Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 14
14 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987. Veiðivon Oft er fjölmennt við Elliðaárnar og ýmislegt latið flakka þar. - þar sem allt getur gerst Þau eru orðin nokkur árin síðan Elliðaárnar voru aðeins sögusvið laxveiða og veiðimanna með stórar stangir, litlar stangir eða mjóar. Við Elliðaárnar gerast nú orðið hinir ótrúlegustu hlutir. „Elliðaárnar eru ekki orðnar eins spennandi og var hér áður fyrr, mað- ur gat verið einn með sjálfum sér, en núna er þetta orðið fjölmenni við árnar og maður getur átt von á hverju sém er. Einu sinni var ég að veiða í Breiðholtsstrengnum og var að renna á tvo væna laxa, 10 punda dela. Allt var kyrrt og rólegt, enginn til að trufla mann og annar fiskurinn var að taka agnið hjá mér, en viti menn, allt í einu kemur niður streng- inn maður á vindsæng og brosir til mín. En laxarnir fóru veg allrar ver- aldar og ég sá þá ekki meir en maðurinn á vindsænginni fór niður með allri á og enginn stoppaði hann,“ sagði veiðimaður sem veitt hefur mikið í Elliðaánum og bætti við: „1 fyrra var ég að veiða í hol- unni fyrir ofan Ullarfossinn og lax var á, þetta var 8 punda fiskur og ég sá engan við ána nema mig þama. Laxinn tekur skemmtilega í og ég er að landa honum rétt fyrir ofan holuna og beygi mig en allt í einu fæ ég spark í löppina og það liggur við að ég takist á loft og út í hylinn en þar sem ég er þéttur á velli þurfti miklu fastara spark. „Jú, hann er á hjá þér,“ var sagt fyrir aftan mig og af manni sem ég þekkti ekki neitt og hafði aldrei séð áður. Ég fékk ekki að vita hvers vegna hann spark- aði í mig, kannski fundist ég vera of lengi með laxinn á. Maðurinn fór niður með ánni og ætli hann hafi ekki lamið næsta veiðimann, aldrei að vita.“ Veiðivon Gunnar Bender „Það hefur ýmislegt gerst við Ell- iðaárnar og eitt sinn var ég að veiða í drullunni fyrir ofan stíflu og það var töluvert af fiski en ég skildi ekk- ert í að áin varð alltaf lituð af og til þótt ekkert hefði átt að geta valdið því. Hætti ég að renna og vildi vita hvað ylli þessu, labbaði ég aðeins ofar og hvað haldið þið að ég hafi séð þar? 10 polla í baði í drullunni á sundskýlum og þeir grugguðu ána en það getur verið hættulegt að hrófla við þessum pollum. Ég fór aðeins neðar og renndi í þeirri von að þeir hættu þessari iðju sinni þarna við ána og fékk mér sæti og beið um stund. En allt í einu sá ég eitthvað hvítt koma niður strenginn og ég hélt að þetta væri sundskýla eða eitt- hvað slíkt. Nei, nokkru á eftir þessu kemur einn pollanna og nær í þetta hvíta fyrir framan mig og þetta var ekki sundskýla heldur 8 punda lax sem þeir höfðu í öllum látunum rotað Veiðimenn renna í fossinn og fólk í göngutúr hættir sér nokkuð nálægt ánni. DV-myndir G. Bender. Það eru margir tillitssamir og halda sig í fjarlægð frá ánni og pabbi kíkir á veiðimennina og Ragna Ragnarsdóttir gefur Ijósmyndaranum auga frekar en laxinum. og svo fór hann upp eftir með fenginn en sagði ekki orð við mig, ég hélt áfram niður með ánni. Þessir pollar, sem voru að baða sig þarna við ána, voru þeir sömu og stóðu daginn áður uppi í Hundasteinum með 8 tódý spúna á stöngum sínum úti í hylnum og veiddu." Það hefur ýmislegt gerst við Elliða- árnar og þegar við komum við fyrir nokkrum dögum til að festa á filmu mannlífið við ána var frekar rólegt. Þó var einn í fótabaði og hjón að tína blóm alveg við ána, pollar úti í einum hylnum að ná sér í lax og svona 50-60 manns að horfa á veiði- mennina veiða, reyna að veiða, því fiskurinn var tregur. Þeir eru margir sem heitið hafa því að renna aldrei í Elliðaárnar aftur en flestir koma þeir samt aftur til veiða í henni þótt þeir hafi oft sett í veiðimenn í baði, stuggað við poll- unum, stoppað grillveislur við ána eða verið truflaðir af áhugasömum áhorfendum sem kunna ýmislegt fyr- ir sér í veiðinni og sjá laxa víða í ánni. Oftast mæta þeir aftur, blessað- ir, til veiða. G. Bender Margir við veiðiskapinn á Sauðárkróki Veiöimenn fjölmenntu til veiða viö Sauð- árkrók á veiðidaginn og ungu veiðimenn- irnir fengu góða veiði og fallega fiska. En veiðidagur fjölskyldunnar var haldinn sunnudaginn 28. júní og var mest um 160 manns við veiðar. DV-myndir Brynjar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.