Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Síða 5
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
_______________Fréttir
Háskolinn:
Námsmönnum
fækkar
Mjög hefur dregið úr þeirri fjölgun
námsmanna sem átt hefur sér stað
undanfarin ár og bendir ýmislegt til
þess að þeim muni jafnvel fækka frá
þvi sem var í fyrra.
Nýinnritaðir stúdentar í Hásköla
fslands voru 1329 þegar skráningu
lauk nú í sumar. í fyrra voru þeir hins
vegar fleiri eða 1345. Þetta er mikil
breyting frá því sem verið hefur iengi
því stúdentum við Hákskólann hefur
fjölgað mjög ört í tvo áratugi.
Nú er unnið úr umsóknum um
námslán fyrir skólaárið ’87-’88 og end-
anlegar upplýsingar munu liggja fyrir
eftir tvær vikur. Að sögn Sigurbjöms
Magnússonar, stjómarmanns í LÍN,
hefur hugsanlega orðið einhver fækk-
un á námsmönnum en hann tók fram
að endanlegar tölur lægju ekki fyrir.
Sigurbjöm sagði einnig að flest benti
til þess að fjárveiting ársins myndi
duga Lánasjóðnum. Því ætti ekki að
koma til þess að aukafjárveiting yrði
nauðsynleg eins og verið hefur undan-
farin ár.
Fulltrúar námsmanna í stjóm LÍN
hafa lagt fram tillögu í stjóminni um
að framkvæma könnun á raunveruleg-
um framfærslukostnaði námsmanna.
Telja þeir að námslánin séu allt of lág
og vonast til að slík könnun verði til
að færa námslánin nær raunvemleg-
um framfærslukostnaði námsmanna.
Ekki er ljóst hvort eða hvemig slík
könnun verður framkvæmd en ák-
vörðun um það verður tekin á næstu
vikum.
-ES
Kristján Karlsson, þrítugur kennari,
er kominn i samkeppni við kaupfélag-
ið. Hann hefur tvær góðar ástæður
til að kalla sjoppuna sína Hornið.
DV-mynd JGK
DV á Raufarhofn:
Ber nafn
með rentu
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
Kristján Karlsson, 30 ára kennari á
Raufarhöfn, setfi í vetur upp verslun,
eða öllu heldur sjoppu. Kaupfélagið
hefúr séð um verslunarmálin til þessa.
Kristján segir kíminn að kaupfélagið
hafi lítið tjáð sig um búðina.
Hvað um það, Kristján hefur tvær
ástæður til að kalla sjoppuna sína
Homið. Eitt hom hússins skekktist
þegar hann flutti það og svo fékk hann
ekki það hom við aðalgötuna á Rauf-
arhöfn sem hann óskaði. Hann reisti
húsið þess vegna á næstu lóð við.
„Þetta gengur ágætlega," segir
Kristján sem hætti ekki í kennslunni
vegna leiða heldur „er þetta einhver
þörf hjá mér að vesenast, ég átti áður
hellusteypu."
mm
T/EKlt)
>?
OG þU FLYGUR
í GEGNUM DAGINN
Uon»r Steinsso® ^e^fa“s6r
fjðlmargra sem
fíölskyldutnmmtækio
ÍÉC
MBB
, r timmæli Jóns Páis-
-g erjjirifinn af fjölskyldutrimmt
*“ fjolskyldunni
halda
ækinu
seLÍ formi.
hentar
Hvernig á að nota
fjölskyldutrimmtækið rétt?
Burt með aukakíló.
Æfið 5 mín. á dag.
Til þess að ná árangrf verður að æfa hinar þrjár
mikilvægu undirstöðuæfingar daglega.
Eftir að byrjað er að æfa samkvæmt æfingar-
prógrammi mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér
Æfing 2
Þessi æfing er fyrir handleggi og rassvöðva.
Leggist á hnén á sætið á trimmtækinu. Takið báðum
höndum um vinklana, handleggirnir hafðir beinir og
stífir allan tímann. Teygið úr fótunum þannig að setan
renni út á enda, hnén dregin aftur að vinklunum.
Æflngin endurtekin a.m.k. fimm sinnum.
Æfing 1
Þessi æfing er fyrir magavöðva og stuðlar að mjóu mitti
Setjist á sætið á trimmtækinu, ieggið fæturna undir
þverslána, hendur spenntar aftur fyrir hnakka. Látið
höfuðið síga hægt að gólfi. Efri hluti Ifkamans er
reistur upp og teygður í átt að tám.
Mikilvægt: Æfingu þessa verður að framkvæma með
jöfnum hraða án rykkja. í byrjun skal endurtaka
æfinguna fimm sinnum, en síðan fjölga þeim í allt að
tíu sinnum.
Æfing 3
Þessi æfíng er tll þess að þjálfa og móta Iærvöðva,
fætur og handleggi.
Setjist á sætið og takið báðum höndum um
handföngin á gormunum og dragið sætið að
vinklunum. Teygið úr fótunum og hallið efri hluta
líkamans aftur og togið í gormana. Haldið gormunum
strekktum allan tímann og spennið og slakið fótunum
til skiptis.
Æfingin endurtekin a.m.k. tíu sinnum.
Enginn líkami er góður
án vöðva í brjósti,
, maga og bakhluta
Kúlumagi, fitukeppir, slöpp brjóst,
slappur bakhluti o.s.frvj
Allt þetta sýnir slappa vöðvavefi.
Byrjaðu strax að stækka og styrkja vöðvana þlna
með þessari árangursríku og eðlilegu aðferð.
Leggðu fljótt af
Misstu aukakíló
KHI DIIKOHl
IXKXAntl
V/SA
Verð aðeins
3.290,-
Pöntunarsími 91-651414
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00
Póstverslunin Príma Box 63, 222 Hafnarfirði
jfsniu NVdt