Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. 7 Fréttir Félagarnir og fóstbræðurnir Megas og Bubbi voru sérstakir gestir á Rik- krokki i Fellahelli. Þeir mættu með kassagítarana og tóku fjögur lög saman. DV-mynd S Rokkaðí Fellahelli Harðir rokkarar streymdu að Fella- helli á laugardagmn. Þar voru þriðja árið í röð haldnir Rikkrokk- tónleikar en þeir hafa verið vettvangur fyrir óþekktar hljómsveitir að kynna afurð- ir sínar. Tónleikamir hófust klukkan fimm, eða einum tíu mínútum síðar sem þyk- ir stundvíslegt á íslenskan mæli- kvarða. Ekki var linnt látum fyrr en klukkan ellefu um kvöldið. Þóttu tónleikamir takast mjög vel og vera vel skipulagðir. Það vom Fella- hellir og útvarpsstöðin Bylgjan sem stóðu að tónleikunum. Kynnir var skáldið Sjón. Um tvö til þrjú hundmð manns vom á tónleikunum þegar mest var. -Ró.G. A sýningunni Bú 87 er ýmislegt um að vera. Sögudeildin er eitt sýningarat- riða og er spunnið þar lon og don. Þarna kemst fólk i snertingu við gamla timann og svo snögglega aftur þann nýja þegar það gengur yfir i tölvu- deildina sem er við hliðina. DV-mynd BG Bú 87: Verða að fá um 60.000 manns „Við verðum að fá fimmtíu til sextíu þúsund manns á sýninguna til að hún standi undir sér,“ sagði Ólafur Torfa- son, blaðafulltrúi landbúnaðarsýning- arinnar Bú 87, í samtali við blaðamann DV. „Við erum sæmilega bjartsýnir á að það takist ef við miðum við fyrri sýningar. Einnig er þessi nýja reiðhöll spennandi sýningarsvæði sem margir hafa gaman af að berja augum sem og auðvitað þau mörgu áhugaverðu atriði sem boðið er upp á að þessu sinni.“ Sýningin var opnuð á föstudag og er fjöldi þeirra sem sáu sýninguna þessa fyrstu helgi um níu þúsund. Sýn- ingunni lýkur sunnudaginn tuttugasta og þriðja ágúst. Af því sem borið hefur hæst má nefna fjárhundasýningu, reiðsýningu og daglega kynningu matreiðslumanna á úrvinnslu og framreiðslu kjöts. Um kvöldmatarleytið í gær þótti líka tíð- indum sæta þegar stjóm Landssam- bands sauðfjárbænda hélt grillveislu og voru margir bændur þar að stíga sín allra fyrstu spor í matargerð. I dag, mánudag, verða sýndar fimmt- án bestu kýr landsins - þokkadísir Suðurlands. En hvaða kostum em þær kýr gædd- ar? „Bestu kýr landsins em þær sem mjólka mikið og vel, hafa getið af sér góð afkvæmi og þar fram eftir götun- um,“ sagði Ólafúr. „Ein kýrin, sem kemur fram á sýningunni, er til dæm- is móðir annars tuddans sem er hér á sýningunni alla dagana." Á sýningunni er í gangi hrossamark- aður. Fjórtán hestar em sýndir og gefst áhugasömum að gera tilboð i þann hest sem viðkomandi kýs. Til- boðunum er stungið í kassa en á lokadegi sýningarinnar verður kass- inn opnaður. Eigendum hestanna er skylt að selja hest sinn hæstbjóðanda hvað sem upphæðin hljóðar upp á. -Ró.G SmRKOMATIC VILTU ÓDÝRT EN VANDAÐ BÍLTÆKI? ÞÁ ER VALIÐ AUÐVELT Þetta frábæra tæki með MB FM stereo og kassettu ásamt tveimur 20 vatta hátölurum er á sérstöku tilboðsverði. D Verð aðeins kr. 5.985, Það gerist ekki ódýrara. Sendum í póstkröfu. i . i ÍXdOlO jL_r_ Ármúla 38, símar 31133 og 83177, VIUMRK/ÖR V/SA IEURC KRIrPIT í Kápunni færðu kápurnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.