Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987. 29 Hótel Borg hefur undanfarinn einn og hálfan mánuð tekið nokkrum stakkaskiptum. Það er veitingasalur Borgarinnar sem hefur verið breytt í „brasserie“. Þar er átt við fjöl- breytt kaffihús með smáréttum, heimilismat í hádeginu, margs konar kaffitegundum, kökum og svo auð- vitað þyngri réttum á kvöldin. „Það er verið að létta braginn en um leið að draga fram sérkenni stað- arins. Hótel Borg er kaffihús og matsölustaður fyrir alla, ekki bara alþingismenn eins og sumir hafa haldið," sagði Rögnvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri. „Það verður spil- uð lifandi tónlist úr ýmsum áttum undir borðum. Breytingamar hafa tekið nokkum tíma en Borginni hef- ur ekki verið lokað á meðan. Við- skiptavinir hafa því getað aðlagast smám saman og margir hafa komið með athugasemdir sem teknar hafa verið til greina. Við vonum að allir megi vel við una því hótelið hefur óneitanlega ákveðinn virðingarsess í hugum Reykvíkinga," sagði Rögn- valdur að lokum. Myndarlegt kaffihlaðborð trónar i miðjum salnum. Auk þess er hægt að fá alls konar heita smárétti á viðráðan- legu verði. Breytingar á Borginni Ein nýjungin er sú að á borðunum eru sérstök blöð og litir. Fólk getur svo dundað sér við að teikna. Listaverkin eru svo hengd upp, öörum til yndis- auka. Það er greinilegt að þarna er eitt meistaraverkið að fæðast. Bryndis og Þórhildur sjá um tónlistina annan hvern dag. Þær eru báðar við nám i Bandarikjunum en eru í sumarfríi og sjá gestum Borgarinnar fyrir Ijúfri tónlist á meðan. DV-myndir JAK Passaðu þig, maður - þú ert að fá glugga í höfuðið Arkitektinn sem teiknaði fjölbýlishúsið á Long Beach í Kaliforníu er ekki svo ruglaður að hann hafi teiknað einn gluggann svona skakkan heldur er þessi gluggi og andlitið, sem er að kíkja út, teiknað á húsið. Ósjálfrátt lítur maður samt tvisvar á húsið og sannfærir sjálfan sig um að allt sé örugglega með felldu. rJW v«Bil Regnhlífaskógur Golfaramir á opna breska meistaramótinu, sem haldið var um síðustu helgi, voru ekki alls kostar heppnir með veður. Þeir hrepptu stanslausa rign- ingu og slagveður meðan á mótinu stóð. Golfmótið var haldið í Muirfield, um 50 km utan við Edinborg í Skotlandi. Það var haft á orði að mótið líkt- ist öllu heldur skíðamóti en golfmóti um mitt sumar, því allir voru með húfur og trefla, í regngöllum og skjálfandi úr kulda. Áhorfendur virtust þó ekki láta þetta mikið á sig fá og þyrptust bara með regnhlífamar sínar á áhorfendapallana. Sviðsljós Ólyginn Prince hélt upp á 28 ára afmælið sitt fyrir stuttu. Hann var flottur á því og flaug til Italíu þar sem hann hélt veislu í fínum ítölskum næturklúbbi. En það virtist ekki hafa verið mikið fjör fyrir Prince. Hann hafði nefnilega hirð lífvarða I kringum sig og tók ekki mikinn þátt í veislunni. Það var dýrindis matur á boðstól - um en Prince smakkaði ekki matarbita fyrr en einkalíf- vörðurinn hafði smakkað kræsingarnar og athugað hvort þær væru eitraðar. Ekki einu sinni afmælistertan fékk að renna óprufuð ofan í maga poppstjörnunnar. Roger og Sean núllnúllsjöarar eru bestu vin- ir þrátt fyrir keppnina um Bondhlutverkin. Enda er þeirra tími í hlutverki spæjar- ans útrunninn. En nú brugga þeir tveir vinirnir launráð og eru að spá í að slá kröftum sínum saman og gera mynd. Þeir eru mjög dularfullir um áform sín og vilja ekkert upp gefa hvernig mynd þetta verður. Það má þó þúastvið einhverri góðri spennumynd frá þeim tveim sem þekkja James Bond best allra. Priscilla Presley fór út að borða í hæðum Beverly með eiginmanni sín- um og barni fyrir skömmu. Það væri ekki í frásögur fær- andi nema því aðeins að í miðju borðhaldi fór að heyr- ast óánægjuhljóð í barninu. Priscilla var fljót að upp- götva hvað var að og á augabragði var hún byrjuð að skipta á barninu inni í veitingasalnum. Eftirathöfn- ina bað hún þjóninn vin- samlegast um að koma notuðu bleiunni fyrir á við- eigandi stað. Það var heldur betur upplit á fólkinu inni á staðnum. Hneykslunin skein úr galopnum augunum, maturinn stóð í nokkrum og hóstakjöltur kváðu við. Sem betur fer urðu þó engin al- varleg slys á mönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.