Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
SKAMMTÍMAVISTUNIN
ÁLFALANDI 6
Starfsmann vantar í eldhús frá 1. ágúst. Um er að
ræða hlutastarf á vöktum. Upplýsingar veitir forstöðu-
maður í síma 32766.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
LAUSAR STÖÐUR VIÐ FRAMHALDSSKÓLA:
Við Iðnskólann í Reykjavík er laus kennarastaða í dönsku.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi eru lausar kennarastöður
í stærfræði, eðlisfræði og efnafræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 1.
ágúst.
Menntamálaráðuneytið
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júnímánuð 1987 hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ. m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. ágúst.
20. júlí 1987
Fjármálaráðuneytið
LANDSPÍTALINN
Eftirtalið starfsfólk óskast til starfa á bráðamóttöku-
deild á Landspítalanum sem fyrirhugað er að opna í
september nk.
Hjúkrunardeildarstjóra, hjúkrunarfræðingar og sjúkra-
liðar.
Deildin verður opin allan sólarhringinn alla daga vik-
unnar.
Undirbúningsnámskeið verður haldið fyrir starfsfólk
áður en deildin opnar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími
29000 - 485 eða 484.
Reykjavík, 22. júlí 1987
RÍKISSPÍTALAR
LAUSAR STÖÐUR
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, meðferðarfulltrúar
svo og starfsfólk í eldhús og ræstingu óskast til starfa
nú þegar á barna- og unglingageðdeildina við Dal-
braut.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími
84611.
Ritari óskast til starfa á birgðastöð Ríkisspítala.
Upplýsingar gefur forstöðumaður birgðastöðvar, sími
671362.
Kópavogshæli
Deildarþroskaþjálfar óskast til starfa á vinnustofum
Kópavogshælis og á deildum.
Sjúkraliðar óskast til starfa við Kópavogshæli bæði í
afleysingar og til frambúðar.
Starfsfólk óskast nú þegar til sumarafleysinga og til
frambúðar til starfa á deildum Kópavogshælis.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir framkvæmda-
stjóri eða yfirþroskaþjálfi í síma 41500.
Reykjavík, 22. júlí 1987
Sandkom
Kaldhæðni
örlaganna
Eins og marga rekur sjálf-
sagt minni til stóð SÁÁ fyrir
happdrætti eigi alls fyrir
löngu. Happdrættið hefur
löngum reynst félaginu drjúgt
við tekjuöflun en nú gekk sal-
an heldur treglega. Segir
sagan að fáir vinningar hafi
gengið út og eini bílavinning-
urinn sem komið hafi á seldan
miða hafi farið til starfsmanns
ákveðinnar ríkisstofnunar. Sá
mun vera sölumaður Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins
sem óhjákvæmilega tengist
óbeint starfsemi SÁÁ.
Víða eru gróð-
ursvæðin
Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndagerðarmaður er um
þessar mundir upptekinn við
vinnu á nýjustu kvikmynd
sinni, í skugga hrafnsins.
Myndatökur hafa farið fram
hér og þar um landið og nú
nýverið var kvikmyndafólkið
í Vík í Mýrdal. Voru aðkomu-
menn búnir að fara með sitt
hafurtask niður í fjöru við
sandgræðsluna þegar oddvit-
inn á staðnum birtist og spurði
hvort þeir hefðu leyfi til að
vera þarna. Kom á daginn að
ekki hafði verið talað við
Magnús Kjartansson tónlistarmaður vlll ekki veröa eins og hvert annað
húsgagn á Hótel Sögu og hyggst þvi leggja land undlr fót.
Maggiaf Sögu
Nú virðist allt stefna í að
Magnús Kjartansson tónlist-
armaður hverfi frá Hótel Sögu
næsta vetur en þar hefur hann
skemmt gestum við góðan
orðstír. Ekki er ljóst hvað
Magnús ætlast fyrir en gár-
ungarnir segja að hann hafi
viljað fyrir alla muni losna til
að verða ekki eins og eitthvert
húsgagn á Hótel Sögu. Segir
sagan að hann hafi ekki viljað
enda uppi sem einhver Raggi
Bjama á Sögu, hvað sem það
þýðir nú!
neinn um leyfi til að kvik-
mynda á staðnum. Verið er að
græða upp sandlendið og
heimamönnum því mjög sárt
um að vel sé gengið þar um.
Var kvikmyndfólkið beðið að
ganga/keyra vel um, halda sig
innan slóða og vera ekki með
neina óþarfa umferð. Segir
sagan að Hrafn hafi tekið vel
í það og eftir það fylgst með
umgengni samstarfsmanna
sinna haukfránum sjónum. Er
sagt að heimamenn hafi ekki
kynnst betri sandgræðslu-
verði.
Varla hefur þessi stúlka taliö sig
hafa náö ídansfélaga.
Ekki dansað
við sveppi
Skemmtileg atvik koma oft
fyrir í hinu daglega lífi og oft
vilja gullkorn falla af munni
fólks í öllu amstrinu. Nýlega
átti sér stað skemmtiiegt atvik
i kjörbúð í Reykjavík.
Kona nokkur kom askvað-
andi inn í verslunina og spurði
heldur gustmikil hvar svepp-
imir væru. Afgreiðslustúlkan
vísaði konunni á sveppina og
var þá spurð hvað sveppirnir
kostuðu og hvort þeir væru á
venjulegu verði. Áfgreiðslu-
stúlkan upplýsti frúna um
hvert verðið væri og sagði að
það væri ofur venjulegt. Kon-
an skoðaði nú sveppina í krók
og kring og hafði síðan mikil
og stór orð uppi um hve ljótir
sveppirnir væru. Að það væri
hreinlega skammarlegt að
selja svo ljóta sveppi á venju-
legu verði. Segir sagan að
afgreiðslustúlkan hafi þá sagt
án þess að hika: „Sveppir eru
nú venjulega til átu en ekki
til að dansa við.“ Við þetta
tilsvar hvarf hinn væntanlegi
sveppakaupandi tómhentur af
vettvangi.
Jón og
framsóknar-
stóryröin
Oft hefur verið sagt að
stjómmálin velji saman
skrítna rekkjunauta enda vill
það oft verða raunin. Stjórn-
málamenn verða stundum að
gera fleira en þeim þykir sjálf-
um æskilegt eða gott og
jafnvel kyngja ýmsum stór-
yrðum frá fomri tíð. Eitt
nýlegasta dæmið er stjómar-
pörun Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks en eins og
margsinnis hefur komið fram
í fjölmiðlum hefur formaður
Alþýðuflokksins ekki vandað
framsóknarmönnum kveðj-
umar. Má finna tilvitnanir
eins og þá að „Framsóknarvist
sé vondur kostur", „Gustuk
ef við leystum Þorstein úr
framsóknarfjósinu" og „Ég
trúi því ekki upp á það ágæta
fólk að það vilji sitja uppi með
Framsóknarflokkinn í ríkis-
stjóm í fjögur ár til viðbótar
við þessi sextán. Lýðveldið er
ungt og þolir ekki hvað sem
er.“
Allt virðist nú fallið í ljúfa
löð og Jón kominn í vist í
framsóknarfjósinu til að láta
lýðveldið ganga í gegnum eina
þolraunina enn.
Úkuprófs-
raunir
„Hvemig gekk í ökupróf-
inu?“
„Ég féll. Á að fara aftur eftir
14 daga.“
„Heldurðu að það verði sami
prófdómari?“
„Nei, hann losnar ekki af
sjúkrahúsinu svo fljótt."
Umsjón:
Jónas Fr. Jónsson
bendir til Grimseyjar
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii:
Yst í Ólafsfjarðarmúla er útskot sem
ferðamenn stansa gjaman á til að
njóta útsýnisins. Frá Múlanum sést
til Grímseyjar og langt norður í ballar-
haf. Óvenjumargir ferðalangar hafa
verið fyrir norðan í sumar. Þessi fjöl-
skylda úr Kópavoginum varð á vegi
DV á útskotinu í Múlanum. Faðirinn,
Sighvatur Ellefsen, myndaði Grímsey
en á meðan nutu mæðginin, Hanna
Bjömsdóttir og Bjöm Sighvatsson,
útsýnisins.
A útskotinu yst í Ólafsfjarðarmúla og bent til Grímseyjar.
DV-mynd JGH
Litiö mal aö mala. Þær (óru lett meö aö bera gulu málninguna á kantana, Elín Sigriöur og Lautey Haflína.
DV-mynd JGH
DV á Ólafsfirði:
Upp á kant við kant
Jón G. Hauksaan, DV, Akureyri:
Þær Elín Sigríður Rafnsdóttir, 12
ára, og Laufey Haflína Finnsdóttir,
13 ára, á Ólafsfirði segja að það sé
ágætt starf að mála kantsteinana en
eins og með öll störf geti það verið
leiðinlegt til lengdar.
Þá emð þið einfaldlega komnar
upp á kant við kant, ekki satt? „Jú,
það má segja það,“ svöruðu þær fliss-
andi.
Málningin er hefðbundin, þessi
gula sem allir þekkja. Og kantamir
vom við Ólafsgötu og aðalgötuna í
bænum sem heitir einfaldlega Aðal-
gata.