Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987. Fréttir Fyrir tæpri hálfri öld sungu revíu- leikarar Leikfélagsins um það að réttast væri að bregða sér á Báruball. Báran, sá vinsæli skemmtistaður, er löngu horfin en nú þessa dagana er unnið að því að taka jarðvegssýni á svip- uðum slóðum því þar á að rísa ráðhús borgarinnar. DV-mynd Brynjar Gauti Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 10-15 Lb.Sp 3ja mán. uppsögn 13-16 Ab.Lb. Sp 6 mán. uppsógn 14-20 Ib.Vb 12 mán. uppsögn 17-26.5 Sp.vél. 18mán. uppsogn 25-27 Ib Ávísanareikningar 4-12 Ab Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-8 Ib.Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsogn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb 10-24,5 Lb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 6-6.5 Sp.Vb. Ab Sterlingspund 7.5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2.5-3.5 Vb Danskarkrónur 8.5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 24-28,5 Bb.Úb. Sb Viöskiptavixlar(forv.)(1) 25-26 eða kge Almenn skuldabréf 25-29.5 Úb.Sb Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir . HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggð 25-30 Bb.Sb Skuldabréf Að2.5árum 7-9 Sb Til lenari tíma Útlántilframleiðslu 7-9 Sb Isl. krónur 21-24 Úb SDR 7.75-8.25 Bb.Lb. Úb.Vb Bandarikjadalir 8.75-9.25 Bb.Lb. Sp.Vb Sterlingspund 10-11.5 Bb.Lb, Vb Vestur-þýsk mörk 5,25-5.5 Bb.Lb, Úb.Vb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 36 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júlí 1721 stig Byggingavísitala 320 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði9%1.júni VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða (uppl. frá Fjár- festingarfélaginu); Ávöxtunarbréf 1,1634 Einingabréf 1 2.163 Einingabréf 2 1.283 Einingabréf 3 1.337 Fjölþjóðabréf 1,030 Kjarabréf 2,158 Lifeyrisbréf 1,088 Markbréf 1,075 Sjóðsbréf 1 1,058 Sjóðsbréf 2 1,058 Tekjubréf HLUTABRÉF 1,174 Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 112 kr. Eimskip 255 kr Flugleiöir 175kr. Hampiðjan 114 kr. Hlutabr.sjóðurinn 114 kr. Iðnaðarbankinn 137 kr. Skagstrendingur hf. 350 kr. Verslunarbankinn 120kr Útgerðarf. Akure. hf. 150kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavixla gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= lönaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaölnn birtast f DV á fimmtudögum. Forsætisráðherra, VSÍ og Þjóðhagsstofnun telja aukinn kaupmátt illmögulegan: Leiðréttingamar mikilvægastar Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra segir að ríkissjóður geti ekki liðkað íyrir kjarasamningum með mildandi aðgerðum, eins og gert hefur verið í síðustu samningum. Þá hefur Þjóðhagsstoínun lýst því yfir að ekki sé svigrúm til frekari kaupmáttaraukningar án þess að - segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ þess gæti í viðskiptajöfnuði og verð- bólgu. I kjölfarið lýstu fulltrúar VSÍ því yfir að þeir teldu kaupmáttar- aukningu ekki mögulega. „Menn eru nú orðnir vanir yfirlýs- ingum sem þessum með einhverjum hætti þegar samningar eru um það bil að hefjast," sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, í morgun þegar hann var spurður álits á stöðunni nú í upphafi samninga. Ásmundur sagði mikilvægast nú að fá leiðréttingu fyrir þá sem setið hefðu eftir á þessu ári, svo sem fisk- vinnslufólk. „Þessi leiðrétting er meginmálið í fyrstu umferð. Samninga um 1988 getum við kallað seinni umferð og það getur svo margt breyst áður en kemur að þeim að það er ekki tíma- bært að fara að gefa yfirlýsingar ennþá. Hugsanlega kemur ný skýrsla frá Þjóðhagsstofnun áður,“ sagði Ásmundur. -ES Nýtt vettingahús tekið í a • Veitinga- og gistihúsið Snekkjan. DV-mynd Ægir Kristinsson notkun Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Nýtt veitinga- og gistihús hefur verið tekið formlega í notkun á Fá- skrúðsfirði. Herbergin eru vel búin húsgögnum. Auk herbergja í nýja hótelinu getur hótelið útvegað 13 tveggja manna her- bergi úti í bæ. Veitingasalur rúmar sextíu til áttatíu manns í mat, sameig- inlegt eldhús er fyrir nýja veitingasal- inn og grillið sem verður áfram á gamla staðnum. Snekkjan hefur fengið vínveitinga- leyfi og þar er skemmtilegur bar og á skemmtunum er aðstaða fyrir allt að 120 manns. Nýja byggingin er alls um 600 fm á þremur hæðum, framkvæmdir hófust við nýbygginguna fyrir um fjóruni árum. Viðtalið „Fæ mér fn' frá fótbottanum“ - segir Hákon Gunnarsson, nýráðinn framkvæmdasfjóri íslenskra getrauna „Þetta verður mjög fjölbreytt starf sem þarfnast mikillar skipulagning- ar, er raunar fyrsta stjómunarstarfið sem ég tekst á við. Ætlunin er að fara af stað með mikla kynningar- herferð strax í haust, nú er ég að setja mig inn í málin áður en ég tek formlega við stöðunni þann 1. sept- ember,“ sagði Hákon Gunnarsson, 27 ára viðskiptafræðingur, sem í haust tekur við stöðu framkvæmda- stjóra íslenskra getrauna. Hákon er Kópavogsbúi, lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1979 og dvaldi að því loknu eitt ár í borginni Lyon í Frakklandi þar sem hann nam bók- menntir og frönsku við háskóla. Síðan lá leiðin í viðskiptafræðideild Háskóla Islands og þaðan útskrifað- ist hann í október á síðasta ári. Síðustu sumur hefur hann starfað á endurskoðunarskrifstofu Gunnars R. Magnússonar. „Mitt helsta áhugamál gegnum árin hefúr verið fótboltinn. Það hef- ur fátt annað komist að. Frá því ég var strákur hef ég spilað með Breiða- bliki, eins og sönnum Kópavogsbúa sæmir, og hef spilað í meistara- flokksliði Breiðabliks undanfarin níu ár í stöðu framherja eða væng- tengiliðs. Síðasta keppnistímabil fór hins vegar ekki vel hjá mér þar sem ég sleit krossband í fæti í einum leiknum. Þess vegna hef ég verið í fríi frá fótboltanum að undanfömu. En það er margt annað sem ég finn mér að gera í tómstundum, auðvitað er ég mikill áhugamaður um get- Hákon Gunnarsson, 27 ára viðskiptafræðingur og knattspyrnumaður, sem tekur við stöðu framkvæmdastjóra íslenskra getrauna þann 1. sept- ember. DV-mynd JAK raunir og hef tippað í fjölda ára. Við vorum með dálítið kerfi nokkrir kunningjar en höfum samt aldrei fengið þann stóra, komumst mest í um 60 þúsunda króna vinning í vet- ur sem leið. Svo er ég mikill áhugamaður um Frakkland og allt sem viðkemur þeirra menningu, sérstaklega eftir árið sem ég dvaldi í Lyon sem var alveg einstakt. Mig langar að sjá meira af Frakk- landi." Hákon segist hvergi vilja búa nema í Kópavoginum, hann býr núna á Furugrundinni ásamt konu sinni, Katrínu Björgvinsdótturhjúk- runarfræðingi og dótturinni, Dag- björt, þriggja ára. „Ég bjó í vesturbænum í Reykjavík í fimm mánuði fyrir nokkrum árum en leist ekkert á það til frambúðar og flutti í gamla bæinn minn aftur. Hér er líka prýðilegt að búa, þægilegt að vera með böm hér og fjarlægðin frá vinnustaðnum alveg mátuleg." Undanfarinn mánuð hefur Hákon kynnt sér starfið, sem hann tekur við í haust, í samvinnu við fráfar- andi framkvæmdastjóra, Bimu Einarsdóttur. „Þetta er mjög fjöl- breytt starf en vinnutíminn verður eflaust langur til að byrja með. Fót- boltinn verður því líklega að víkja næsta keppnistímabil ef maður ætlar að eiga einhvem tíma afgangs handa fjölskyldunni. Ég held þó áfram að fylgjast vel með þessu áhugamáli mínu númer eitt,“ sagði Hákon að lokum. -BTH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.