Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 32
w Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rilstióm - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 MIÐVIKUDAGUR 22. JULI 1987. Bretland: íslendingur ákærður Islendingurinn, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í Manchester í Bret- landi vegna tengsla við hið svo- nefhda hassolíumál, hefur nú verið ákærður fyrir að reyna að smygla um 500 grömmum af hassolíu, í mag- anum, inn í landið. -JFJ Kynferðisafforot: Maðurinn laus Maðurinn, sem setið hefur í gæslu- varðhaldi um hríð vegna kæra um kynferðislegt ofbeldi á bömum, var látinn laus í morgun. Að sögn Rann- sóknarlögreglunnar var ekki ástæða til að krefjast þess að gæsluvarð- haldið yrði framlengt. Rannsóknarlögreglan sagði í morgun að rannsókn á málinu væri langt komin og yrði það sent til ákæmvaldsins þegar rannsókn lyki. -sme Salmonellusýkingin: Uppruni í svínabúi „Það náoist að einangra niður á 8 bæi hvaðan kjötið var sem fór vestur í dali. Eftir að sýni frá þeim hafa verið rannsökuð á Keldum benda allar líkur til þess að salmonellusýk- ingin sé upprunnin frá einu ákveðnu svínabúi fyrir austan §all,“ sagði Halldór Runólfsson dýralæknir, hjá Hollustuvemd ríkisins. Halldór sagði að staðfesta þyrfti hvaða tegund salmonellu um væri að ræða svo og hvort hún væri ör- ugglega sú sama og greinst hefði í fólkinu. Halldór sagði að svínabúið yrði tekið til frekari rannsóknar á vegum yfirdýralæknis og kannað hvemig þetta hefði getað komist í svínin, um margar leiðir væri að ræða. „Ég verð þó að játa þeirri spumingu að til að fólk smitist þurfa að eiga sér stað einhver mistök við matreiðslu," sagði Halldór Runólfsson. -JFJ ÓVENJU LÁGT VERÐ 0PIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Símar 79866, 79494. LOKI Nýjasta aukabúgreinin er salmonellurækt! Kaupmannahöfn: Islendingur hand tekinn með kíló af amfetamíni íslendingur, 53 ára karlmaður, var handtekinn í fyrradag af ffkniefna- lögreglunni í Kaupmannahöfh eftir að eitt kíló af amfetamfni fannst við húsleit í íbúð hans á Amager í út- hverfi Kaupmannahafhar. Samkvæmt upplýsingum DV hefur maðurinn lengi verið búsettur í Kaupmannahöfti og er þetta ekki í fyreta skipti sem hann keraur við sögu hjá fíkniefhalögreglunni þar. Hefur hann verið settur i þrettán daga gæsluvarðhald á meðan rann- sókn málsins stendur yfír. Er talið að þetta mál tengist fíkniefrmm sem gerð voru upptæk í Málmey í Svi- þjóð i gærdag og að fleiri íslendingar séu viðríðnir það. Að sögn Amars Jenssonar hjá fíkniefhadeild lögreglunnar hefur íslensku fíkniefhalögreglunni ekki borist tilkynning frá dönskum yfir- völdum um handtöku mannsins né fceiðni um aðstoð við rannsókn máls- ins en hann sagðist þó kannast við það. Bjóst hann við slíkri tilkynn- ingu fljótlega. Ekki gat hann að svo stöddu gefið upplýsingar um hvort þessi maður hafi komið við sögu hjá íslensku fíkniefiialögreglunni áður. -BTH Ragnhildur og Jakob: Dóttir fædd „Fæðing einstaklings er stór- kostlegt kraftaverk og upplifun sem ég hefði ekki viljað missa af fyrir nokkum mun,“ sagði Jakob Magnússon Stuðmaður eftir að hafa verið viðstaddur fæðingu dóttur þeirra Ragnhildar Gíslad- óttur. Þessi hreinræktaði Stuðmaður/ kona fæddist rétt fyrir klukkan 5 í gær, var 56 cm á lengd og 17'4 mörk á þyngd. Jakob var afar stolt- ur af þessu fyrsta bami sínu, en þess má geta að þetta er fyrsta bamabam foður hans, Magnúsar Guðmundssonar frá Hvítárbakka, og sömuleiðis fyreta langafabam afa Jakobs, Jakobs Frímannsson- ar. Litla dóttirin er hins vegar annað bam móður sinnar, Ragn- hildar, því hún átti aðra dóttur fynr. DV-mynd JAK/A.BJ. Veðrið á morgun: Víðast vestan Vestan- og norðvestanátt verður á morgun og víðast gola. Smáskúrir verða á annesjum vestan- og norðan- lands en þurrt að mestu annars staðar. Víða verður léttskýjað á Austfjörðum og Suðausturlandi. Blanda: Samningar náðust Fulltrúar Landsvirkjunar og verka- manna og iðnaðarmanna við Blöndu- virkjun náðu samkomulagi rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samningafimdur hafði þá staðið síð- an kl. 15 í gærdag. Verkfall hófst á miðnætti í gærkvöldi svo því var af- stýrt áður en það fór að hafa áhrif á starfsemi við virkjunina. í morgun vildu deiluaðilar ekki upp- lýsa um efnisatriði samkomulagsins þar sem eftir er að bera það undir við- komandi félög til samþykktar. .gg t i i i Skákþing Norðurianda: Tveir á toppnum Hagur íslendinga hefur heldur betur vænkast á skákþingi Norðurlanda í Færeyjum. Margeir og Helgi unnu báðir sínar skákir í gær og tróna nú einir á toppnum þegar aðeins ein um- ferð er eftir. Margeir vann Danann Mortensen sem hafði verið í efsta sæti fyrir þessa umferð og Helgi vann Ost- enstad frá Noregi. Skák Jóns L. Ámarsonar fór hins vegar í bið. Margeir og Helgi eru því í fyrsta og öðru sæti með sjö vinninga eftir tíu umferðir, Mortensen er í þriðja sæti með sex og hálfan vinning og Curt Hansen er í fjórða sæti með sex vinn- mga. Ellefta og síðasta umferðin verður tefld á fimmtudaginn. Þá teflir Helgi við Tisdall frá Noregi og Margeir tefl- ir við Ostenstad. KGK Jóhann vann Jóhann Hjartarson vann bandaríska stórmeistarann Christiansen eftir fjörutíu leiki í fjórðu umferð á milli- svæðamótinu í Ungverjalandi í gær. Jóhann er nú í fjórða sæti með tvo og hálfan vinning ásamt ýmsum fleiri. Hann hefur reyndar staðið sig vel enda hefiir hann gert jafntefli við tvo af sterkustu mönnum mótsins, þá Portisch fiá Ungverjalandi og Eng- lendinginn John Nunn. í þeim fjórum skákum sem Jóhann hefur teflt hefur hann þrisvar sinnum stýrt svörtu mönnunum. Efstir á mótinu eru þeir Salov frá Rússlandi og Nunn, með þrjá og hálfan vinning, en Ljubojevic fiá Júgóslavíu er í þriðja sæti með þrjá vinninga. Á morgun teflir Jóhann við Spán- verjann Garcia. KGK Þyria Vamariiðsins: Sóttiþrjá sjomenn Þyrla frá Vamarliðinu fór snemma í morgun til að sækja þrjá erlenda sjó- menn vegna slysa og veikinda. Búlgarekur togari óskaði eftir aðstoð vegna þess að um borð var maður slas- aður á hendi og annar skipveiji var með slæmt botnlangakast. Togari fiá Kúbu óskaði einnig eftir aðstoð vegna þess að skipverji hafði slasast, ekki var vitað hvað komið hafði fyrir manninn. Skipin eru stödd um 200 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Eldsneytis- flugvél fylgir þyrlunni og var von á henni til Reykjavíkur skömmu fyrir hádegi. -sme i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.