Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. íþróttir Frábært kast hjá Vésteini - náði OL-lágmarki og átti stórkostlega kastseríu Kringlukastarinn sterki úr HSK, Vésteinn Hafsteinsson, náði mjög góð- um árangri á kastmóti sem fór fram á Selfossi í gær. Vésteinn sem sýndi það á Flugleiðamótinu að hann er í miklu stuði þessa dagana, gerði sér lítið fyrir og kastaði 64,30 m sem er hans næst besti árangur. Aðeins íslandsmet hans, 65,60 m, er betra. „Ég hef aldrei verið betri,“ sagði Vésteinn en hann sýndi mikið öryggi í köstum sínum og náði mjög góðri • Vésteinn Hatsteinsson er greinilega í góðu formi þessa dagana. Hér er hann í öflugu útkasti á Flugleiðamótinu DV-mynd S Dregið í Bikamum Dregið var Mjólkurbikamum í gær- kvöldi og drógust þá eftirfarandi lið saman: ÍR - Víkingur Grindavík - Selfoss Leiknir R. - ÍBV Reynir S. - Stjaman Leiftur Ó - KS Þróttur N./Huginn - Höttur/Einherji Sigurvegaramir úr þessum leikjum leika síðan í 16 liða úrslitum með 1. deildarliðunum. -SMJ kastseríu - líklega þeirri bestu sem íslendingur hefur náð en þrjú köst voru yfir 63 metra. Serían var þannig; 61,62 m, 64,12 m, 60,82 m, 63,58 m, og 64,30 m. Með þessu kasti er Vésteinn vel yfir ólympíulágmarkinu sem er 63 m. Hann þarf þó að ná lágmarkinu aftur á næsta ári. Um næstu helgi keppir Vésteinn með landsliðinu í Portúgal og verður spennandi að fylgj- ast með honum í keppni við Knut Hjeltnes fremsta kringlukastara Norðurlanda. A mótinu i gær varð Helgi Þór Helgason í 2. sæti, kastaði 48,16 m og Pétur Guðmundsson varð þriðji með 47,46. Pétur sigraði síðan í kúluvarpi, kastaði 17,25 m. Hildur Harðardóttir HSK sigraði í kúluvarpi kvenna, kast- aði 12,24 m. -SMJ Framarar hættir í körfuknattleik Körfuknattleiksdeildin lögð niður Á aðalfundi Fram í gærkvöldi var ákveðið að leggja körfuknattleiksdeild félagsins niður. Þetta kemur mönnum ekki svo á óvart því deildin hefur ver- ið starfrækt af leikmönnunum sjálfum undanfarin ár. Sem gefur að skilja er orðið mjög erfitt að halda því starfi áfram, sérstaklega þar sem nokkrir af leikmönnum félagsins höfðu hugsað sér til hreyfings. „Deildin mun ekki starfa áfram um óákveðinn tíma,“ sagði Bjöm Magn- ússon sem er einn þeirra leikmanna liðsins sem orðið hefur að standa í stjómunarstörfum. „Það er einfald- lega enginn gmndvöllur fyrir því að starfrækja deildina áfram. Enginn fæst til starfa í stjórn og þetta hefur allt lent á okkur leikmönnunum." Bjöm sagði að auðvitað væm það vonbrigði að þurfa að taka þessa ákvörðun sem væri tekin í algerri neyð. Meistara- flokkur félagsins hélt sæti sínu í Úrvalsdeildinni vegna fjölgunar í deildinni en sem kunnugt er þá töpuðu Framarar öllum sínum leikjum þar. Þá verða yngri flokkar félagsins einn- ig lagðir niðm-. „Þetta var eina ráðið í stöðunni og ég veit ekki hvort þetta var svo mikill missir. Yngri flokkar voru varla starf- ræktir lengur í deildinni," sagði Birgir Lúðvíksson formaður Fram um þessa ákvörðun. Þá kom það fram í máli Birgis að körfuknattleiksdeildin skuldar ekki neitt. Ekki er ljóst hvaða lið tekur sæti Fram i Úrvalsdeildinni en líklega verður það UBK. Þó hefur komið til tals að láta aðeins 8 lið leika í deild- inni á næsta ári. -SMJ • Jón Hjaltalín Magnússon og Matthías Á. Mathiesen takast í hendur eftir að sá síðarnefndi hafði veitt viðtöku gull merki HSÍ. DV-mynd GUh Lacoste mótiðá morgun Á morgun, miðvikudag, fer fram Lacoste-mótið i Grafarholti hjá Goliklúbbi Reykjavíkur. Bakhjarl- ar þessa móts eru umboðsaðilar Lacoste fyrirtækisins hér á landi sem er einkum þekkt fyrir fatnað sinn, gleraugu og snyrtivörur. Leikin verður punktakeppni, Stableford, 7/8 forgjöf, hámarks- gefin forgjöf 18. Skráning og pöntun á rástímum er í síma 82815 og 84735. Ræst verður út frá kl.10. Eriksen áfram í Sviss Danski landsliðsmaðurinn John Eriksen hefur framlengt samning sinn við svissneska félagið Ser- vette Genf til ársins 1990. Eriksen, sem kom síðastliðið haust til Genfar frá hollenska lið- inu Feyenoord, hefur skorað flest mörk allra í Sviss eða 28. -JÖG Ráðherra sæmdur heiðursmerki Þrír menn voru sæmdir heiðursmerkj- um Handkhattleikssambands Islands eftir síðustu viðureign íslendinga og Dana í fyrrakvöld. Daninn Erik Larsen, ráðamaður í þarlendu handknattleikssambandi og Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð- herra, fengu báðir gullmerki í barminn en Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari ársins í V-Þýskalandi, hlaut hins veg- ar silfurmerki. Erik Larsen hefur árum saman verið sendiherra íslenskra handknattleiks- manna í Evrópu ef svo má að orði komast. Hann hefur margsinnis komið á tengslum milli Islands og annarra þjóða á vettvangi handnattleiksins og með því móti gert íþróttinni ómetan- legt gagn hér heima. Matthías Á. Mathiesen hefur á síð- ustu árum unnið ötullega að fram- gangi handknattleiksins hér á íslandi og þá sérlega hvað varðar framkvæmd hugmyndar um HM hérlendis á næsta ártatug. Jóhann Ingi Gunnarsson hefur á síð- ustu árum verið útvörður íslenska handboltans í einu mesta ríki þeirrar íþróttar í heiminum, V-Þýskalandi. Störf hans í þágu handknattleiksins á erlendum vettvangi hafa beint sjónum manna til Islands og að handknatt- leiknum sem þar er stundaður. Það er því ljóst af ofantöldu að merk- in munu sóma sér vel á barmi þessara þriggja heiðursmanna. -JÖG • Þjálfari og leikmaður maímánaðar, lan Menm - Guðni Bergsson o Eins og fram kom í blaðinu fyrir skemmstu var ákveðið að taka upp þau nýmæli hjá DV að velja leikmann og þjálf- ara fyrir ákveðin tímabil á yfirstandandi keppnismisseri. Fyrsta tímaskeiðið, sem í hlut á, er maimánuður og knattspyrnumenn þess mánaðar voru báðið kjömir úr röðum Valsmanna. Þetta em kempurnar Guðni Bergsson, sem leikmaður, en Ian Ross sem þjálfari. Eins og ófáum er kunnugt um unnu Valsmenn Reykjavíkurmótið í knatt- spymu með glæsibrag þar sem þeir fengu ekki á sig mark. Þá sátu þeir í öðm sæti íslandsmótsins við lok maímánaðar eftir glæstan sigur á ÍBK, 7-1, og jafntefli við Víði í Garði, 1-1. Guðni Bergsson h'efur verið einn burð- arása Valsliðsins það sem af er þessu leikári og Ian Ross hefur stefht markvisst að ágætum árangri með þjálfun sinni og stjóm. I spjalli við DV, skömmu eftir að þeim Guðna og Ross vom kynntar niðurstöð- umar í kjörinu, þökkuðu báðir liðsheild- inni úrslitin: „Það er mikill heiður að vera kjörinn leikmaður mánaðarins með hliðsjón af öllum þeim mönnum sem spila í fyrstu deildinni,“ sagði Guðni Bergsson. „Nafngiftina á ég þó öðm fremur að þakka félögum mínum í Valsliðinu. Ég hef fundið mig mjög vel í þeirra hópi enda höfum við það að markmiði að leika hver

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.