Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987. 3 dv___________________________________________________________________________________________Fréttir Héðinn Steingrímsson, nýbakaður heimsmeistarí 12 ára og yngri: Þetta var nokkuð erfitt mót „Já, ég var að standa upp frá tafl- borðinu. í síðustu skákinni tefldi ég við strák frá Venezúela og hann gaf skákina eftir tuttugu og sjö leiki.“ Það er Héðinn Steingrímsson sem þannig svaraði blaðamanni DV í gærdag en Héðinn hafði þá fyrstur manna tryggt sér heimsmeistaratitil tólf ára og yngri með sérstaklega glæsilegri frammi- stöðu á fnðarskákhátíð í Puerto Rico sem jafnframt var opinbert heims- meistaramót Alþjóðaskáksambands- ins. Héðinn tapaði ekki skák á mótinu. Hann vann allar sínar skákir að und- anskildu einu jafntefli og hlaut níu og hálfan vinning af tíu mögulegum. Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er heimsmeistaramót drengja tólf ára og - Vann síðustu skákina eftír 27 leiki yngri en næsta mót verður haldið í Rúmeníu að ári. Við óskuðum Héðni til hamingju með sigurinn og spurðum hann hvort hann væri ekki orðinn þreyttur. „Jú, svolítið. Þetta er búið að vera nokkuð erfitt mót.“ Hver heldur þú að hafi verið erfið- asti mótherjinn? „Ætli það hafi ekki verið Gabriel Salzmann frá Rúmeníu, hann er ansi góður.“ En er samt ekki gaman að vera orðinn heimsmeistari? „Jú, jú, það er ágætt.“ Hvenær byrjaðir þú að tefla, Héð- inn? „Ég var sex eða sjö ára. Ég var þá í skóla ísaks Jónssonar en þar er mik- ið teflt. Við sátum þá oft og tefldum á Héðinn Steingrimsson, nýbakaður heimsmeistari meðan við biðum eftir að pabbi kæmi að sækja okkur heim úr skólanum. Svo tefldi ég stundum við afa minn.“ Foreldrar Héðins eru Fríða Valgerð- ur Ásbjömsdóttir húsmæðrakennari og Steingrímur Baldursson efnafræði- prófessor. Móðir Héðins fór með honum á mótið en þau eru væntanleg heim eftir tvo til þrjá daga. Héðinn er þriðji opinberi íslenski heimsmeistarinn en í vor varð Hannes Hlífar heimsmeistari unglinga sextán ára og yngri og fyrir tíu árum varð Jón L. Ámasop heimsmeistari ungl- inga sautján ára og yngri. Karl Þorsteins varð svo heimsmeistari á mjög sterku óopinberu móti fyrir sex- tán ára og yngri árið 1980. KGK Flirtningur utanríkisviðskipta: Lagabreytingar þarf til „Það þarf líklega einhverjar laga- breytingar áður en allur flutningur utanríkisviðskipta, frá viðskipta- ráðuneyti til utanríkisráðuneytis, getur átt sér stað,“ sagði Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra í gær þegar hann var spurður hvemig undirbúningi að flutningi utanríkis- viðskiptanna miðaði. Bent hefur verið á að þrátt fyrir að Steingrímur hafi sett reglugerð um flutning utanríkisviðskiptanna síðasta morgun sinn i embætti for- sætisráðherra þá sé bjöminn ekki unninn. Lagabreytingar þurfi til að flutningur allra utanríkisviðskipta geti átt sér stað. Þetta sagði Stein- grímur að sér væri ljóst og nauðsyn- legar tillögur að lagabreytingum yrðu lagðar fram um leið og þing kemur saman, fyrst í október. - En hvers vegna er verið að standa í þessu umstangi, er nauðsynlegt að flytj a. utanríkisviðskiptin? „Það er verið að reyna að nýta utanríkisþjónustuna betur í þágu útflutnings. Að vísu hafa sendiráðin sinnt útflutningsmálum með ýmsum hætti hingað til, t.d. sendiráðið í Brussel. En það er töluvert annað þegar allt er undir sama hatti og nýtingin á sendiherrum og starfs- fólki sendiráða verður betri,“ sagði Steingrímur. Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytis- stjóri viðskiptaráðunejdisins, sagði í samtali við DV í gær að ekki væri hægt að tímasetja það hvenær þessi yfirtaka verkefha myndi eiga sér stað. „Ráðherramir munu taka end- anlega ákvörðun um það hvað verður flutt og hvenær." Ýmislegt er því enn á huldu um þessa miklu uppstokkun á verkefn- um ráðuneytanna. Þó er Ijóst að margvíslegar breytingar á manna- haldi munu fylgja í kjölfar hennar. -ES Deilt um veiðirétt: „Hættum ekki að veiða í lónunum“ - segja bændur „Við höfum enga ákvörðun tekið í þessu máli nema það að við hætt- um ekki að veiða. Samkvæmt lögum eigum við veiðiréttindi í vötrnun á okkar afréttum og þetta er ekki undanskilið. Við hljótum þó að komast að samkomulagi við Landsvirkjun um þetta eins og önnur mál. Það standa viðræður jfir núna en við veiðum á raeð- an,“ sagði Ölvir Karlsson, oddviti í Ásahreppi í Rangárvallasýslu, um deilur sem standa yfir milli Lands- virkjunar og bænda í nágrenni Sigöldu og Hrauneyjarfosavirkj- unar vegna veiðiréttinda í miðlun- arlónum þar og einnig við Sultartangastíflu og Kvíslarveitu Landsvirkj unnar. „Fiskurinn í þessum lónum kem- ur ofan úr Þórisvatni sem áður var eitt fiskauðugasta vatn landsins. Nú eru hrygningaretöðvar þar ónýtar m.a. út af þessu og veiði algerlega dottin niður. Þeir segjast hafa búið til þessi lón og eigi því veiðirétt í þeim en þau eru samt sem áður á afréttum sem tilheyra nágrannahreppunum,“ sagði Ölv- ir. Að sögn Halldórs Jónatansson- ar, forstjóra Landsvirkjunnar, eru lónin eign Landsvirkjunnar sam- kvæmt virkjanaleyftim iðnaðar- ráðuneytisins og lögum um hlutaðeigandí virkjanir. „Við von- umst til að ná samkomulagi við bændur um þetta, það er þeirra að svara okkur eftir fund sem við héldum með oddvitum nágranna-' hreppanna fyrir skömmu,“ sagði Halidór. -BTH CFY Á^T/FfíllR áf hverju TARKETT er mest selda parketið hér á landi: w uf' m Ef þú vilt gott parket veldu þá Tarkett. HARÐVIÐARVAL HF., KRÓKHÁLSI4,110 RVÍK. SÍMI671010. Tarkett er með nýrri lakkáferð sem gerir það þrisvar sinnum endingar- betra en væri það með venjulegu lakki. Veitir helmingi betri endingu gegn rispum en venjulegt lakk. Gefur skýrari og fallegri áferð. Tarkett er auðvelt að leggja. Tarkett er gott í öllu viðhaldi. Verðið á Tarketti er hagstætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.