Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987.
3
DV
Fréttir
Vestfirðingar
róttækir
„Vinnan gengur út á það að saína
upplýsingum um atvinnulíf, atvinnu-
ástand og ýmsa þætti opinberrar
þjónustu og flesta aðra þætti sem
varða ástand mála í hverju sveitarfé-
lagi fyrir sig,“ sagði Sigurður
Guðmundsson, forstöðumaður Þróun-
arsviðs Byggðastofnunar.
Að sögrí Sigurðar er sérstakur starfs-
maður Byggðastofnunar, Guðmundur
H. Ingólfsson, að vinna að róttækri
byggðaáætlun fyrir Vestfirði, að
beiðni Fjórðungssambands Vestfjarða.
„Þetta verkefni er unnið í samvinnu
við sveitarstjómarmenn og aðra
frammámenn þarna fyrir vestan og
verður skilað stuttri en gagnorðri
skýrslu um einstaka málaflokka ásamt
tillögum á aðalfundi Fjórðungssam-
bandsins í byrjun september," sagði
Sigurður
Hvergi annars staðar er verið að
vinna að sambærilegu verkefiii, að
sögn Sigurðar, sem sagði það mikil-
vægt að menn kæmu og ræddu um
stöðuna og hefðu réttar upplýsingar.
Svona verk, unnið á skynsamlegum
grunni, gæti skilað miklu en markmið
þessarar róttæku byggðaáætlunar
mun vera að stemma stigu við fækkun
fólks frá Vestfjörðum og stuðla að
aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu.
-JFJ
„Þetta er fyrsta og eina verksmiðjan með þessa verksmiðjutækni í heimin-
um en dósin er búin til úr sömu efnum og andrúmsloftið. Gosdrykkirnir
verða framleiddir eftir alíslenskum uppskriftum og það mun aldrei maður
þurfa að lyfta dós í verksmiðjunni," sagði Davið Scheving Thorsteinsson
þegar hann kynnti nýja framleiðsluvöru frá Sól h/f auk vélasamstæðunnar
sem framleiðir gosdrykkina og skilar þeim út i plastdósum. Til aö byrja
með verða framleiddar fimm bragðtegundir af nýja gosinu.
DV-mynd KAE
HHUW
en bara
yfirlityfir:
f°9
23 SS
4. Söfn.
s Alla þjónustu.
Hafskipsmalið:
MáMutningur
á mánudag
Málflutningur í vanhæfismáli
fyrruxn forráðamanna Hafekips hf.
gegn ríkissaksóknara verður í Saka-
dómi Reykjavíkur á mánudaginn og
hefet klukkan 9.30.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
fékk hjá Haraldi Henrýssyni saka-
dómara, má jafnvel búast við
úrskurði i málinu á þriðjudag eða
miðvikudag.
Svo sem kunnugt er vísaði Hæstí-
réttur fiá dómi máh ríkissaksóknara
gegn fyrrum forréðamönnum Út-
vegsbankans og ef sama gerist í
þessu máli mun nýr saksóknari
verða skipaður í málinu sem tekur
ákvörðum um fi"amhaldið. Ef málinu
verður hins vegar ekki vísað frá get>
ur málfiutningur hafist innan tíðar.
-ój
Helstu
þrotabú
Útvegsbankinn er stærstí einstaki
kröfuhafinn í þrotabú Hafskips hf. en
kröfur bankans eru alls að upphæð á
bilinu 700-800 milljónir króna. Þar af
heftir bankinn fengið greiddar kröfur
að upphæð um 300 milljónir utan
skuldaraðar.
Af eigendum forgangskrafna eru
stærstu kröfuhafamir Lífeyrissjóður
sjómanna með 6 milljónir króna og
Lífeyrissjóður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur með 1,5 milljónir króna.
í hópi almennra krafna, sem viður-
kenndar hafa verið, er 44 milljóna
krafa Flexivan Leasing stærst en það
fyrirtæki leigir gáma. Þá kemur næst
16 milljóna krafa Gjaldheimtunnar,
síðan gerir HEimborgarhöfh 12,9 millj-
óna kröfu í búið sem hefur hlotið
viðurkenningu skiptastjóra þrotabús-
ins. Þá á Olíuverslun Islands 12,6
kiöfur í
Hafskips
milljóna kröfu í þrotabúið og Dan
Bunkering er með 11,8 milljóna kröfu^
í búið. Þá er hollensk skipasmíðastöð »
með 11 milljóna kröfu og síðan koma" “*
Rafinagnsveita Reykjavikur með 10,3
milljóna kröfu og Manufacturing &
Trading Company er með kröfu að
sömu upphæð. Er sú krafa tíl komin
vegna Cosmos í Bandaríkjunum en
það fyrirtæki var í eign Hafskips hf.
Reiknað er með því að skiptapró-
sentan verði um 30%- Heildarkröfur í
búið eru að upphæð 2.500 milljónir en
áætlað er að samþykktar kröfur verði
um 1.400-1.500 milljónir króna. Þar
af eru forgangskröfur að upphæð 30
milljónir, kröfur utan skuldaraðar eru
liðlega 300 milljónir samtals og al-
mennar kröfur eru alls að upphæð um
1.100 milljónir króna.
-ój