Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 11, JÚLÍ 1987. Fréttir Svínarrfm fara í Vamarliðið - hátfsvínslegir viðskiptahættir „Þetta eru nú eiginlega hálfsvínsleg- ir viðskiptahættir," sagði einn þeirra kjötkaupmanna sem hafa pantað heila svínaskrokka hjá Sláturfélaginu en svo fengið skrokkana rifjalausa. „Það hefur aldrei verið hægt að fá svínarif- in ein og sér hjá Sláturfélaginu en það kastar tólfunum þegar skrokkamir koma riíjalausir því svínarif eru sér- staklega vinsæll grillmatur svona yfir hásumarið." Ástæða þess að Sláturfélagsmenn brugðu á það ráð að fjarlægja svínarif- in áður en skrokkamir em seldir, er einföld: I mars sl. gerði Sláturfélagið sölusamning við Vamarliðið um sölu á fjörutíu tonnum af kýrkjöti og fimm tonnum af svínarifjum á einu ári. Slát- urfélagið þarf því að verða sér úti um hundmð kílóa af svínarifjum í hverri viku. „Við slátrum svona u.þ.b. hundrað og sjötíu svínum á viku en þurfum að fá rif úr sjötíu til áttatíu svínum. Við tökum því rifin úr tæpum helmingi þeirra svína sem við slátrum," sagði Steinþór Skúlason, framleiðslustjóri hjá Sláturfélaginu. „Það er að vísu rétt að svínarif em vinsæll hluti af svíninu en kaupmenn ættu samt ekki að tapa á því að kaupa af okkur rifjalaus svín, enda er heild- söluverðið á heilum og hálfúm svínum 267 krónur kg en heildsöluverðið á svínariíjum ekki nema 178 krónur kg. Ég get hins vegar skilið að menn séu óánægðir með það að fá ekki þennan vinsæla grillmat um þetta leyti árs,“ sagði Steinþór. Því má svo bæta hér við að verð á svínakjöti er frjálst, þannig að Slátur- félagið ákveður sjálft sitt verð í þessum efnum. Það má því kannski segja að þeir Sláturfélagsmenn hafi ráð undir rifi hverju. -KGK Svinarifin fara beint til vamarliðsins. Reiðhöllin vígð með mikilli viðhöfn Reiðhöllin í Víðidalnum var vigð með mikilli viðhöfn og lúðrablæstri í gærkvöldi. Hestamenn sýndu ýmis at- riði hestamennskunnar og ræður vom fluttar. Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra óskaði hestamönnum til hamingju með Reiðhöllina, Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri flutti er- indi og Sigurður J. Líndal, formaður stjómar Reiðhallarinnar hf., rakti sögu hallarinnar. Böm úr Reiðskólan- um í Geldingaholti sýndu hæfhi sína undir stjóm Rosemarie Þorleifsdóttur, landslið íslands í hestaíþróttum reið um svæðið með jóreyk, Sigurbjöm Bárðarson og Barbara Meyer vom með glæfrareiðatriði og stóðhestar frá Stóðhestastöð Búnaðarfélags Islands vom kynntir. Einnig sýndu efstu ungl- ingar frá síðasta landsmóti hesta- manna fáguð reiðatriði og hindmna- rstökk var sýnt. Félag tamninga- manna reið um svæðið og flokkur fagurra kvenna sýndi á sér betri hlið- ina. Einnig var meira um dýrðir hjá hestamönnum. Reiðhöllin er því tekin í notkun og mun meðal annars hýsa landbúnaðarsýningu dagana 14.-20. ágúst næstkomandi. Framkvæmda- stjóri Reiðhallar hf. er Gylfi Geirsson en umsjónamaður Garðar Hreinsson. -E.J. Meint kynferðisafbrot hjóna: Upphafið í Svefneyjum - fmmhaldið í Hafharflrði Umræðumar um meint kynferðia- afbrot hjóna í Hafiiarfirði hafa eðlilega vakið mikla athygli. Mæð- umar, sem DV birtí viðtal við 8Íðastiiðinn þriðjudag, sögðu raeðal annars aó þær heföu gefið skýrslur hjá RannBÓknarlögreglu ríkisins. Lögmaður hjónanna, sem grunuð em um kynferðisafbrotin, segir hins vegar að það sé ekki rétt, foreldram- ir hafi aldrei verið kallaðir til rannsóknarlögreglu. Erfitt er að fa upplýsingar hjá rannsóknarlögregl- unni um málið svo þar stangast tvær fullyrðingar á. Hitt er aftur Ijóst að maður situr í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls. Kona mannsins hefúr viðurkennt að hafa tekið myndir af stúlkunum svo það er ekki myndanna vegna sem maðurinn er í gæsluvarðhaldi. I umfjöllun um þetta viðkvæma mál hefur verið getið mikið um sum- ardvalarheimilið sem hjónin ráku í Svefheyjum sumarið 1985. Sam- kvæmt því sem næst verður komist er upphaf málsins einmitt í Svefiteyj- um. Myndimar komu til framköllun- ar löngu síðar, eða um mánaðamótin apríl maí á þessu ári. Á þeim tíma sem leið á milli þess að dvölinni í Svefiieyjum lauk og þar til myndim- ar komu fram var mikið samband á milli fjölskyldna annarrar stúlkunn- ar og hjónanna. Reyndar er móðir stúikunnar og konan æskuvinkonur. Hjónin gættu oft stúikunnar á heim- ili sínu í Hafnarfirði ef forcldrar hennar þurftu á gæslu fyrir hana aö halda. Myndimar umræddu voru teknar á heimili þeirra í Hafnarfirði. Það hafa ekki allir verið sáttir við að fjöfmiðlar fjalli um mál sem þetta. En hefur umræðan áhrif? Móðir, sem áttí tvö böm í Svefheyjum, sagði í samtali við DV að á miðvikudags- morgun hefði verið hringt í sig frá Félagsmálastofhun og henni boðin aðstoð vegna bama sinna. Móðirin segist aldrei hafa leitað tíl Félags- málastofriunar vegna bama sinna, hvorki vegna dvalar þeirra í Svefn- eyjum né af öðra tilefhi. Þessi upphringing frá Félagsmálastofriun kemur daginn eftir að frásögn mæðr- anna tveggja birtist í DV. Sú móðir segir að böm sín hafi verið afar á- nægð með dvölina í Svefneyjum en eftir að þetta mál kom upp hafí hún spurt öðruvísi en áður um dvöhna og hafi eldra bam sitt sagst hafa séð hjónin uppi í rúmi hafandi samfarir. -sme Verðbólga 19 % í ár - segir Þorsteinn Pálsson Stjómvöld gera ráð fyrir að verð- bólga á þessu ári verði 19 prósent. Á næsta ári er vonast til að hún verði 10 prósent. Frá þessu skýrði Þor- steinn Pálsson forsætisráðherra á fundi með blaðamönnum er bráða- birgðalög um efhahagsaðgerðir ríkisstjómarinnar vora kynnt í gær- morgun. Þjóðhagsstofnun áætlaði í maí- mánuði að verðbólgan í ár yrði á bilinu 13 tíl 15 prósent. Þorsteinn Pálsson sagði ennfrem- ur á blaðamannafundinum að gert væri ráð fyrir því að jöfhuður næðist í viðskiptum við útlönd á þessu ári. -KMU Rúmlega 180 fjóriijólakæiiir „Þetta var hrein og bein plága fyrir nokkru en sem betur fer hefúr dregið úr þessu og ég held að fjórhjólaæðið sé liðið undir lok. Hins vegar er það ljóst að ríkisvaldið tók ekki nógu snemma á þessu,“ sagði lögreglumað- ur úti á landi þegar DV innti hann eftir hvemig gengi að fást við fjórhjól í umdæminu. Af samtölum við lögreglumenn í stærstu kaupstöðum landsins má ráða að yfir 180 kærur vegna fjórhjóla hafi borist frá því í vor. Gera má ráð fyrir því að einhverjar kærur hafi auk þessa komið inn á borð tíl lögreglumanna á smærri stöðum. Lögreglumönnum ber þó flestum saman um að kærumar séu þó minni hluti afskiptanna. Meira sé um að þeir hafi afskipti af fjórhjólum, áminni menn eða leysi mál á staðnum. Lögreglumenn sögðu að fjórhjóla- menn létu sig oftast hverfa áður en lögreglan næði að komast á vettvang og þó lögreglan kæmist á vettvang víluðu sumir þeirra ekki fyrir sér að stinga þá af. Það væri ójafn leikur, fjórhjólamenn keyrðu út í torfærur og lögreglan gæti ekki fylgt þeim eftir. Lögreglumenn vora almennt sam- mála um það að fjórhjólaæðið væri runnið af mönnum. „Um leið og þetta var tekið föstum tökum minnkuðu spjöllin," sagði Karl Hermannsson í Keflavík og gat þess að verið væri að leita að svæði fyrir fjórhjól til að vera á. „Það hefði aldrei átt að hleypa þess- um tækjum inn í landið. Þetta er á við 10 rollur í gróðureyðingu," sagði lögreglumaður úti á landi en flestir lögreglumennimir sögðu að hjólin heföu valdið umtalsverðum náttúru- spjöllum. Var lögreglan á því að strangar reglur þyrfti að setja um notkun hjólanna og leyfa þau aðeins á ákveðnum svæðum. Þó að afskipti lögreglunnar af fjór- hjólum hafi verið misjafhlega mikil eftir byggðarlögum þá var það aðeins í Vestmannaeyjum sem engin vand- ræði höfðu verið. „Hér er leiga með 6 hjól og hefur ekki komið til vand- ræða. Þeir gerðu braut um nýja hraunið og hafa ekki farið út fyrir það og við höfum yfir engu að kvarta,“ sagði lögreglumaður í Vestmannaeyj- um. -JFJ Kostar rúmar 43 kr. að láta vekja sig - hækkun um tæp 140% „Skýringin á þessari miklu hækkun er sú að þessi þjónusta var áður langt undir kostnaðarverði en nú, þegar vekja þarf að meðaltali þúsund manns á morgni, þarf að hafa fjóra starfs- krafta í þessu eingöngu, og álagið er mikið,“ sagði Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Pósts og síma, um hækk- un sem hefur orðið á þeirri þjónustu Landsímans að vekja fólk með sím- hringingu á morgnana. Gjaldið hækkaði um tæp 140% um mánaða- mótin, úr 18,45 kr. í 43,75 kr. Jafnffamt var tekin upp sú nýbreytni að bjóða upp á eins konar pakka en þá era menn vaktir á hveijum morgni í mán- uð og borga fyrir það 750 krónur. „Hins vegar vita ekki margir af þeim möguleikum sem stafræna símakerfið bíður upp á,“ sagði Jóhann. „Þeir sem hafa sex stafa símanúmer og eru með takkasíma, sem hefur takkana stjömu og ferhyming, geta látið vekja sig á mun ódýrari hátt. í stuttu máli er að- ferðin þannig: Beðið er eftir són og þá er stimpluð stjama síðan talan 55 og loks aftur stjama. Á eftir því er stimplað inn hvenær síminn á að hringja, segjum klukkan hálfatta að morgni, þá er sett inn talan 0730 og á eftir því er ýtt á takkann með fer- hymingnum á. Þá kemur símsvari sem staðfestir að skilaboðin séu móttekin. Síðan hringir síminn á réttum tíma Að nýta sér þetta sjálfvirka kerfi kost- ar ekki nema 9,75 krónur.“ Ýmsar aðrar gjaldskrárbreytingar urðu hjá Pósti og síma um mánaða- mótin og hækkuðu gjöld fyrir þjónustu að meðaltali um 9,5%. Sem dæmi um breytingar á verði símtala má nefna að 3 mínútna símtal á staðartaxta, sem áður kostaði 1,98 kr. að degi til, kostar nú 2,34 kr. Utan dagtaxta, eftir kl. 18.00, kostar jafn- langt símtal 1,95 kr. en kostaði áður 1,32 kr. Mínútugjald til og frá sjálfvirka far- símakerfinu verður kr. 7,80. Ársfjórð- ungsgjald fyrir síma hækkar úr 585 kr. í 641 kr. Eru ffamangreind gjöld, utan vakningargjaldsins, án sölu- skatts. -BTH Ráðstefna um öiyggismál Mikil umræða hefur verið undanfarin ár um aukin flotaumsvif, tæknilega þróun og stefriubreytingar á sviði sjó- hemaðar á norðurhöfum. Þessi umræða hefur verið mest í Bandaríkj- unum og á Norðurlöndum og var m.a. haldin ráðstefna um þessi mál á vegum Harvard háskóla í Bandaríkjunum í ágúst 1985. Dagana 7.-10. ágúst nk. mun Center for intemational affairs við Harvard háskóla halda aðra ráðstefnuna um þessi mál og verður hún haldin hér á landi í samvinnu við Félagsvísinda- stofnun Háskóla íslands. Til ráðstefnunnar verður boðið fræðimönnum, stjómmálamönnum og háttsettum embættísmönnum frá Evr- ópu, Bandaríkjunum, Kanada og Japan. Ráðstefnan er fjármögnuð með styrkjum frá stjómvöldum á Norðurl- öndum og í Bandaríkjunum. -ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.