Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987.
Kvilanyndahús
Bíóborg
Angel Heart
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15
Arizona yngri
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Moskítóströndin
Sýnd kl. 7 og 9.
* Krókódíla Dundee
Sýnd kl. 5 og 11.05.
Bíóhúsið
Bláa Betty
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Morgan kemur heim
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Morguninn eftir
“r Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Blátt flauel
Sýnd kl. 9.
Háskólabíó
Herdeildin
Sýnd kl. 7, 9.05 og 11.15.
Bönnuð innan 16. ára.
Laugarásbíó
Gustur
Sýnd kl., 7, 9 og 11.
Meiriháttar mál
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Martröð á Elmstraeti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Regnboginn
Á eyoieyju
Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15.
. Haettuástad
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 9.10 og 11.10.
Dauðinn á skriðbeltum
Sýnd kl. 9.05 og 11.05.
Á toppinn
Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05.
Gullni drengurinn
Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15.
Þrir vinir
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Kvikmyndasjóður
kynnir
Punktur, punktur, komma, strik
Dot, Dot, Comma, Dash
Leikstjóri: Þorsteinn Jónsson.
• Sýnd kl. 7.
Stjörnubíó
Haetturlegur leikur
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Heiðursvellir
Sýnd kl. 5.
Sýnd laugardag kl. 3.
Bönnuð innan 14 ára
TÆKI-
FÆRIN
eru
óteljandi
r
1
smáauglýsingum.
DV
Smáauglýsinga-
siminn er
27022.
LUKKUDAGAR
22. júli
69177
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.
Vinningshafar hringi i síma
91-82580.
Kvikmyndir
lii
Unga parið í myndinni Witchboard á eftir að sjá eftir því að hafa brugðið
á leik með öndunum.
Dulmagnaður
leikur
- í Laugarásbíói á næstunni
Laugarásbíó tekur brátt til sýn-
inga bandaríska hrollvekju frá
kvikmyndafyrirtækinu Samuel
Goldwyn Company og viðfangsefnið
er íslendingum ekki alls óþekkt fyr-
irbæri enda fjallar myndin um
dulmagnaðan leik skyldan þeim er
við köllum andaglas sem raunar er
af flestum álitið hinn besti sam-
kvæmisleikur.
Myndin ber nafnið Witchboard og
höfundur handrits og leikstjóri er
Kevin Tenny. Hún segir írá því þeg-
ar ungt par, Jim, leikinn af Todd
Allen, og Lina, sem leikin er af Taw-
ny Kitaen, flytja inn í nýtt hús í
smábænum Fairfield. Þau halda
reisugilli og bjóða til sín fjölda gesta
fyrsta kvöldið í nýja húsinu. Þar er
þessi leikur, Witchboard (sem réttast
væri kannski að kalla andaborð),
dreginn fram og fyrr en varir fara
undarlegir hlutir að gerast í húsinu.
Illir andar láta heldur betur á sér
kræla og lífi þeirra sem þátt taka í
leiknum er ógnað. Ekki verður frek-
ar fjölyrt um hvemig endirinn er.
Todd Allen, sá sem fer með annað
aðalhlutverkið, fer í þessari mynd
með sitt stærsta hlutverk til þessa.
Áður hefur hann farið’með auka-
hlutverk í kvikmyndunum Sil-
verado, Mask og Uncommon Valor
og kannast bíóáhorfendur hérlendis
eflaust við hann úr þeim því þær
tvær fyrmefndu fengu góða aðsókn
hér á sínum tíma.
Tawny Kitaen, sú sem fer með hitt
aðalhlutverkið, öðlaðist fyrst frægð
fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþátta-
röðinni Califomia Girls. Hún fór
einnig með eitt aðalhlutverkið í
kvikmyndinni Bachelor Party þar
sem hún lék á móti Tom Hanks.
Leikstjórinn og höfundur hand-
ritsins, Kevin Tenny, er ungur
leikstjóri og nýútskrifaður úr kvik-
myndaskóla hlaut hann Emmy
verðlaun fyrir þátt sinn í kvikmynd-
inni War Games árið 1982 sem
efnilegur leikstjóri. Ein kvikmynda
hans, The Book of Joey, vakti mikla
athygli fyrir fáum árum. í þessari
mynd fæst hann í fyrsta skipti við
hrollvekjusögu og fróðlegt verður
að sjá útkomuna. -BTH
A ferðalagi
Hengifoss, Hengifossá,
Hengifossáivatn
í norðanverðum Fljótsdal í Norður- Múlasýslu
fellur Hengifossá fram af brúnum. Áin, sem fær
nafn sitt af vatnsfallinu, er fremur vatnslítil en
fossinn þess hærri og telst hann sá þriðji hæsti á
landinu, 118 metrar. Svo haldið sé áfram að rekja
ætt og ósa fossins þá rennur Hengifossá úr Hengi-
fossárvatni á Fljótdalsheiði og fellur að endingu í
Lagarfljót innanvert.
Líklega hefur sá sem réði Hengifossnafninu viljað
kalla Lagarfljót „Hengifossfljót", - en ekki fengið.
Áður en að Lagarfljóti er komið fellur Hengifossá
niður þar sem Litlanessfoss heitir og eru þar skoð-
unarverðar stuðlabergsmyndanir.
Um fossbrún Hengifoss segir í Landið þitt ísland:
„í fossbrúninni eru nokkur blágrýtislög en milli
þeirra röndótt millilög, sum þeirra fagurrauð að
lit. Neðan blágiýtislaganna er þykk sandsteins-
myndun sem veðrast fyrr en blágrýtið og veldur
því eiginlega fossmynduninni. I sandsteininum er
allmikið um tijástofria af kulvísum trjám, einkum
barrtijám, sem bera vitni um hlýtt loftslag hér á
landi á síðari hluta tertiertíma."
Segir einnig að skáldið, náttúruskoðandinn og
hugsjónamaðurinn Jónas Hallgrímsson hafi ranns-
akað surtarbrandinn í gilinu á ferðum sínum um
landið.
Til að komast að Hengifossi þarf að ganga spöl
frá þjóðveginum. Þegar lítið er í ánni er mann-
gengt á bak við fossinn og er þar að finna hellis-
skúta.
Hengifoss í Hengifossá er þriðji hæsti foss landsins, 118 metra hár.
Útvarp - Sjónvarp
Bryndís lætur lukkuhjólið snúast í kvöld.
Stöð 2 kl. 20.15:
Ráðhevrafmin
stjómar Strætis-
vögnum Reykjavíkur
Þáttur Bryndísar Schram, Happ í
hendi, verður á dagskrá Stöðvar 2 í
kvöld en þátturinn er á dagskrá hálfs-
mánaðarlega á móti þættinum Allt í
ganni.
í kvöld fær hún til liðs við sig þijá
starfsmenn Strætisvagna Reykjavík-
ur, Óla, Biyndísi og Einar. Óli vinnur
á verkstæðinu, Biyndís ekur leið 13,
við skulum vona að það verði henni
ekki fjötur um fót, og Einar ekur leið
16.
Þau munu sem endranær láta örlög-
in ráða ferðinni og ef heppnin er með
þeim má búast við að heimilistækjum
á þeirra heimilum fjölgi til muna.