Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 15
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987. 15 Besti vinur mannsins - hver ætli það sé? I aldaraðir hefur hundurinn borið viðurnefnið „besti vinur manns- ins” og flestir sætt sig vel við það. Fyrir nokkru kom út í Bretlandi bók sem fjallar um þetta fyrirbæri, „besta vin mannsins”. I því tilviki er þó ekki um að ræða hundinn heldur annan vin mannsins sem hefyr ekki síður fylgt honum í gegnum súrt og sætt; nefnilega getnaðarlim karlmannsins. Þetta er ansi lífleg myndabók sem rauk upp á metsölulista um leið og hún kom út. Á nýstárlegan hátt er fjallað um mál sem öllum er alltaf hugleikið; samskipti kynjanna. Höfuðáhersla er lögð á tilfinningar og hugsanir karlmannsins þegar hann fer á fjörurnar við kvenfólk og reynt að útskýra i máli og mynd- um hvað ræður þar oftar en ekki ferðinni. Höfundur bókarinnar, Gray Jol- liffee, tekur skýrt fram fyrir kvenfólkið að karlmaðurinn sé í raun tvær persónur; hann sjálfur og „besti vinurinn”. Við fyrstu sýn mætti ætla að bók- in væri léttvæg gamanbók en raunin er önnur. Hér er tekið á háalvarlegu máli, eins og gefur að skilja, á auðskiljanlegan hátt. Gagnrýnendur hafa einmitt verið hrifnastir af framtakinu fyrir þær sakir hversu einföld en jafnframt áhrifamikil bókin er. Þykkir doð- rantar eftir mestu sérfræðinga á þessu sviði falla gjörsamlega í skuggann við hliðina á þessari litlu myndabók. Bókin er talin segja flest ef ekki allt sem konur ættu að vita um raunverulegt eðli karl- mannsins; flettir ofan af hlutunum. Aðalpersóna bókarinnar er Villi sem að sjálfsögðu fer með hlutverk „besta vinarins”. Hann birtist á síðum bókarinnar sem lítil útgáfa af „eiganda” sínum, segir honum fyrir verkum þegar við á og lætur oft illa að stjórn. Konur „bláeygðar” Villi vill fá sínu framgengt - þeg- ar hann vill. Hann sendir skilaboð til „eigandans” sem af fremsta megni reynir að sjá um að óskir Villa vinar verði uppfylltar hið snarasta. Með öðrum orðum, hversdagsleg saga; karlmenn standa sig oft að því að vera að hvísla einhverjum hugljúfum orð- um og vitleysu í eyra konu, sem þeir meina ekkert með og fá hana til að sofa hjá sér. Morguninn eftir vaknar svo maðurinn sjálfur upp við hliðina á konunni, en ekki Villi sá sem stjórnaði að mestu leyti at- burðum líðandi nætur, og hugsar bara um það eitt að komast sem fyrst í burtu. Konan er þá alveg í rusli yfir því hve maðurinn er breyttur og skilur ekki alveg hvað er um að vera. Maðurinn kveður með því að hann segist ætla að hafa samband, sem hann gerir auð- vitað aldrei. Höfundi bókarinnar finnst greinilega að konur séu ótrúlega jákvæðar og „bláeygðar” í þessum efnum. Þær læra ekki af reynslunni og eru innst inni alltaf jafnánægðar þegar einhver „reynir við þær” segir hann. Þá eru þær sérfræðingar i því að sjá og hevra aðeins það sem þær vilja sjá og heyra. „Karlar fara illa með konur” Höfundur bókarinnar, Gray Jol- lifee, er kunnur teiknimyndahönn- uður í Bretlandi og hafa teikningar hans birst í mörgum þekktustu dagblöðum og tímaritum þar í landi. Hann hefur verið giftur í 24 ár og segir kvenfólk vera í miklum meirihluta í vinahópi sínum; segir konur notalegri sem félaga en karl- menn. Það sem hái kvenfólkinu aðallega í samskiptum sínum við karlpeninginn sé hve óöruggar þær séu og láti of mikið á því bera. „Karlmönnum hættir til að fara illa með kvenfólkið einmitt vegna þess að þeir fmna svo glögglega fyrir þessum veiku hliðum kvenna. Aftur á móti sé mjög sjaldan hægt að segja það sama um konur. Þær geta stundum hegðað sér illa en það sé allt annað en að „fara illa með”. Einu karlmennirnir, sem geta liðið einhverjar þjáningar í samskiptum sínum við konur og misnota þær því síður, eru karlar sem hafa einhvern tíma lent í ástar- sorg eins og ég,” segir Gray. „Það sem ég er að segja með Villa eru einfaldlega þessir hlutir sem fólkið í kringum mig er að velta fyrir sér á hverjum degi og flestir kannast við,” segir Gray. Burtséð frá því hvort lesendur taka undir hin ýmsu orð höfundar um kvenfólkið eða ekki þá er þetta bráðsnjöll bók sem segir á hrein- skilinn hátt frá „besta vini mannsins”; segir frá því sem allir karlmenn höfðu gert sér svo glögga grein fvrir - en ekki allar konur. -Ró.G. Vísnaþáttur Enn á þingi ástin vex Kristján Eldjárn Þórarinsson, 1843-1917, síðast prestur að Tjörn í Svarfaðardal, afi Kristjáns forseta, var vinur og skólabróðir Kristjáns skólaskálds. Hann mun hafa verið bókmenntasinnaður. Ekki hef ég þó rekist á nema eina vísu eftir hann. Hún er svona: Ef ég lifi eftir hel er því vel að taka. En sofi um eilífð, svo er vel, ég sé þá ei til baka. Ég á í fórum mínum fleiri svokall- aðar þingvísur eftir alþingismenn og um þá en þær sem ég hef tekið upp úr bók Jóhannesar úr Kötlum. En ef maður ætti að birta þær þyrfti helst að fylgja greinargerð um mál- efni og menn. En því miður er ekki til nein samfelld saga um viðfangs- efni Alþingis og hvernig brugðist hefur verið við málum. Samning hennar ætti að vera tímabært verk- efni fyrir unga fræðimenn. Ég þekki t.d. ekki silfurbergsmálið sem nefnt er í eftirfarandi vísu Jóns Trausta frá 1911: Gott er að sjúga gamlan merg, gjaldþrotum að hamla. Selt hef ég fyrir silfurberg sálina þeim gamla. Freysteinn Gunnarsson, síðar skólastjóri, mun sem fleiri náms- menn hafa unnið við þingskriftir. 1919 yrkir hann: Deildina þjáir doðinn mjög, dómnum vill hún fresta. En Pétur ætlar að leiða í lög að leikmenn geldi hesta. Og alltaf var heitt í glóðum þegar sjálfstæðismálin voru á dagskrá, sem raunar oftast hefur verið þó í mis- munandi myndum sé. En nú erum við fyrir löngu hættir að deila við Dani. En þessi er nafnlaus og frá 1918: Sjálfstæðis þeir sungu vers, svo að hvein í grönum, að því loknu langs og þvers lágu fyrir Dönum. Á þessum árum ortu menn í blöðin, bæði um pólitík og annað, og rituðu undir vísurnar fuglanöfn: Spói, Þröstur og fleira. Nú gengur mönn- um illa að ráða í þessi dulnefni. Við hættum nú við þingvísurnar að sinni þó meira sé til. Hér kemur vísa eftir Spóa. Hún er frá 1918. Þó að nú sé nauður á, nóg er smjör í vonum, ef að þjóðin færir frá flestum þingmönnonum. Eiríkur frá Hæli Mér varð það á síðast þegar ég birti þingvísiír að fara dálítið skakkt með vísu Eiríks Einarssonar alþingis- manns frá Hæli, sem hann kallaði Heybrækur. Rétt er hún svona: Man ég svona brækur hest blásnar í rjáfri hanga. Nú hafa þær á þingi sést, þótst vera menn - og ganga. Og þessa vísu orti hann einhverju sinni eftir framboðsfund, einn af mörgum: Ertu ei þreyttur, munnur minn? Mjög var reynt á þrekið. Nú höfum í sjötta sinn sama rjómann skekið. Eiríkur dó gamall, seint á ári 1951. Bergmannsstökur Hinn alkunni hagvrðingur Jón S. Bergmann var um hríð lögreglu- þjónn í Hafnarfirði. Margt fékk hann þá að heyra, meðal annars misjafn- lega vel kveðnar vísur. Einum leir- hnoðara svaraði hann svo: Fara um eyrun eins og þeyr orð þín laus í skorðum. Aldrei blæstu anda í leir eins og Drottinn forðum. Um þjónandi guðsmann sem flutti mál sitt á opinberri samkomu orti Jón: Það er eins og andleg pest eyrun gegnum skríði. þegar ég á pokaprest predikandi hlýði:' Einhvern tíma birti blað eða tíma- rit eftirfarandi vísuhelming og bauð nokkrar krónur í verðlaun fyrir besta botninn: Yfir boði brattur rís, byrinn gnoðir svíkur. Margir spreyttu sig á þessu eins og venja var fyrr á árum. Bestur þótti botn Jóns S. Bergmanns. Hann var svona: Blóði roðinn banadís blæ úr voðum strýkur. Margar betri vísur eru til eftir þennan ágæta höfund. Þetta verður sú síðasta að þessu sinni: Vísnaþáttur Jón úr Vör Norðri hallar höfði að hreinni fjallameyju. Hún varð falleg íyrir það, færð í mjallartreyju. Margur vandinn Bóndi nokkur, sem kallaður var Árni gersemi, féll frá á góðum aldri og var bú hans gert upp af yfirvöldum eins og lög gera ráð fyrir. Útkoman varð ekki há. Um það orti Sveinn frá Elivogum: Fátækt sára fékk í arf. féll um margar hrjónur. Fimmtíu ára ævistarf urðu þúsund krónur. Einhverju sinni sem oftar stóð illa á hjá Sveini. Hann átti ekkert í nef- ið. Hann sendi þá dreng á næsta bæ með miða. Þar var þessi vísa skrifuð: i Víst til lasinn verka hér. vonir slasast fínar. Tóbaksvasinn tómur er. tryllast nasir mínar. Kvenréttindabarátta rauðsokku- sinnaðra kvenna færist stöðugt á ný svið. Nú hefur ein þeirra sent mál- gagni verkalýðsins, Vinnunni, nafnlaust bréf þar sem kvartað er undan káfi og klípingum á vinnu- stöðum. Strax bergmáluðu þessir kveinstafir í flestum fjölmiðlum og önnur kona, sem vinnur á Alþingi, tekur undir með Vinnukonunni. Hún segir að ástandið i þessum efnum sé ekki betra á hinu háa Alþingi en annars staðar. Nefnir hún sérstak- lega ákveðna sökudólga en nöfn þeirra eru þó ekki birt á prenti, en verða auðvitað sérstakt lostæti í samsætum og á klúbbafundum ef að líkum lætur. Gamaldags hagyrðing- ur orti: Enn á þingi ástin vex eftir Drottins vilja. Eru þar kræfir ex og ex, eins og gefur að skilja. Utanáskrift: Jón úr Vör. Fannhorg 7, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.