Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Side 4
4
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Jón Loftsson, skógarvörður á Hallormsstað, bendir Skúla Magnússyni, starfs-
manni Vinnueftirlitsins, á banvænan áverka sem eitt tréð hefur hlotið við
grjótflug frá sprengingu vegavinnumanna. Ef vel er að gáð má sjá hvernig
kubbast hefur ofan af sumum trjánum. DV-mynd GVA
Milljónatjón á
trjám í Atlavík?
Gera má ráð fyrir því að verktakar
fyrir Vegagerðina hafi valdið milljóna-
tjóni á trjám þegar þeir voru að
sprengja úr kletti sem er við veginn
fyrir ofan Atlavík.
í vor og sumar hefur verið unnið að
vegaframkvæmdum í Hallormsstaðar-
skógi en stefnt er að því að malbika
þar aðalveginn á næsta vori. 1 lok maí
var unnið að því að sprengja úr fyrr-
nefndum kletti með þeim óskemmti-
legu afleiðingum að sprengjumottan
tókst á loft ásamt miklu magni af
grjóti sem rigndi yfir Atlavík ofan-
verða.
Söluskáli og fangabús, sem eru í ví-
kinni, urðu fyrir þónokkrum skemmd-
um af völdum grjótflugsins en
tilfinnanlegast er tjónið á tuttugu til
þrjátíu ára gömlu lerki sem náð hafði
um sjö metra meðalhæð.
„Við erum enn ekki búnir að gera
okkur grein fyrir því hve mörg tré
hafa drepist enda voru trén laufguð
þegar óhappið henti,“ sagði Jón Lofts-
son, skógarvörður á Hallormsstað.
Samkvæmt lögregluskýrslu um
óhappið munu tré hafa skemmst á ein-
um hektara skóglendis en Jón gat
þess að meðalfjöldi trjáa af þessari
stærð á einum hektara kynnu að vera
um fimmtán hundruð. Hann taldi þó
fremur ólíklegt að svo mörg tré hefðu
drepist en þau væru engu að síður
nokkur hundruð.
„Þetta hefur enn ekki verið metið,“
sagði Jón. „Við munum sennilega fá
óviðkomandi aðila til að meta tjónið
en það er hins vegar alls ekki augljóst
mál hvemig ber að meta tjón af þessu
tagi.“
Jón gat þess að þegar Eyrarvegurinn
hefði verið lagður yfir skógarreit við
Vaðlaheiði fyrir nokkrum árum hefðu
trén verið þannig metin að gengið
hefði verið út frá markaðsverði garð-
trjáplantna hverju sinni og sú tala
margfölduð með tilliti til hæðar
trjánna.
Ef þessi fyrsta nálgunarregla verður
lögð til grundvallar mun láta nærri
að metri af lerkinu kosti þúsund krón-
ur þannig að hvert meðaltré kosti um
sjö þúsund krónur. Fimmtán hundruð
tré myndu þá kosta tíu og hálfa millj-
ón.
Þess ber þó að geta að sennilega eru
dauðu trén færri en fimmtán hundruð
og svo ber að hafa það í huga að það
liggur enn ekki ljóst fyrir út frá hvað
forsendum verður gengið í matinu.
KGK
Búist við miklum
fjölda gesta
- í einstakri veðurblíðu
Siguröur Már Jánæan, DV, HúsavQc
19. landsmót UMFÍ fór af stað með
miklum glæsibrag í einstöku blíð-
viðri á Húsavík í gær. Veðurblíðan
var slík að menn sem til þekkja sögð-
ust ekki muna aðra eins blíðu síðan
á landsmótinu á Laugarvatni árið
1965.
Alls munu um 1500 keppendur,
alls staðar af landinu, vera mættir
hingað til Húsavíkur en mótið fer
fram um allan kaupstaðinn sem er
í hátíðarskrúða. Búist er við að
minnsta kosti 10 þúsund manns á
landsmótið að þessu sinni. Mótið var
sett í gærkvöldi en við setninguna
flutti Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, ávarp.
Keppni hófst í morgun
Dagskrá landsmótsins hófst í
morgun klukkan níu með keppni í
knattspymu og stendur hún óslitið
til klukkan 22.10 í kvöld en þá hefj-
ast dansleikir í íþróttahöllinni og
félagsheimilinu. A morgun hefst
keppnin klukkan hálfin'u og stendur
óslitið fram á kvöld. Síðan verður
dansað í félagsheimilinu frá klukkan
tíu.
DV-myndir JGH
Á víkingaleikunum var keppt i bíladrætti og vakti þessi grein mikla athygli áhorfenda.
landsmót UMFI á Húsavík:
„Slæmt að Jón Páll skyldi ekki vera með“
- sagði Geoff Capes sem sigraði í víkingakeppninni
Það vantaði ekki átökin þegar togast var á með þeim hætti sem
þessi mynd sýnir.
Sguiður Már Jánasan, DV, Húsavflc
„Ég er mjög ánægður með mótið og keppnina í
heild. Skipulag allt er til mikillar fyrirmyndar en
það spillti óneitanlega fyrir að Jón Páll Sigmarsson
skyldi ekki geta verið með,“ sagði breski kraftajöt-
unninn, Geoff Capes, í samtali við DV en hann
sigraði með miklum yfirburðum í víkingakeppninni
á landsmótinu á Húsavík í gær.
í víkingakeppninni náðu Bretar að vinna tvöfald-
an sigur þvi landi Capes, Mark Higgins, varð í
öðru sæti. Síðari keppnisdagur vfkingakeppninnar
var í gær og þá var keppt í Þórshamarskasti, lóðak-
asti og bátadrætti. Capes sigraði í Þórshamars- og
lóðakasti en Jón Páll Sigmarsson, sem keppti sem
gestur í Þórshamarskastinu átti lengsta kastið við
gífurlegan fögnuð áhorfenda. Hjalti Ursus Ámason
varð í þriðja sæti eftir mjög harða baráttu við
Higgins en Seyðfirðingurinn sterki, Magnús Ver
Magnússon, sem reyndar var langléttastur kepp-
enda, „aðeins" 120 kíló, varð í fjórða sæti en sigraði
í bátadrættinum.
Keppni „tröllanna" vakti mikla kátínu meðal
mótsgesta og kunnu keppendur greinilega vel að
meta athyglina enda sannir sjómenn þar á ferð.
Jón Páll Sigmarsson í góðra vina hópi á landsmóti ungmennafélag-
anna.