Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. 31 Sandkorn Flugbókasafn Háskólans Það styttist í að útibú Há- skólans á Akureyri verði opnað og að kennsla hcfjist þar. Meðal fyrstu kennslu- greina er hjúkrunarfræði og fer vel á því þar sem Akur- eyringarhafa lengi staðið framarlega í hvers konar hjúkrun. Aftur á móti or ckki reiknað með mjög mörgum nemendum til að byrja með og því þykir úrhendis að hafa mikið kennaralið yfir þessu verkefni einu. Þess vegna á að láta kennara úr Háskólan- um í Reykjavík fljúga norður daglega. Nýi Háskólinn verð- ur þar af leiðandi meira en það, hann verður líka flug- skóli en þá aðallega fyrir kennarana. Nú vakna margar spurning- ar vegna þessa nýmælis í skólahaldi hér á landi og þar á meðal spyrja menn hvernig fari með bóklegar heimildir hjúkrunarfræðinema. Verður flogið með bókasafn Háskól- . ans norður á hverjum degi og það gert að flugbókasafni þar með? Það væri svo sem ekkert vitlausara en ýmislegt annað. Framsóknar- dropar á Isafirði Ný kaffistofa hefur verið opnuð vestur á Isafirði, svo gott sem á skrifstofu Fram- sóknarflokksins við Hafnar- stræti. Hvað sem kaffistofan annars heitir kallar V est- firska fréttablaðið hana Tíu dropa. Þetta er auðvitað tákn- rænt eins og allt á þessum stjórnarmyndunartímum. Fólk fær sem sagt einn dropa á hvern væntanlegan ráð- herra og fer auðvitað vel á því að skála í kaffi fyrir nýrri rík- isstjórn sem er ekki fædd. Annars er þessi kaffistofa fyrir fleiri hluta sakir merki- leg því þarna verður boðið upp á heimabakstur með kaffinu en oinnig má drekka te eða ávaxtasafa. Gestir geta því látið alveg eins og heima hjá sér án þess að vera þar og má nærri geta að ýmsir verða fegnirþeirri nýbreytni ein- stöku sinnum. Forstöðumað- urinn er ekki forstöðumaður Forstöðumaður Bifreiðacft- irlits ríkisins er ekki forstöðu- maður Bifreiðaeftirlits ríkisins. Þetta er nýjasta nýtt I málefnum þessarar merku stofnunar sem á að þjóna bif- . reiðaeigendum en er hætt því 'og logar þess í stað stafnanna á milli í illdeilum. Guðni Karlsson varð for- stöðumaður Bifreiðaeftirlits- ins fyrir mörgum árum en skömmu eftir síðustu áramót var starfi hans skipt og Hauk- ur Ingibergsson varð fram- kvæmdastjóri sem sér um fjármál og daglegan rekstur. Guðni stjórnar síðan fámennri tæknideild en heldur engu að síður forstöðumannstitlinum þótt það þýði sem sagt alls ekki að hann sé forstöðumað- ur. Pólitísk knattspyma Einum nýju þingmannanna varð heldur en ekki á í mess- unni á sunnudaginn. Þing- maðurinn er rétt nýstiginn upp úr kosningasigrinum og er tekinn til við fyrri iðju. sem er að skora mörk í knatt- spyrnu. Þetta hefði svo sem getað verið í lagi ef þingmað- urinn hefði ekki byrjað á því að skora hjá besta knatt- spyrnuliðinu í sínu eigin kjördæmi, sem sé Skagaliðinu í A. Þetta var sem sagt Ingi Bjöm Albertsson borgara- flokksmaður sem skoraði fyrir Val í Reykjavík. Alltfyrir Davíð Maðurinn sem borgar skatt- inn, Þorvaldur Guðmundsson eða Tolli í Síld og fiski, er búinn að kaupa sér nýjan bíl. Hann seldi Benzinn og keypti Cadillac eins og Davíð Odds- son er nýbúinn að koma sér upp af því að hann á að vera eitthvað ódýrari en Benz. Þeg- arTolli var spurður hvers vegna hann væri kominn á sams konar bíl og borgarstjór- inn svaraði hann: Ja, hvað gerir maður ekki fyrir hann Davíð? Sérkennilegur sjúkdómur Sú saga kemur að vestan að þar hafi á dögunum fundist sérkennilegur sjúkdómur sem olli sjúklingnum verulegum ama og aðstandendum þung- um áhyggjum en var svo skjótlæknaður að það á sér varla margar hliðstæður. Sjúklingurinn er þekktur fyrir að fá sér nokkuð oft og mikið neðan í því en eftir eina rispuna var hann greinilega orðinn verr á sig kominn en vanalega og gat nú með engu móti gert sig skiljanlegan. Hjúkrunarkona staðarins var kvödd á vettvang og leist henni þannig á að sjúklingur- inn hefði sennilega fengið snert af heilablóðfalli og að talfærin væru af þeim sökum lömuð. Var nú hringt í lækni sem kom með eldingarhraða frá næstu læknamiðstöð. Læknir- inn byrjaði á því að opna munn sjúklingsins - og viti menn. Samstundis varð ljóst að sjúklingurinn hafði sett fölsku tennurnar þannig upp í sig síðast að gómarnir víxl- uðust. Læknirinn tók því gómana út úr manninurn og setti þá rétt upp í hann aftur og þar með hafði sjúklingur- inn fengið fullan bata af þessum óvenjulega sjúkdómi. Jón Baldvin allurí 13 Glöggir menn og athugulir hafa nú komist að því, að happatala Jóns Baldvins Hannibalssonar verkstjóra hlýturað vera 13 - eða að hann trúi því að minnsta kosti sjálfur. Þannigermáliðvaxið að síminn heima hjá Jóni Baldvini er með númerinu 21-513, skrifstofa hans í Skjaldbreið, einu útibúa Al- þingis, er númer 13 og þar er innanhússsíminn númer 513. Jón Baldvin er fæddur 1939 en eins og mjög margir vita er þrisvar 13 samtals 39. Keypti eigin fisk af öðrum Sjólastöðin í Hafnarfirði var með helstu kaupendum á fiski á fyrsta uppboði Fiskmarkað- arins hf. þar syðra. Það hefði ekki verið svo merkilegt ef ekki hefði verið eingöngu á boðstólum afli úr togaranum Otri sem Sjólastöðin gerir út. I Fiskifréttum segir fram- kvæmdastjórinn, Haraldur Jónsson, að þeir hafi greitt hærra verð fyrir fiskinn en ef þeir hefðu landað honum beint í eigin vinnslu. I sama blaði segir aftur á móti Gísli Geirsson hjá Sjávarfiski hf. að hann hafi fengið fiskinn á uppboðinu á lægra verði en fyrirtækið hafi greitt að und- anförnu. Þannig virðist uppboðið hafa leitt menn sam- an á miðri leið í fiskverðinu. Umsjón: Herbert Guómundsson. Fréttir Pálína komin heim á Skarðsá Jón G. Haukssan, DV, Akureyri „Það er nokkuð síðan ég kom af sjúkrahúsinu. Ég veit ekki til að lækn- amir hafi gert neitt við mig í vetur en áður var ég skorin í báðar mjaðm- ir fyrir sunnan," sagði Pálína Konr- áðsdóttir á Skarðsá í Skagafirði. Hún er eina konan á íslandi sem býr í torf- bæ. Pálína segist eingöngu vera með hross núna. „Það er ekki minn bú- skapur. Það var allt fé skorið niður síðastliðið haust eftir að þeir fundu riðu í einni kindinni." Pálína er með um 20 hross og finnst henni það ekki stórbrotinn búskapur en unir sér vel á Skarðsá. „Þetta er búið að vera gott vor og ég varð að komast hingað heim af sjúkrahúsinu." Kökuát í góðu veðri Örtröð mikil var við opnun á nýju konditori og bakaríi Sveins bakara við Álfabakka í Mjóddinni. Á sunnudag opnaði Sveinn hundrað og fimmtíu fermetra verslun yfir bak- aríinu og þar er bæði hægt að kaupa vörana og taka með sér heim eða setj- ast niður og snæða á staðnum. Virðast ríðskiptavinir kunna vel að meta ný- breytnina og setið var jafnt úti undir bera lofti sem inni. allan sunnudaginn. -baj DV-mynd GTK NÝTT SÍMANÚMER 62-17-80 5UNUR Ef þig vantar tjald þá höfum við það, einnig bakpoka, svefnpoka, grill, dýnur o.fl. o.fl. —II — EYJASLÓÐ 7 - SÍMI 621780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.