Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. I gærkvöldi DV Guðjón Pedersen leikari: Auglýsingamar skemmtilegastar Ég hlustaði ekkert á útvarp í gær nema þessi diskótek. sem ég kalla svo. Ég veit ekki hvort þetta var rás 2. Bylgjan eða Stjaman. finnst það ekki skipta niáli. Ég er vanur að hlusta á fréttimar á gömlu gufunni og breytti ekki út af þeirri venju í gær. Ég sé ekki Stöð 2 og get því ekki tjáð mig um efnið þar. Hins vegar horfði ég á fréttir í sjónvarpinu. geri það alltaf. það er svona fastur punktur í tilverunni. Ég sá líka auglýsingamar sem mér finnst eitthvert skemmtilegasta eínið í sjónvarpinu. ég hef mjög gaman af jjeim. Ég missti því miður af þessu norska leikriti. Viltu dansa? Það eru Guðjón Pedersen. oft góðar myndir á mánudagskvöld- um. Ég sá með öðm auganum viðtalið hans Ögmundar Jónassonar við sænsku konungshjónin. Það var hálfflippað, ég býst ekki við að fylgj- ast með þegar þau koma hingað í dag. Yfirleitt horfi ég ekki mikið á sjón- varp, ekki nema fréttir og auglýsing- ar. Og útvarpið er yfirleitt bara í gangi. Það skiptir ekki öllu hvað í því er. Þessar nýju útvarpsstöðvar hafa þannig áhrif á mig að ég er farinn að hafa meira gaman af því hlusta á mínar eigin plötur, hlusta á það sem ég vil heyra, ekki bara sama lagið daginn út og daginn inn. Barnaskór í miklu litaúr- vali, bæði tau og leður. Verð frá 400 kr. smáskór Sérverslun með barnaskó Skólavörðustig Gb, bakhlið nýja hússins. Gengið inn frá Skólavörðustíg. Póstsendum. S. 622812. ATH! Opið á laugardögum kl. 18-12 í júni. Andlát Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur. Stóragerði 10. lést í Landakotsspítala laugardaginn 20. þ.m. Helga Karlsdóttir, Brúnalandi 2. lést í Landakotsspítala 21. júní. Guðmunda Eyjólfsdóttir, Asvalla- götu 63. andaðist í Borgarspítalanum að kvöldi 21. júní. Auður Vigfúsdóttir hárgreiðslu- meistari. Seiðakvísl 25. áður til heimilis að Vogalandi 16. lést í Landakotsspítala þann 20. júní. Ragnar Magnússon, Fögrukinn 25. Hafnarfirði. lést að kvöldi 18. júní. Sölvi M. Sigurðsson frá Undhóli í Skagafirði. Bjarkargötu 8. Reykja- vík. lést hinn 20. þessa mánaðar. Ferðalög Gönguklúbburinn Hana nú íKópavogi. Á hverjum laugardegi allan ársins hring fer Göngúklúbbur Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi í sitt vikulega bæjarrölt. Það er komið saman að Digranesvegi 12 kl. 10 f.h.. drukkið molakaffi og rabbað saman og síðan gengið um bæinn í klukku- tíma, Þessi laugardagsganga er ekki eingöngu ætluð fyrir fyrir félaga í Hana nú heldur eru allir Kópavogsbúar vel- komnir í gönguna. 1 laugardagsgöngunum er rölt um bæinn og margir Kópavogsbúar hafa kynnst bænum í fyrsta sinn í göngun- um. 1 laugardagsgöngunni er gengið í hægðum sínum og hæfir hún vel fjölskyld- um og oft ganga tvær eða þrjár kynslóðir. Aðstandendur Hana nú vilja hvetja íbúa í Kópavogi - unga og aldna - til að reyna þennan einfalda og skemmtilega tóm- stundakost. Tapað - Fundið Pils og peysa tapaðist Hvítt stutt pils og peysa tapaðist í verslun- arferð um Laugaveginn. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 41907. Herdís týnd Herdís er grásvört læða og var með gula ól þegar hún hvarf frá heimili sínu að Grettisgötu fyrir tveimur mánuðum. Hún gæti verið komin að goti núna. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um ferð- ir hennar eða afdrif eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 29758. Tilkyrmingar Jónsmessutónleikar Dóm- kórsins. í dag, 23. júní, mun Dómkórinn í Reykja- vík halda Jónsmessutónleika í Dómkirkj- ST. 23-31 Verð 890,- Ársæll Gunnarsson lést 15. júní sl. Hann fæddist í Reykjavík 5. júlí 1957. Foreldrar hans voru hjónin Gunnar M. Björnsson. sem nú er látinn. og Erla Arsælsdóttir. Ársæll hóf nám í loftskeytafræði og að því námi loknu hóf hann störf hjá ritsímanum og vann þar óslitið til vors 1987. Eftirlif- andi eiginkona hans er Erla Inga Skarphéðinsdóttir. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. LTtför Ar- sæls verður gerð frá Garðakirkiu í dag kl. 13.30. Lilja Rannveig Bjarnadóttir, Skúlagötu 76. er lést 12. þessa mán- aðar. verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju í dag. þriðjudaginn 23. júní. kl. 13.30. Jóhannes H. Guðjónsson frá Pat- reksfirði. Bólstaðarhlíð 32. Reykja- vík. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag. þriðjudaginn 23. júní. kl. 15. Útför Guðgeirs Jónssonar bók- bindara. sem lést 7. júní sl.. fer fram frá Dómkirkjunni þann 24. júní kl. 13. Sigfús Jóhannsson, Sléttahrauni 15. Hafnarfirði. verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag. þriðjudaginn 23. júní kl. 15. Mabel Sigurjónsson, Hátúni lOb. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni 29. júní kl. 13.30. Jens Vitkov, Keldgárdvej 113. 9600 AARS. Danmörku. andaðist á heim- ili sínu 21. júní. Jarðarförin fer fram 23. júní. Sumarferð Húnvetningafé- lagsins Húnvetningafélapið í Revkjavík fer í sína árlegu sumarferð laugardaginn 27. júni. Brottför verður kl. 08 frá félagsheimilinu. Skeifunni 17. Ekið um bvggðir Borgar- fjarðar og kvöldverður snæddur í Borgar- nesi. Fararstjóri er Guðmundur Gáðbrandsson. Allar upplýsingar um ferð- irnar gefnar í síma 671673. Þátttaka tilkynnist fyrir 24. júní. Sumarferðir frá Neskirkju um Strandir og til Þýskalands Að þessu sinni hefur Strandasýsla orðið fyrir valinu sem innanlandsferð í ár. Farn- ar verða tvær fjögurra daga ferðir. sú fyrri 16. júlí og hinn síðari 22. júlí. Fyrstu nótt- ina verður kvöldverður og gisting á Bifröst. á Laugarhóli í Bjarnarfirði aðra nóttina. þá þriðju er aftur gist á Laugar- hóli. Séð er fyrir mat og kaffi alla ferðina svo að menn þurfa ekki að taka annað með sér en góða skapið og sundfötin. því að auðvitað bregða allir sér í sundlaug Guðmundar hins góða. Lagt verður upp í Þýskalandsferðina 20. ágúst og gist í Ham- borg í fjórar nætur. því næst verður gist í miðaldarbænum Goslar og farið þaðan m.a. að austur-þýsku landamærunum og til háskólabæjarins Göttingen. Eftir 6 gistinætur liggur leiðin til Delmenhorst sem er smábær sunnan við Bremen. Allar nánari upplýsingar um ferðirnar veita kirkjuvörður og sr. Frank M. Halldórsson í viðtalstímanum. Jónsmessuganga Útivistar Þriðjudag 23. júní: Létt áhugaverð leið um Sog, Djúpavatn og Ketilstíg að hverasvæðum í Krísuvík. Gott útsýni af Sveifluhálsi. Brottför kl. 20 frá BSÍ, bensíns. Verð kr. 600. Fararstjór- ar: Kristján M. Baldursson og Þorleifur Guðmundsson. Miðvikudagur 24. júní: kl. 8 Þórsmörk - Goðaland. Sumardvöl. kl. 20 Reykjaborg - Hafravatn. Létt ganga í Mosfellssveit. Verð kr. 400, frítt f. börn m. fullorðnum. Brottfor frá BSÍ, bensíns. Helgarferðir 26.-28. júní. 1. Þórsmörk - Goðaland. Gist í Otivistar- skálunum Básum. Gönguferðir við allra hæfi. 2. Vestmannaeyjar. Sigling eða fiug. Svefnpokagisting. Gönguferðir um Heima- ey. Bátasigling kringum eyjuna. 3. Húsafell - Eiriksjökull. Tjaldgisting. Gengið á jökulinn og hellamir Surtshelfir og Stefánshellir skoðaðir með meiru. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar 14606 ög 23732. Sjáumst. Útivist. dóttir sem fjallar um framtíð hjónabands- ins. Auk þess verður greinargerð frá kirkjufræðslunefnd um hjúskaparfræðslu í heildarmynd kirkjufræðslunnar. Settur biskup, sr. Sigurður Guðmundsson, mun stýra prestastefnunni. Prestastefnan hofst með guðsþjónustu í Borgarneskirkju í morgun. Næstu daga munu svo prestar landsins taka þátt í kjörhópum sem fjalla um efni sem tengist aðalumræðuefninu. Prestastefnunni lýkur á fimmtudagskvöld t Hallgrímskirkju í Saurbæ. unni og hefjast þeir kl. 22. Ef veður leyfir syngur kórinn fyrst fyrir utan kirkjuna nokkur íslensk þjóðlög. Jónsmessuhátíð við Norræna húsið I kvöld verður að vanda haldin Jóns- messuhátíð við Norræna húsið og standa norrænu vinafélögin að henni ásamt hús- inu. Þarna verður mikið um dýrðir. Skólahljómsveit Kópavogs leikur, stúlknakór frá Opsal í Noregi syngur, keppt verður í pokahlaupi og reiptogi og dansað kringum Jónsmessubál. Við húsið verður reist maístöng að norrænum sið. Dreift verður blöðum með ýmsum textum, íslenskum og norrænum, og er vonast til þess að fólk taki hressilega undir í íjölda- söng. Ekki má heldur gleyma Færeyinga- félaginu en félagar í því mæta í þjóðbúningum og stíga færeyskan dans. Enginn ætti heldur að þurfa að svelta því að þarna verða seldar pylsur og svala- drykkir og geta þeir sem vilja grillað pylsurnar sjálfír. Kaífistofa Norræna hússins verður líka opin svo að þeir sem ekki hafa gaman af að sjá sjálfir um mat- seldina geta leitað þangað. Skemmtunin hefst kl. 19.30 með því að skólahljómsveit- in leikur undir stjórn Björns Guðjónsson- ar og síðan rekur hvert skemmtiatriðið annað. Allir eru velkomnir. Hátíðafundur Steinsteypu- nefndar verður haldinn í Kristalsal Hótel Loftleiða í dag, 23. júní, og hefst hann kl. 13. Tilefni fundarins er 20 ára afmæli nefndarinnar. Erindi flytur dr. Gunnar Idorn, sen er fremsti alkalisérfræðingur í heiminum í dag. Mun hann fjalla um alkalívandamál í heiminum nú á dögum. Ennfremur verða störf nefndarinnar kynnt. Hjónaband í þjóðfélagi sam- tímans Prestastefnan 1987 verður haldin í Borgar- nesi dagana 23. 25. júní. Að þessu sinni er aðalefni prestastefnunnar hjónaband í samfélagi samtímans og eru framsögu- menn 3, sr. Árni Pálsson, sem ijallar um kirkjuna og hjónabandið, dr. Bjarni Sig- urðsson, sem ræðir um þjóðfélag og hjónaband, og sr. Solveig Lára Guðmunds- SÚÍU & SÝNINGARTJALO SandAftTÚN 26 S. 626644 0PIÐ AUA 0A6A FRÁ 9-J NíMA SUNNUD. Ný þjónusta hjá G.J. Gísli .Jónsson & Co. hefur tekið upp nýja þjónustu til að auðvelda fólki að eignast nýjan tjaldvagn eða hjólhýsi, að laka gam- alt upp í nýtt. í þessu skyni hafa þeir reist 300 fermetra sUílgrindarhús -sem staðsutt er að Borgartúni 26 (lóðin bak við Bíla- naust). Þarna sýna þeir og selja hjólhýsi tjaldvagna' fjórhjól og kerrur alls kon- ar, bæði nýtt og notaö. Þá laka þeir einnig að sér að selja slíka hluti f'yrir l'ólk gegn sölulaunum. Síðan er hugmyndin aö nýla húsið í vetur.sem geymslu fyrir hjóUtýsi, tjaldvagna og fleira. Þriðju norrænu varmadælu- dagarnir standa nú yfir í Reykjavík, nánar tiltekið í Borgartúni 6. Þeir fyrstu voru haldnir í Þrándheimi 1982 og aðrir í Stokkhólmi 1985. Þessi ráðstefna er haldin af sam- starfshópi um varmadælur sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og sér Orkustofnun um undirbúninginn fyrir hönd íslands. Ráðstefnugestir verða um 170, þar af 140 annars staðar af Norður- löndum. Varmadælur nýta ýmsa orkugjafa sem ekki er unnt að nýta á annan hátt, t.d. volgrur, hita sjávar og grunnvatns. Þær eru mikið notaðar annars staðar á Norðurlöndunum til upphitun húsa og í iðnaði. Alls verða flutt 28 erindi og meðal efnis, sem fjallað verður um, eru varma- dælur í fiskeldi, hitaveitum og við nýtingu á varma úr reyk. Sérstaklega verða tekin fyrir áhrif kælimiðla (Freon) á umhverfi en varmdælur vinna eftir sömu lögmálum og kælivélar. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Auður Vigfúsdóttir hárgreiðslumeistari, Seiðakvísl 25, áður til heimilis að Vogalandi 16, lést á Landakotsspítala þann 20. júní. Jarðarförin auglýst síðar. F.h. aðstandenda, Jónas Þórðarson Spakmæ3ið Betra er að falla með sæmd en sigra með svikum. - Máltæki indíána

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.