Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
íþróttir
• Bernd Schúster.
Úrvmsum
attum
• En berast nýjar fréttir af v-
þýska vandræðabaminu Bernd
Schuster. Nú hefúr hann ákveðið
að skrifa ekki undir margra ára
samning við Barcelóna en í stað-
inn ætlar hann að skrifa undir árs
samning.
„Samningur minn gildir í eitt ár
í viðbót og þá get ég farið til hvaða
liðs sem er án nokkurs gjalds.“
Femandez Nunez, forseti Barcel-
óna, brást reiður við þessum
ummælum og sagði: „Schúster
leikur ekki framar í treyju Barcel-
óna.“
Schúster, sem nú er 27 ára, virð-
ist ætla að ganga illa að festa rætur
hjá nokkru liði en eins og kunnugt
er þá á hann einnig í útistöðum
við v-þýska landsliðið og hefúr
ekki leikið með því síðan 1984.
• Havelange, forseti FIFA (Al-
þjóða knattspymusambandsins),
hefur sagt að hann muni ekki
styðja tilboð Kanada um að halda
leikana ásamt Bandaríkjamönnum
1994. Ásamt þeim hafa Chile, Mo-
rokkó og Brasilía boðið í leikana
og þykir mörgum líklegt að Brasil-
ía fái þá enda er það heimaland
Havelange og hafa þeir ekki fengið
leikana síðan 1954.
• Daniel Passarella, sem var
fyrirliði Argentínumanna þegar
þeir urðu heimsmeistarar 1978,
hefur nú gefið út þá yfirlýsingu að
hann ætli að hætta eftir næsta
keppnistímabil. Passarella lenti í
slæmu máli á síðasta vetri þegar
hann sparkaði í boltadreng þegar
honum fannst hann ekki sýna
nógu snögg viðbrögð. Hann mun
leika með Inter Mílanó áfram.
-SMJ
Hvað gera Leiftiirs-
menn gegn íslands-
meisturum Fram?
8-liða úrslitin í Mjólkurbikamum hefjast í kvöld
TVeir leikir verða í bikarkeppni
KSf, Mjólkurbikamum, í kvöld. Þá
mætast Leiftur og Fram annars vegar
og Þór og ÍBK hins vegar. Verður
fróðlegt að fylgjast með því hvemig
íslandsmeisturum Fram gengur gegn
„spútnikliði" Leifturs en frábært gengi
þeirra Ólafsfirðinga er eitt af því sem
hvað mest hefur komið á óvart það
sem af er sumri en ef fram heldur sem
horfir þá blasir 1. deildin við þeim.
Þá gætu 4 lið af Norðurlandi orðið í
1. deild sem er þróun er enginn hefði
treyst sér að spá fyrir nokkrum árum.
Hinn leikurinn í kvöld vekur ekki síð-
ur athygli því þar mætast Þórsarar
sem hafa verið í miklum ham að und-
anfómu og Keflvíkingar sem á
mánudag ráku hin enska þjálfara sinn,
Peter Keeling. Verður fróðlegt að sjá
hvort þessi brottrekstur hressir eitt-
hvað þá Suðumesjamenn.
Á fimmtudagskvöld mætast síðan
Valur og Völsungur og Víðir og KR.
Verða það án efa hörkuleikir en öll
þessi lið hafa verið að gera jafiitefli í
innbjTðis leikjum sínum að undan-
fömu.
-SMJ
Sammy Lee til Spánar
Sammy Lee, sem virðist nú vera
öllum glevmdur eftir frækinn feril
hjá Liverpool og nokkra landsleiki
í kjölfar þess, er nú búinn að undir-
rita tveggja ára samning við spánska
1. deildarliðið Osasuna frá Pampl-
ona.
Lee sem varð tvisvar Evrópumeist-
ari með Liverpool lék með QPR á
síðasta ári. Þrátt fyrir að hann vekti
mikla athygli fyrir baráttu og þrek
hjá Liverpool virtist allur vindur úr
honum þegar hann fór þaðan.
-SMJ
Sammy Lee.
• Þetta eru leikmenn úrvalsliðanna tveggja sem glimdu í Þorlákshöfn í gærkvöldi, - DV-menn vitanlega sigurreifir.
DV-mynd GUN
DV-lið 10. umferðar
Ámí Stefánsson,
Þór, vamarmaður
K §
Gíslí Heíðarsson,
Víði, markvörður
HenningHenn-
ingsson, FH,
vamarmaður
Sœvar Jónsson,
Val (2), vamar-
maður
Ágúst MárJóns-
son, KR(3),
vamannaöur
sSlil'P
Jónas Róbertsson,
Þór, miðjumaður
PálmiJónsson,
FH, soknarmaður
Pétur Amþórsson,
Prara (6), miðju-
maður
AðalsteinnAðal-
stemBs., Völsungi,
miðjumaður
HulldórÁskuls-
son,Þ6r(5),
aóknannaður
Hiynur Birgisson,
t>ór, sóknarmaður
DV leggur
Síðumúla-
pressuna
Sá merkisviðburður átti sér stað í
Þorlákshöfn í gærkvöldi að knatt-
spymulið DV sigraði Síðumúlapress-
una, úrval Þjóðviljans og Tímans, með
6 mörkum gegn 4.
Leikurinn var tvísýnn frá upphafi
og var framganga leikmanna með
vasklegasta móti. Úrslit réðust enda
ekki fyrr en á síðustu mínútum.
Heimamenn í Þorlákshöfn búa ákaf-
lega vel, - eiga þeir glæsilegan grasvöll
en sá galli er á gjöf Njarðar að ekkert
er kappliðið. Var rimman því kærkom-
in knattspymufíklum staðarins sem
fjölmenntu til að þeyta hom.
Eftir leikinn var kappmönnum
beggja liða fylgt um staðinn þar sem
Einar Sigurðsson, skipstjóri og odd-
viti, rakti sögu bæjarins í stuttu máli.
-JÖG/SMJ
Breyttir leikdagar
Leik Víkings og Breiðabliks sem átti að vera næsta laugardag hefur verið
flýtt og verður hann fimmtudaginn 23. júlí kl.20. Þá hefur leikdegi á leik
Stjörnunnar og Aftureldingar í 3. deild verið breytt og verður leikurinn 24.
júlí kl. 20.
• Guðbjörn Tryggvason verður i banni
gegn Fram á sunnudaginn kemur.
Miklar annir h|á
aganefnd KSI
Fundur var hjá aganefiid KSÍ í gærkvöldi
og voni þá eftirtaldir leikmenn dæmdir í eins
leiks bann sem tekur þegar gildi: Ámi Sveins-
son, Stjömunni, Baldur Guðnason, Þór,
Guðbjöm Tryggvason, fA, Ingi Sigurðsson,
ÍBV, Páll Guðmundsson, Selfossi, Valur
Ragnarsson, Fylki, Hreiðar Hreiðarsson, Ár-
roðanum og Hjördís Olfarsdóttir, KA. Þá
voru tveir leikmenn dæmdir í tveggja leikja
bann, þeir Kristján Magnússon, Hetti, og
Grétar Guðlaugsson, Skallagrími.
-SMJ
Hófkeppm
eftir26ára
fjarveru!
Nokkrir gamalkunnir fijálsíþróttakappar
mættu til keppni á íþróttavellinum í Keflavík
síðastliðinn föstudag og náðu athyglisverðum
árangri.
f 40 ára flokki sigraði Trausti Sveinbjöms-
son, FH, í 100 m hlaupi á 12,1 sek. og einnig
í 800 m hlaupi á 2:17,0 mín. í kúluvarpi í 35
ára flokki kastaði EHas Sveinsson, KR, 12,59
m og 40,88 m í kringlukasti.
f 45 ára flokki kastaði ólafúr Unnsteinsson,
HSK, 36,48 m í kringlukasti. í 50 ára flokki
kastaði Jón H. Magnússon, ÍR, 50,24 m í
sleggjukasti og Bjöm Jóhannsson, UMFK,
42,80 m. í 55 ára flokki kastaði Ólafúr Þórðar-
son, ÍA, 12,11 m í kúluvarpi og 36,00 m í
kringlukasti. Einar Ingimundarson, UMFK,
kastaði 35,66 m í sleggjukasti í 60 ára flokki.
Einar hefúr ekki keppt síðan 1961 eða í 26 ár.
-ÓU
Pedro Delgado frá spáni
glúnir hér við Luis Marrera, fiá Kólumbíu,
um forystuna í Toui- de France reiðhjóla-
keppninni Delgado leiðir nú keppnina og
klaiðist því gula forystujakkanum þegar fök-
amir verða stignir í 21. þætti hennar. Flestir
tclja að Delgado hafi sigur þegar upp verður
staðið en um slíkt er í raun ógerlegt að spá.
Keppnin er án efa ein sú erfiðasta sem fram
fer í heiminum í íþróttinni og hellast ófáir
úr lestinni. Á meðal þeirra kempur í allra
fremstu röð.
Símamynd/Reuter
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
17
íþróttir
Lárus spjarar sig
Nóg að gera hjá
Per Skárup
- hjá Gladsaxe/HG í Danmörku
Eins og kunnugt er er Daninn Per
Skámp alls ekki hættur afskiptum sín-
um af handknattleik þó að íslandsdvöl
hans sé lokið. Skámp hefúr tekið að
sér að þjálfa og leika með danska lið-
inu Gladsaxe/HG og bíða Danir
spenntir eftir því að sjá hvað hann
hefúr lært á íslandi.
Það er þegar ljóst að Skárup verður
að leika stærra hlutverk með liðinu
en hann ætlaði sér í upphafi. Aðalleik-
stjómandi liðsins, Nils-Erik Winther,
sem lék meðal annars nokkra lands-
leiki á síðasta vetri, hefur yfirgefið
Gladsaxe og leikur nú með svissneska
liðinu Grasshoppers. Það er því ljóst
að Skámp getur reynst erfitt að fylla
það skarð sem Winthers skilur eftir
sig. Hann getur þó hugsað gott til
glóðarinnar því einn efnilegasti leik-
maður Dana, Peter Jörgensen, leikur
með liðinu.
„Ég verð líklega að leika meira með
liðinu en ég ætlaði mér,“ sagði Skárup
í viðtali við Politiken.
-SMJ
Eusebio aðstoðar
Dana hjá Benfica
Einn frægasti knattspymumaður
allra tíma er án efa portúgalski leik-
maðurinn Eusebio. Hann hefur haft
fremur hægt um sig síðan ferli hans
lauk snemma á áttunda áratugnum.
Nú hefúr hann hafið störf aftur fyrir
lið sitt Benfica og er hann aðstoðar-
þjálfari Danans Ebbe Skovdahl sem
þjálfaði í Danmörk á síðasta ári. Hafa
þeir tveir vakið mikla athygli bæði í
Danmörku og Portúgal.
„Miðað við það sem ég hef heyrt af
Dönum og danskri knattspymu þá gat
ég einskis óskað mér fremur en að fá
danskan aðalþjálfara hér til Benfica,"
sagði Eusebio í viðtali nýlega. „Við
komum til með að starfa mjög náið
saman því ég þekki leikmennina og
skapferli þeirra. Fyrstu vikumar mun
ég miðla þeim fróðleik til Skovdahl,"
bætti Eusebio við en ekki er að efa
að hinir fjölmörgu aðdáendui- sem
hann aflaði sér á Laugardalsvelli 1968
munu fylgjast með honum i þjálfara-
starfinu.
-SMJ
• Eusebio fékk mörg tækifæri til að
gleðjast með Benfica og portúgalska
landsliðinu á sinum tíma en nú er
hann aðstoðarþjálfarr hjá Benfica.
• Lárus Guðmundsson virðist ætla að gripa tækifærið með Kaiserslautern
tveim höndum.
• Per Skárup er þungt hugsi á þessari mynd enda í nógu að snúast hjá
honum við að undirbúa keppnistímabilið.
Sgurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
Lárus Guðmundsson lék sína fyrstu
leiki með Kaiserslautem nú um helg-
ina. Kempan hefur átt við lítils háttar
meiðsl að stríða á síðustu vikum en
er nú að komast á skrið.
Leikir Kaiserslautem komu til
vegna æfingamóts þar sem Bayem
Múnchen hafði sigur eftir að leggja
bæði Köln og HSV að velli.
„Keisarahöllin", lið Lárusar, glímdi
einnig við HSV og Köln en tapaði
báðum ieikjum, þeim fyrri 2-3 en þeim
síðari 1-3.
Lárus var ekki á skotskónum á mót-
inu. Hannes Bonqartz, þjálfari Kais-
erslautem, sagðist þó ánægður með
Láms og frammistöðu hans í leikjun-
um tveimur. Taldi Bonqartz að leikur
Lárusar á mótinu gæfi fyrirheit um
ágæt afrek á komandi keppnisári.
-JÖG
í æfíngaleikjum
- spilaði sína fyrstu leiki með Kaiserslautem um helgina
Lord Lichfield, hirðljósmyndari bresku krúnunnar.
Lord Lichfield gerir miklar kröfur um mypdskarp-
leika og gæði litsjónvarpstækis. Tatung uppfyllti
kröfur hans og við treystum okkur hiklaust til að
mæla með Tatung litsjónvarpstæki við þig.
Tatung litsjónvarpstækin eru framleidd af verk-
smiðju Tatung í Englandi sem er ein fullkomnasta
litsjónvarpstækjaverksmiðjan I Evrópu. Gæðaeftir-
lit er mjög strangt. Hvert einasta tæki gengur 1
sólarhring áður en það er endanlega afgreitt. Full-
komin tölva skráir allar mælingar. Þetta tryggir þér
vel stillt úrvals tæki.
Vegna hagstæðra samninga getum við boðið Tat-
20" standard
20" fjarstýrt
22" fjarstýrt
22" stereo, fjarst.
26" fjarstýrt
Fætur með hjólum og hillu fyrir video fylgja með.
i kr. 7.000,- Staðgreitt
kr. 36.940,- kr. 34.990,-
kr. 41.980,- kr. 39.880,-
kr. 44.130,- kr. 41.920,-
kr. 49.990,- kr. 47.405,-
kr. 58.130,- kr. 53.990,-
Kynntu þér TATUNG, það margborgar sig.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Borgartúni 28 - sími 91-16995/91-6 22 900.