Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Side 8
8
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
Utlönd
Felldu 150 Lýbíumenn
Talsnmður stjómarhersins í Tehad
skýröi frá þvi í gær að hundrað ofí
fimmtíu lýbískir hermerm hefðu fall-
ið og nær fimmtíti verið teknir
höndum þegar árás lýbískra herja á
bæinn Aouzou, í norðanverðu
Tchitd, var hrundið tyrir nokkrum
dögum.
í yfirlýsingu hersiiis segir að aðéiris
einn hafi fallið úr liði Tchad.
Muammar Gaddafi, leiðtogi Lýbíu, hefur þurft að sætta sig við hvem
hemaðarósigurinn é fætur öðrum það sem af er þessu ári. Hann hefur heit-
ið því að ná að nýju undir sig Aouzou-svæðinu sem er liðlega hundrað
þúsund ferkílómetrar að stærð. Lýbía hertók svæðið fyrir nokkrum árum
og hefur haldið því þar til Tchad tók það aftur í sínar hendur fyrir skömmu.
Tóku vopn skæruliða herfangi
Stjómarherinn á Filippseyjum tók herfangi nokkurt magn af byssum, skot-
færum, jarðsprengjum og flugritum eftir að til átaka kom við skæruliða
kommúnista í Tandag á norðanverðum eyjunum.
Skæruliðar kommúnista hafa hert starfsemi sína nokkuð undanfarið en
Corazon Aquino, forseti Filippseyja, hefúr heitið á her og lögreglu landsins
að sýna hermdarverkamönnum úr röðum stjómarandstæðinga enga miskun.
Síkhar myrða hjón
Skæmhðar úr röðum aðskilnaðar-
sinna sikha á Indlandi myrtu um
helgina stjómmálamann og eigin-
konu hans meðan Indveijar almennt
mínntust þess að fiörutíu ár eru nú
liðin frá því að landið fékk sjélfstæði.
Hermdarverkamenn síkha réðust í gær inn á heimili leiðtoga Kongress-
flokksins í Chandigarh í Panjab-héraði og skutu hann og eiginkonu hans
til bana.
Áttatíu manns hafa nú látist í ofbeldisaðgerðum síkha í þessum mánuði
og meira en átta hundruð hafa látið lífið það sem af er þessu óri.
Kynþáttaóeirðir
Töluvert hefur verið um kyn-
þáttaóeirðir í Ástrab'u undanfarið
og virðist spenna hafa aukist vera-
lega milli fiumbyggja annare vegar
og hvítra innílytjenda hins vegar.
Um helgina kom til átaka þegar
hópur drukkinna frumbyggja réðst
inn á hótel í bænum Brewarrina, tun
átta hundruð kílómetra norð-vestur
af Sydney, með þeim afleiðingum að
tveir lögreglumeun meiddust alvar-
lega.
Mikill órói hefúr verið meðal frum-
byggja á svæði þessu allt frá því að
einn þeirra farrnst hengdur í fanga-
klefa á lögr-eglustöð bæjarins fyrst í
mónuðinum.
í Ástralíu
160 fórust í
Björgunarmenn að vinnu við brak flugvélarinnar í Romulus í nótt. Símamynd Reuter
Hundrað og sextíu manns létust í
nótt er brennandi þota frá Northwest
Airlines hrapaði á þjóðveg við bæinn
Romulus í Michigan skömmu eftir
miðnætti í nótt.
Slysið varð skömmu eftir að þotan,
sem. var af gerðinni Douglas DC-9, tók
á loft frá flugvellinum í Detroit, á leið
til Phoenix, Arizona.
Að sögn lögreglunnar var talið að
allt að hundrað og sextíu manns hefðu
látið lífið í slysinu þar af hundrað
fiörutíu og sex farþegar og áhöfri úr
þotunni. Talið var að fjórtán manns
hefðu látist í bifreiðum sem urðu fyrir
braki úr þotunni sem hrapaði á þjóð-
veginn.
Að sögn sjónarvotta eyðilögðust að
minnsta kosti tíu bifreiðar þegar þotan
lenti.
Þotan var frá flugfélaginu North-
west Airlines. Veður .var sæmilegt og
allar aðstæður til flugs einnig.
Að sögn sjónarvotta virtist vinstri
vængur þotunnar snerta jörð, rétt eft-
ir flugtak af flugvellinum. Við það
kviknaði í vængnum, þotan lenti á
þjóðveginum, sem liggur milli Detroit
og Chicago, og hrapaði síðan niður á
veg sem liggur undir þjóðveginn.
Talsmaður loftferðaeftirlits Banda-
ríkjanna sagði í morgun að óstaðfestar
fregnir hermdu að annar af hreyflum
þotunnar hefði bilað rétt í þann mund
sem hún hóf sig á loft af flugvellinum.
Yfirvöld mótmæltu harðlega þeim
sögusögnum, sem bárust út skömmu
eftir slysið, að þotan hefði hrapað af
völdum sprengju.
Hjálparskip sprakk í loft upp
Á laugardaginn sprakk birgðaskip
með ellefu manna áhöfri í loft upp
við aðalskipalægið fyrir utan Persa-
flóann eftir að hafa rekist á tundur-
dufl. Einn maður lést og fimm er
saknað. Atburðurinn átti sér stað
degi eftir að Sameinuðu arabísku
fúrstadæmin lýstu yfir að siglinga-
leiðir þar fyrir utan væru örugg-
ar.
íranir leita nú tundurdufla í flóan-
um og hafa tilkynnt að óþarfi sé fyrir
aðrar þjóðir að gera slíkt hið sama.
Bandaríkjamenn gruna írani um að
hafa komið fyrir tundurduflum sem
fundist hafa nálægt Kuwait og við
aðalskipalægið fyrir utan Samein-
uðu arabísku furstadæmin fyrir utan
Persaflóa. Iranir fullyrða aftur á menn þeirra hafi komið tundurdufl-
móti að Bandaríkjamenn eða banda- unum fyrir.
Einn maður lést og fimm er saknað eftir að birgðaskip, er rakst á tundur-
dufl, sprakk í loft upp á laugardaginn. Simamynd Reuter
LA - 30-50% afsláttur
Herra: Verð áður 1.689,-
nú 1.189,- Hvítt/svart
Herra: Verð áður 2.729,
nú 1.910,- Hvítt/grátt
Herra: Verð áður 2.150,-
nú 1.505,- Hvítt/svart
Herra: Verð áður 2.695,-
nú 1.886,- Hvítt/grátt
Dömu: Verð áður
3.805,- nú 2.263,-
Svart/grænt
Dömu: Verð áður
1.768,- nú 1.238,- Hvítt/
svart/grátt
Dömu: Verð áður
1.564,- nú 782,- Svart/
hvitt
Dömu:
1.488,- nú 1.042,- Mikið
úrval
SENDUM í
PÓSTKRÖFU
Laugavegi 98 - sími 22453