Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 31
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987.
31
Knattspyma unglinga
KENNARAR
Kennara vantar að Grunnskólanum Hellu nk. skólaár.
Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna, íslenska
og handmennt. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma
99-5943 eða formaður skólanefndar i síma 99-8452.
Auðvelt hjá
SeKyssingum
Oæmigert atvik í leik Leiknis og Selfoss. Sóknarmaður Selfyssinga í marktækifæri en markvörður Leiknis bjargar
með góðu úthlaupi. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur
gegn slökum Breiðhyltingum
Selfyssingar áttu ekki í miklum erfið-
leikum með að sigra Leiknismenn í
B-riðli 3. flokks á þriðjudagskvöldið.
Selfossliðið skoraði þrívegis án þess
að Breiðhyltingum tækist að svara
fyrir sig.
Sigurður Fannar Guðmundsson
skoraði tvívegis með stuttu millibili á
upphafsmínútunum og voru bæði
mörkin gerð með skalla. Á 30. mínútu
leit þriðja skallamarkið dagsins ljós
þegar Grímur Sigurðsson, fyrirliði Sel-
foss, sendi knöttinn með fallegri
kollspymu í net Leiknismanna. Sig-
urður Fannar fékk gullið tækifæri til
að bæta fjórða markinu við þegar
dæmd var vítaspyma á Leikni en skot
hans hitti ekki markið. í síðari hálf-
leik héldu yfirburðir gestanna áfram
en markvörður Leiknis bjargaði oft á
meistaralegan hátt frá Selfyssingum.
Kjartan Gunnarsson var bestur Sel-
fyssinga í leiknum og þeir Sigurður
Fannar og Grímur Sigurðsson áttu
einnig góðan leik. Liðið er á toppi rið-
ilsins ásamt Breiðabliki en þessi lið
mætast á þriðjudag og verður það
hreinn úrslitaleikur. Lið Leiknis átti
frekar dapran dag en liðið getur leikið
mun betur en í þessum leik. Liðið hef-
ur komið á óvart í bikarkeppninni og
slegið út bæði Val og KR en í íslands-
mótinu sjálfu hefúr liðið átt mjög erfitt
uppdráttar. Kjartan Bjömsson og Jó-
hann Hjálmarsson vom bestu menn
liðsins að þessu sinni. -RR
Týr og KA sigurvegarar
á ESSO-mótinu á Akureyri
ESSO-mót 5. flokks í mini-knatt-
spymu var haldið á Akureyri á
dögunum. Alls tóku 16 lið þátt í
keppninni en bæði var leikið í A og
B liðum. Leikið var í tveimur riðlum
og síðan í úrslitakeppni. í keppni A
liða fóm Týrarar frá frá Vestmanna-
eyjum með sigur af hólmi en KA
sigraði í B liðs keppninni.
Umboðsmenn ESSO á Akureyri
gáfu glæsileg verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin.
Lokastaðan á mótinu varð A lið : þessi:
Týr 3 2 1 0 4-2 5
Stjaman 3 . 2 0 1 6-4 4
Völsungur .... 3 0 2 1 3-4 2
Þór Ak 3 0 1 2 4-7 1
Blið:
KA 3 3 0 0 6-1 6
Stjarnan 3 1 0 2 6-6 2
Týr 3 1 0 2 5-6 2
Fylkir 3 1 0 2 2-6 2 -RR
Umsjón:
Róbert Róbertsson
KA-strákarnir sem unnu B liðs keppnina á ESSO-mótinu.
A lið Týs sem sigraði á ESSO-mótinu á Akureyri.
Innkaupastofnun rikisins f.h. Rikisspitala óskar eftir tilboöum i vöruflutninga fyrir Gunnars-
holtshæliö á Rangárvöllum á tímabilinu 01.09.87-31.08.88. Um er aö ræöa 5.200 tonna
flutning og er ársakstur áætlaöur um 60.000 km. Lágmarksstærö bifreiðar er 12 tonn.
Útboösgögn veröa seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á kr. 500,- eintakiö.
Tilboð verða opnuö á sama staö fimmtudaginn 6. ágúst 1987 kl. 11.00 f.h.
INNKAUMSTOFNIIN RÍKISINS
BORGARTÚáH 7 SIMI 36844 • POSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Útboð
Efnisvinnsla 1987 og 1988
í ísafjarðardjúpi og Strandasýslu
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Heildarmagn 40.000 m3 og fer efnisvinnslan
fram á sjö stöðum. Verki skal lokið 10. júlí 1988.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerð ríkisins á
Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14.00 þann 27. júlí 1987.
Vegamálastjóri
Útigrill á
sprenghlægilegu
verði.
Aðeins
kr. 5.590,-
Shoprite.
Grillkol 2,27 kg,
aðeins 139,- kr.
Úrvalskjöt.
á grillið.
Gott vöruval.
Grensáskjör
Grensásvegi 46
Sími: 36740.
Trail Boss fjórhjól,
árg. ’87 til sölu á afsláttarverði.
Afslátturínn gildir til 15. júlí.
Verð aðeins kr. 133.000.-
Polaris-umboðið í Reykjavík
Skeifan 9 • Símar 91-31615 og 91-31815.
Sala * Vidgerðir ★ Þjónusta