Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Síða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
Spumingin Lesendur
Á að banna bílaumferð um
Laugaveg?
Slysavamir:
Lítil rannsókn á bflslysum
styrksnefndar
Guðni Sörensen hringdi:
Ég vil þakka Hallgrími Einarssyni
kærlega fyrir sokkana og finnst þetta
skínandi gott uppátæki. Hins vegar
vil ég að einhver meira þurfandi fái
sokkana í hendur og bið því DV að
afhenda Mæðrastyrksnefhd sokkana.
Og sokkamir hafa nú þegar verið
póstlagðir til Mæðrastyrksnefhdar á
Njálsgötu 3 í Reykjavík.
Eiríkur Sæmundsson: Laugavegur-
inn á bara að vera fyrir gangandi.
Þröng í Casablanca
2463-0472 hringdi:
Við erum héma nokkur sem erum
sammála Gunnari sem skrifaði um
daginn. Við fórum á skemmtistaðinn
Casablanca um helgina og fannst
hrikalega margt fólk þar inni. Það var
ekki síst mikið um yngra fólk, jafhvel
undir lögaldri.
Eftir að við höfðum norpað um hríð
við barinn gáfumst við upp og fórum
á Borgina. Eins og Gunnar sagði þá
hefur öll aðstaða þar stórbatnað. Di-
skótekið er nú mun betra og ekki of
margt inni.
Sigurlina Kristjánsdóttir: Á ekki að
loka Laugaveginum fyrir bílaumferð,
það er margt fólk sem kemst ekki í
verslanir nema að fara á bílum alla
leið.
örvar Sigurðsson: Það er allt í lagi
að loka Laugavegi fyrir bílaumfeð
ef þeir setja þá nóg af bílastæðum
að ofan og neðanverðu við Lauga-
veginn.
Lesanda finnst Borgin hafa batnað við minnkandi aðsókn
Stirt stjómkevfi
Lesandi skrifar:
Það er ekki vinnandi vegur að fa
afgreiðslu í skrifræðinu á sumrin. Ég
lenti í því á dögunum að þurfa að
ganga á milli nokkurra opinberra
stofhana. Það var eins og við manninn
mælt, horfnar voru þær gömlu geð-
vondu sem annars einkenna stofhanir
af þessu tagi, en í stað þeirra voru
komnar broshýrar yngismeyjar, og
sveinar jafhvel á stöku stað.
Sá galli var þó á gjöf Njarðar að
yngismeyjamar (og sveinamir) vom
þó aðeins þama til að leysa af hólmi
gömlu hexin sem munu væntanleg
með lækkandi sól. Og þetta unga fólk
hafði yfirleitt ekki hugmynd um í
hverju starf þeirra var fólgið.
Ég get svo sem vel skilið að gamlar
og lúnar konur þurfi að taka sér hvíld
yfir sumarmánuðina og að ekki er
hægt að loka á meðan. En þarf kerfið
að vera byggt á einhverjum geðþótta-
ákvörðunum þeirra sem lengstan hafa
starfsaldur? Er ekki hægt að setja
þetta unga fólk inn í starfið sem það
á að sinna? Spyr sá sem ekki veit.
Hjörleifur Ólafsson varð fyrir svör-
um hjá Vegagerðinni og hafði þetta
um málið að segja:
„Blindhæðir em fjölmargar í vega-
kerfinu og alltaf spuming um hvað
menn telja blindhæð. Við teljum blind-
hæð vera þegar menn sjá ekki hvor
annan í hundrað og fimmtíu metra
fjarlægð hvor ffá öðrum miðað við að
sjónhæðin sé í metra hæð. Allar slíkar
hæðir hafa verið merktar sem slíkar
með viðeigandi viðvömnarmerkjum
og þeim verstu skipt í tvær akreinar.
Stefnt er að því að skipta öllum blind-
hæðum en þetta hefur alltaf verið
spuming um fjármagn. Það er smám
saman verið að breyta veginum eða
gera aðrar ráðstafanir þar sem blind-
hæðir em fyrir hendi.
Svo er rétt að vekja alveg sérstaka
athygli á því að á svonefhdum fjallveg-
um - eða vegum um hálendið - er
ekki um að ræða neinar viðvömnar-
merkingar. Þar er sem sagt almennt
gert ráð fyrir að ástand veganna sé
slíkt að menn þurfi ætíð að hafa fyllstu
aðgát.“
Þessir þrælgóðu sokkar eru nú eign Mæðrastyrksnefndar.
Sokkar til Mæðra-
Jónína Pálsdóttir: Á eingöngu að
nota Laugaveginn sem göngugötu.
Guðrún Björnsdóttir hringdi:
Ég var að lesa í DV þar sem Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, segir að það sé víða
pottur brotinn varðandi hreinlæti í
matvælaiðnaði. Komið hafi í Ijós dæmi
um saurkólígerla í matvælum sem seld
væm á höfuðborgarsvæðinu.
Mér finnst algjörlega forkastanlegt
gagnvart neytendum að upplýsa ekki
hvar þessi matvæli em seld. Þetta er
til háborinnar skammar og ég á varla
til orð yfir þetta. DV ætti að skera upp
herör og draga þessi vandamál varð-
andi matvæli ffam í dagsljósið.
I beinu framhaldi af þessu má spyrja
um þrifhaðinn hjá þeim sem eiga
hunda - og þá ekki síst hjá þeim
hundaeigendum sem starfa við mat-
væli á einhvem máta. Þessi umræða
er að vísu öll komin til vegna sýking-
arinnar þama fyrir vestan en það má
gjaman rannsaka þessi mál miklu
betur.
Oddný Guðrún Guðmundsdóttir: Það
á alveg hiklaust að banna alla um-
ferð, að hafa þetta göngugötu er
mikið þægilegra fyrir fólkið.
Áhugamaður um slysavarnir hringdi:
Vegna fréttarinnar tíunda júlí þar
sem skýrt var frá banaslysi á Sigöldu-
vegi í Rangárvallasýslu við Þórisvatn
- þar sem tvær bifreiðar skullu saman
á blindhæð með þeim afleiðingum að
farþegi í annarri biffeiðinni lést og
annar liggur stórslasaður - langar mig
að leggja spumingu fyrir Vegagerð-
ina.
Hefur Vegagerðin eitthvað sérstakt
í huga - áætlanir eða annað slíkt -
hvað viðkemur blindhæðum á malar-
vegum úti á landi? Eru uppi áætlanir
um að skipta blindhæðum eða gera
eitthvað annað til vamar?
Það má líka benda á annað í þessu
sambandi - mikið misræmi er í slysa-
rannsóknum. Látist fólk í flugslysi eða
úti á sjó em sett upp sárstök réttar-
höld. En látist maður í umferðarslysi
fær almenningur ekkert að vita um
orsökina og engin sérstök nefnd er
látin fjalla um málið. Og einmitt þess
vegna er ekkert gert í þeim málum til
þess að koma í veg fyrir að sami at-
burður endurtaki sig ekki.
„Stefnt er að þvi að skipta öllum blindhæðum."
Eru saurgerlar ein-
hvers staðar til sölu?
Lífeyrissjóðslánin:
Klippið á vísitöluna
7702-8501 skrifar:
Ég vil skora á ríkisstjómina að
hjálpa nú þeim sem verst em settir
í þjóðfélaginu. Þá á ég við að fella
niður lífeyrissjóðslán hjá þeim sem
ekki gátu látið lífeyrissjóðslánin
fylgja með við sölu vegna reglna líf-
eyrissjóðsins sem bönnuðu það á
þeim tíma þótt nú sé búið að breyta
því.
Þetta fólk fékk sér lánuð veð til
að flytja lánin á því reglumar leyfðu
ekki annað.
Nú hafa þessi lán hækkað gífur-
lega og hækka enn og hjá þessu fólki
er engin eign sem mætir hækkunum
eins og er hjá þeim sem eiga eignir.
Hvað er hægt að gera? M.k. mætti
í þessum tilfellum klippa á vísitöluna
ffá þeim tíma sem fólkið varð eigna-
laust.
Ég bið um svar frá einhverjum sem
vit hefur á slíkum málum.
Geta viðkomandi ekki farið í mál
við lífeyrissjóðinn fyrir að banna það
að lánið fylgdi við söluna á sínum
tíma eða krafist einhverra úrbóta?
Hringið í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið