess verða þyngri refsingar við brotum á COCOM reglunum sem kveða á um hverskonar tæknibúnað megi selja til þessara landa. Fram til þessa hafa brot á COCOM reglunum varðað allt að 6 mánaða fangelsi en núna eiga slík brot að geta haft í för með sér allt að 5 ára fangelsi. Stoltenberg sagði einnig að Kongs- berg vopnaverksmiðjan þyrfti að gera nákvæma grein fyrir viðskiptmn sín- um við Sovétríkin allt frá 1970. Kongsbergmálið hefúr nú þegar haft alvarleg áhrif á samskipti Bandaríkj- anna og Noregs. Fyrir sjálfa vopna- verksmiðjuna er málið spuming um líf og dauða. Verksmiðjan hafði í sjón- máli samning við Bandaríkin um sölu á Penguin rakettum til bandaríska sjó- hersins. Hætti Bandaríkjamenn við þennan samning, á verksmiðjan sér ekki viðreisnar von. Mikið álag er á íbúum Kongsberg en samfélagið þar er háð tilvist vopna- verksmiðjunnar. Læknar og sálfræð- ingar hefja brátt rannsóknir á íbúunum til að kanna hvaða áhrif óvissan hefúr á þá. Gangrýni Bandaríkjanna í garð Noregs og Japan sem einnig átti þátt í Sovétviðskiptunum, verður sífellt harðari. New York Times skrifaði í gær að japanska Toshiba fyrirtækið og Kongsberg Vaapenfabrikk hefðu eyðilagt forskot það sem NATO ríkin hefðu haft á Sovétríkin í kafbátahem- aði. Ennfremur að stjómvöld beggja landanna hefðu sýnt málinu fullkomið kæmleysi með því að taka málið ekki föstum tökum. Norsk stjómvöld reyna nú að bjarga því sem bjargað verður af vináttu Bandaríkjanna því mikið er í húfi. Aðallega geta Norðmenn tapað fé vegna vináttuslitanna en staða Noregs innan NATO hefur einnig áhrif. Gro Harlem Bmndtland, forsætis- ráðherra, hefur ritað Reagan, Banda- ríkjaforseta persónulegt afsökunar- bréf þar sem hún boðar herta löggjöf í Noregi til að Kongsberg málið endur- taki sig ekki. Viðbrögðin við bréfi Brundtlands eru misjöfri í Noregi. Formaður Vinstrisósíalista, Theo Koritzinsky. segir að Bandaiíkjamenn hafi sýnt með framkomu sinni að það séu þeir sem ákveði leikreglumar þegar um sölu á viðkvæmum búnaði til Varsjár- bandaiagsríkja sé að ræða. Noregur hefur undanfarið átt það til að vera óþægt NATO-land. Nú hafi Banda- ríkjamenn tak á Norðmönnum og geti komið í veg fyrir frekari hliðarspor þeima í framtíðinni „Gro Harlem Brundtland leggst við fætur Ronalds Reagans," segir formaður Vinstrisós- íalista. Jan P Syse, formaður þingflokks Hægrimanna, fannst bréfið skynsam- legt og sagði að sérhvert landi >töí að þjóna sínum hagsmunum í viðskipt- um við önnur ríki. Óeirðirnar i Seoul, höfuðborg S-Kóreu, halda áfram þótt stjórnmálaflokkar landsins virðist þokast i samkomulagsátt. Símamynd Reuter Þokast í samkomu- lagsátt í Hægt og sígandi virðist þokast í samkomulagsátt í deilumálum ríkis- stjómar og stjómarandstöðu i S-Kóreu og virðast báðir aðilar nú reiðubúnir til að leita málamiðlunar- lausnar. Ekkert lát hefúr þó orðið á óeirðum stúdenta í Seoul, höfuðborg S-Kóreu, og í gær kom til átaka milli tugþúsunda þeirra og sveita óeirðalögreglu í borginni. Bandarísk stjómvöld hafa sent háttsettan embættismann til Seoul til viðræðna við bæði ríkisstjóm S-Kóreu landsins og stjómarandstöðu. Hafa Bandaríkjamenn hvatt Suður- Kóreumenn til að leysa vandamál sín án íhlutunar af hálfu hers lands- ins. Sendimaður Bandaríkjastjómar, Gaston Sigur aðstoðamtanríkisráð- herra, mun ræða við Kóreumenn í dag og á morgun. Hann hefur lýst því yfir að hættan á byltingu hersins i landinu sé auðvitað alltaf fyrir hendi en hins vegar telji hann hana ekki mikla nú sem stendur. Útlönd Tyrklr hóta endur- skoðun á NATO-aðild Kenan Euren, forseti Tyrklands, sagði í gær að Tyrkir kynnu að taka til endurskoðunar aðild sína að Atlantshafsbandalaginu í ljósi þeirrar afstöðu Evrópuþingsins að viðurkénna fúllyrðingar Armena um þjóðarmorð ú þeim í fyrri heimsstyijöld. Leiðtogar Tyrkja hafa lýst þeirri skoðim sinni að þessi yfirlýsing Evrópuþingsins hafi verkað hvetj- andi á aðskilnaðarsinna meðal Kúrda sem um síðustu helgi myrtu þijátíu íbúa smáþorps í Tyrklandi. I ræðu í gær sagði Euren að það gæti verið gagnlegt að setjast nið- ur og endurskoða að nýju NATO-aðild Tyrklands. Sagði hann að hklega yrði næsta skref Evrópuþingsins að krefjast þess að Tyrkir gæfu Armenum eftir hluta lands síns, vegna ofsóknanna gegn þeim fyrr á öldinni. „Jafrivel Varsjárbandalagið ger- ir ekki slíkar kröfúr á hendur Tyrklandi. Þessar kröfúr koma frá Grikkjum, frá öðmm aðildarríkj- um (að NATO). Slíkt stenst ekki, slik bandalög standast ekki,“ sagði forsetinn í rasðu sinni. BÍLASALAN HLÍÐ Borgartúni 25, SÍMAR 17770 og 29977 M. Benz 608 D árg. 1981, langur, m/kúlutoppi, ekinn 160 þ. km. Verð 795.000 Scout II árg. 1976, 8 cyl. Verð 265.000. Sýnishorn úr söluskrá Toyota Corolla 1300 árg. 1986. Verð 345.000. Ford Escort 1300 árg. 1986. Subaru station árg. 1985. Verð 540.000. Honda Accord E.X. árg. 1985. M.M.C. Pajero (stuttur) árg. 1985, ek. aðeins 23 þ. km. Daihatsu Charade árg. 1983, ek. aðeins 33. þ. km. Lada Lux árg. 1985, ek. aðeins 13. þ. km. Toyota Cressida dísil árg. 1983, ek. aðeins 70. þ. km. Subaru station árg. 1984. Verð 440.000 Subaru station árg. 1983. Verð 355.000 M.M.C. Sapporo (2000) árg. 1982, ek. aðeins 62. þ. km. Mazda 323 G.T. árg. 1982, ek. 55 þ. km. Mazda 929 station árg. 1981, ek. aðeins 69. þ. km. Mikil sala - Vantar allar gerðir bíla á skrá og á staðinn. Opiö öll kvöld til kl. 22.00 nema laugardaga til kl. 18.00. Sunnudaga frá kl. 13. 00-17.00. Sölumaður: Þorfinnur Finnlaugsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.