Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987.
13
dv __________Neytendur
Hver er réttur okkar?
Ýmsar heimildarbætur
vasapeninga, sem eru 3.928 kr. á
mánuði.
Mæðra- og feðralaun er heimilt að
greiða til maka lífeyrisþega þegar
bætur almannatrvgginga falla niður
vegna vistunar á stoíhun.
Elliheimilsvist. Ef fólk vistast á
elliheimili rennur ellilífeyrir og
tekjutrygging til greiðslu á gjaldinu,
sem nú er 36.196 kr. á mánuði. Ellilíf-
eyrir og tekjutrygging er óskert,
20.747 kr., svo Tiyggingastofnunin
greiðir mismuninn, kr. 15.449, fyrir
þá, sem engar aðrar tekjur hafa, í
formi uppbótar. Auk þess fær vist-
maðurinn greidda vasapeninga. kr.
4.674, á mánuði.
Aftur á móti þurfa þeir vistmenn,
sem einhveija aðrar tekjur hafa, t.d.
eftirlaun. að taka þátt í kostnaðinum
af vistgjaldinu eftir ákveðnum regl-
um.
- Gilda bæði fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Tiyggíngamál:
Hver er
réttur okkar?
Greinar um tryggingamál birtast
að á neytendasíðunni á þriðjudög-
um. Það er Margrét Thoroddsen sem
sér um þennan þátt. Hún svarar
einnig fyrirspumum ef einhveijar
kynnu að berast. Utanáskriftin er
DV,c/o Margrét Thoroddsen, Þver-
holti 11, Reykjavik.
Uppbót er heimilt að greiða vegna
lyfjakostnaðar, hárrar húsaleigu,
umönnunar eða vistunar á stofnun.
Umsókn þarf að fylgja læknisvottorð
eða húsaleigukvittanir þegar það á
við. '
Makabætur er heimilt að greiða
maka lífeyrisþega, sem ekki fær líf-
eyri sjálfur, ef sérstakar ástæður eru
fyrir hendi svo sem umönnun lífeyr-
isþegans. Hámark makabóta er
16.598 kr. á mánuði.
Barnalífeyrir. Tryggingaráð getur
ákveðið að greiða bamalífeyri með
bömum ellilífeyrisþega ef þau em
innan við 18 ára aldur. Örorkulífeyr-
isþegi á aftur á móti skilyrðislausan
rétt á bamalífeyri og er hann greidd-
ur tvöfaldur ef foreldramir em báðir
lífeyrisþegar. Barnalífeyrir með
hveiju bami er 4.642 kr. á mánuði.
Nýlega vom samþykkt lög um að
lífeyrisdeild væri heimilt að fram-
lengja greiðsluna til 20 ára aldurs
ef um skólanám bams væri að ræða.
Bifreiðastyrk er heimilt að greiða
vegna rekstrar bifreiðar, sem bóta-
þega er nauðsyn að hafa vegna
hreyfihömlunar. Styrkurinn er
greiddur ársfjórðungslega og miðast
við verð á 200 1 af bensíni í hvert
skipti.
Bifreiðalán em einnig veitt í svip-
uðum tilfellum. Nema þau 80 þús.
kr. en 140 þús. kr. til þeirra sem eru
mjög hreyfihamlaðir. Endurgreiðast
þau á 3 eða 4 árum og bera 8% vexti.
Sjúkrahúsvist. Dveljist lífeyrisþegi
lengur en einn mánuð á stofhun, þar
sem sjúkratryggingar greiða fyrir
hann, fellur lifeyrir hans niður ef
vistin hefur verið lengri en 4 mánuð-
ir alls á undanfömum 24 mánuðum.
Þó er ævinlega greiddur útskiáftar-
mánuðurinn. Heimilt er þó að víkja
frá þessum tímamörkum ef sérstak-
lega stendur á.
Sjúklingurinn heldur þó öðrum
tekjum, t.d. eftirlaunum, en ef hann
er alveg tekjulaus fær hann greidda
Mataikostnaður
aðeins hæni
en í páska-
mánuðinum
„Heimilishaldið gengur sinn va-
nagang - upp. Matarkostnaður
aðeins lægri en í páskamánuðinum
eða tæpl 7 þús. kr. á mann. „Ann-
að“ miklu hærra eða rúml. 80 þús.
kr.,“ segir m.a. í bréfi frá I.H., vin-
konu okkar. I.H. skrifar okkur
jafnan bréf einu sinni í mánuði
þegar hún sendir okkur upplýs-
ingaseðilinn. Það er hressandi að
fá bréfin frá I.H. og við birtum þau
eða kafla úr þeim svo aðrir geti
notið þeirra með okkur.
í upphafi þessa bréfs kvartar I.H.
yfir fyrirkomulagi á Eurovision
keppninni, en þar sem svo langt er
síðan keppnin var haldin og rætt
hefur verið um þetta mál á öðrum
vettvangi sleppimi við þeim kafla
bréfsins.
l.H. heldur áfram:,,Til að bæta
upp kvörtunartóninn fékk ég mjög
góða þjónustu á bónstöðinni á
KIöpp. Það veitti ekki af að tjöru-
þvo og bóna bílinn. Sú þjónusta
kostaði kr. 1.400 og svo fékk ég
kvcikjara og minnisbók í „rabat“
Það var allt annað að sjá bílinn á
eftir.
Skuldabréf, víxill og Visa var
15.500 kr., dagblöðin kr. 1000, líkn-
arhappdrætti 1.600 og bensín kr.
1.985, svipað og í síðasta mánuði
þrátt fyrir hækkun.
Mér finnst að snyrtivörur hafi
hækkað ískyggilega, ekkert Glas-
gowverð á þeim! Rakakrem,
næturkrem, andlitsvatn og augn-
skuggar kostaði kr. 7.733 og dugar
örugglega ekki lengur en til hausts.
6g keypti fjögur sett af barna-
nærfötum, sem kostuðu 2.160 kr.,
Niedlands minnir mig að þau heiti,
en þau eru gæðavara miðað við
verð. Binnig keypti ég tvennar
stuttbuxur fyrir 3ja og 5 ára, sem
kostuðu 1.220 kr., í mjög góðri
barnafataverslun á Vesturgötu 12.
Þar er einnig lipur afgreiðsla.
Ég skoðaði líka sumarbuxur og
gallabuxur í nokkrum verslunum.
Finnst mér skörin vera farin að
færast heldur betur upp í bekkinn
þegar svona fatnaður fyrir smá-
börn er á bilinu 1.500-1.800 kr.
Galladerhúfa á eins árs kostaði 610
kr. (Þetta er náttúrulega bilun!)
Ég endaði í Vöggunni, Laugaveg
12a, þar sem ég fékk mjög góða
afgreiðslu hjá nýjum eiganda og
verðlag ekki hátt.
Með sólbaðskveðju,I.H.“
Meðalkostnaður á mann á heim-
ili l.H. í maímánuði var 7800 kr.,
en aðeins eru tveir í heimili. „Ann-
að“ er rúmlega 80 þús. kr. eða
miklu hærra eins og segir i bréfinu.
Við þökkum I.H. fyrir bréfið og
sendum henni sumarkveðjur.
-A.BJ.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fuUrí ferð
Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.
1 . ,A /1 # M ¥ ■# W/ff "T/%/%
vvru Hd A/. IH.fVV,- 4 saman i ou i viku. Brottför alla fimmtudaga.
flugosbiii (VTKmMC FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580