Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
11
Átti þijátfu og sex konur, bætti sex við
Þrjátíu og fimm ára gamall söngvari M Cameroun, Mongo Faya að nafin,
gekk nýlega í hjónaband með sex konum í einu. Faya átti þrjátíu og sex
konur fyrir.
Faya gekk að eiga konumar við borgaralega athöfn. Að sögn dagblaða í
Cameroun búa konumar íjörutíu og tvær, sem allar em 20 til 24 ára gamlar,
í sátt og samlyndi undir sama þaki.
Söngvarinn á tuttugu og átta böm, það elsta níu ára gamalt.
indónesíumenn íhuga kaup á kjamorkuveri
Indónesíumenn vega nú kosti þess og galla að festa kaup á kjamorkuveri
en þeir hafa fengið tilboð um ver frá fimm löndum, að því er ráðherra náma-
og orkumála í landinu skýrði fiá í gær.
Sagði ráðherrann umhverfismál vega þungt í umfjöllun stjómvalda um
málið. Hann sagði nauðsynlegt að ákvarða hvort þörf væri kjamorku því
þótt orkuframleiðsla væri næg í landinu í dag mætti reikna með að árið
2000 yrði orkuþörf orðin þreföld á við það sem nú er.
{ skýrslu frá bandariskum aðilum er því haldið fram að Indónesía, sem
nú flýtur út raesta olíu af öllum Asiuríkjum, muni verða orðin innfiytjandi
á olíu fyrir aldamót.f
Sonur Frakklandsforseta í bílslysi á Spáni
Gilbert Mitterrand, sonur Francois Mitterrand, forseta Frakklands, lenti
í gær ásamt fjölskyldu sinni í bifreiðarslysi í borginni Gerona á Spáni.
Gilbert og dætur hans tvær, Pascale og Justine, meiddust mikið i slysinu
sem varð með þeim hætti að bifreið þeirra skall framan á annarri fólks-
bifreið. ökumaður hinnar bifreiðarinnar beið bana.
Gert var að sárum þeirra á sjúkrahúsi en síðan var gefin heimild til þess
að þau héldu flugleiðis heim til Frakklands.
Eiginmaðurinn lifír á bónbjorgum
Leikkonan Joan Collins, sem er jafiifræg fyrir karlamál sín og leik sinn
í sjónvarpsþáttunum Dynasty, bar í gær vitni fyrir rétti í skilnaðarmáli sínu
gegn Peter Holm, sænska eiginmanninum, sem hún fékk sig fiillsadda af íýrr
á þessu ári.
Collins lét fyrir skömmu bera Holm út úr húsi þeirra og segist hann nú lifa
á bónbjörgum. Hann hefitr reynt að fylgja Collins eftir á ferðura hennar og
þá staðið þar sem hún gæti séð hann, með spjöld, þar sem hann biður hana
um að vera sér góð og örlát. Kveðst hann hfa sem næst á bónbjörgura og
fer fram á áttatíu þúsund dollara í framfærslueyri á mánuði frá Collins.
Dálkahöfundar í Bandaríkjunum hafa tekið til þess að Holm virðist ekki
mikil karlremba né vefjist stoltið neitt fyrir honum.
Öryggismálum áfátt í elsta kjamorkuverinu
Yfirstjóm elsta kjamorkuvers Bretlands hefiir fengið fyrirmæli um að
öryggiskerfi versins þarfiúst gagngerra endurbóta ef það eigi að halda áfram
starfsemi sinni fram á næsta áratug.
Ríkisstofnun sú sem fer með öryggismál í kjamorkuverum lagði fram kröf-
ur um úrbætur á seytján atriðum. Kjamorkuverið er orðið tuttugu og fimm
ára gamalt.
Talsmenn öryggiseftirhtsins segja að það þurfi að fa staðfestingu á ýmsum
úrbótum í öryggiskerfi versins, þar á meðal þrýstikerfi þess, áður en verinu
verður veitt áframhaldandi starfeleyfi.
Talið er að viðgerðimar muni kosta allt að tíu milljónir sterlingspimda
eða um sex hundmð miUjónir íslenskra króna.
Utlönd
Geta beitt kjarnorku-
vopnum gegn helstu
höfuðborgum Araba
•,•* t , i rv.f.. L_ Antalua
Tímaritið Intemational Defense
Review skýrði frá því í gær að ísraels-
menn hefðu gert tilraunir með meðal-
drægar eldflaugar, sem geta borið
kjamorkuvopn frá ísrael til höfuð-
borga allra helstu arabaríkja. Tilraun-
ir ísraela tókust vel.
Tímaritið, sem sérhæfirsig í umfjöll-
un um vamarmál, hefur eftir banda-
rískum heimildum að flaugin, sem var
af Jericho-gerð, hafi dregið liðlega átta
hundruð kílómetra, sem er tvöföld sú
vegalengd sem slíkar flaugar hafa
komist til þessa. Að flugi loknu lenti
flaugin í Miðjarðarhafinu.
Segir tímaritið að bandarískum sér-
fræðingum hafi þótt tilraunir þessar
athyglisverðar, einkum með tilliti til
þess að þær staðfesta að nú, eða í
náinni framtíð, muni ísraelar geta
skotið kjamorkuvopnum á höfuð-
borgir allra helstu ríkja sem þeim em
óvinveitt.
Dragi flaugamar átta hundmð og
tuttugu kílómetra geta þær borið
sprengjur til Beirút, Damaskus, Am-
man og Kairó.
Höfuöborgir flestra ríkja sem óvinveitt eru Israelum eru innan átta hundruð
kílómetra frá landinu
Heldur strikinu í stjóm-
armyndunartilraunum
Giovanni Goria, formaöur kristilegra
demókrata, ræðir viö fréttamenn.
Simamynd Reuter
Giovanni Goria, formaður flokks
kristilegra demókrata á Ítalíu, sem nú
fer með stjómarmyndunarumboð i
landinu, hélt mikilvægan fund með
sósíalistaflokki landsins og sagði þar
að nauðsynlegt væri að fimm mánaða
stjómarkreppa í landinu færi nú að
taka enda. Goria, sem nú hefur reynt
í viku að mynda ríkisstjóm, sagði
fréttariturum að hann hygðist nú
herða tilraunir sínar þar sem ýmis
vandamál landsins gætu ekki beðið
mikið lengur eftir ríkisstjóm sem gæti
tekist á við þau.
Ítalía hefur í raun verið án virkrar
ríkisstjómar frá því þriðja mars þegar
bitrar deilur milli sósíahsta og kristi-
legra demókrata felldu samsteypu-
stjóm fimm flokka undir forystu
leiðtoga sósíalista, Bettino Craxi.
Stjómarkreppan leiddi til kosninga
í síðasta mánuði þar sem bæði kristi-
legir demókratar og sósíalistar styrktu
stöðu sína en lítið hefur þó miðað í
átt að því að lægja deilur þeirra.
Sósíalistar hafa reynst erfiðir í
stjómarmyndunarviðræðum nú og
hafa meðal annars mótmælt efnahags-
steftiu Goria harðlega. Er þó tahð
líklegt nú að Goria takist að brúa bil-
ið milli flokkanna tveggja og eftir
fundinn í gær sagði Craxi að töluverð-
ur árangur hefði náðst.
Metsölu-
bækur
á ensku
vikulega
í flugi.
titlar af
tímaritum
frá USA.
Allt að
80 °/(
afsláttur af
O spennandi lesefni á
ensku í vasabroti
SdftAHÚSIO sfm?68-67-808