Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Page 18
18 MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. Hárgreiðslustofan Klapparstíg Pantanasími 13010 Litakynning. Permanettkynning. Strípukynning. {'/■< j Rakarastofan Klapparstíg Pantanasími 12725 FELAGSMALASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR AUGLÝSIR Lausar stöður félagsráðgjafa á hverfaskrifstofum fjöl- skyldudeildar í Vonarstræti 4 og Síðumúla 34. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Dagvist barna í Reykjavík tilkynnir opnun leyfisveitinga fyrir DAGGÆSLU Á EINKAHEIMILUM á tímabilinu 1. ágúst til 31. október. Vakin skal. athýgli á því að sérstaklega er þörf fyrir dagmæður í eldri borgarhverfum. Nánari upplýsingar veita umsjónarfóstrur með dagvist á einkah.eimilum áskrifstofu Dagvistar í Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, sími 27277. Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu Dag- 7- " ' Lausar eru til umsóknar 2 stöður lögreglumanna við emþætti undir/itaðs nieð aðsetri á Húsavík. Umsókn- arfrestur er til 10. september nk. Stöðurnar veitast frá '1. októfc Allar upplýsingár. gefa Þröstur Brynjólfsson yfirlög- jluþjónn og Daníel Guðjónsson varðstjóri í síma 96 41630. / • Sýslumaður Þingeyjarsýslu, bæjarfógeti Húsavíkur. Halldór Kristinsson. - * ------——r-----?----------------------- f JREY KJKMÍKURBORG ||« AdUéOA Stödívi W Unglingaathvarfið, Tryggvagötu 12, óskar eftir starfs- manni í 46% kvöldstarf. Æskilegt að umsækjendur hafi kennaramenntun eða háskólamenntun í uppeld- is-, félags- og/eða sálarfræði. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 1987. Nánari upplýs- ingar veitir forstöðumaður í síma 20606 eftir hádegi virka daga. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Fulltrúastarf Stjórn Kennarasambands íslands auglýsir eftir starfs- manni til að sinna verkefnum er varða kjara- og félagsmál kennara. Um er að ræða 50% starf og hugsanlega aukið starfs- hlutfall á álagstímum. Umsækjendur þurfa að hafa kennaramenntun og kennslureynslu, auk þess að hafa áhuga á félagsstarfi í stéttarfélagi kennara. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 1987. Allar frekari upplýsingar gefur formaður KÍ í síma 91 -24070. Umsóknir skulu sendar til stjórnar Kennarasambands Islands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, merktar „Full- trúastarf". Fréttír Eskifjörður: Bjótgunarsveitin fær bát Nýi báturinn sem Hjálparsveit skáta hefur fest kaup á. DV-mynd Emil Thorarensen Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Hjálparsveit skáta á Eskifirði, sem stofnuð var fyrr á þessu ári, fékk fyrir nokkru síðan afhentan björgun- arbát sem sveitin ákvað að festa kaup á. Björgunarbátur þessi er af gerðinni FORCE 7. Hann er 27 feta langur og hefur 290 hestafla utan- borðsmótor. Kaupverð var kr. 1.400.000. Félagar hjálparsveitarinnar hafa verið mjög áberandi í starfi sínu frá stofnun og reynt að finna sem flestar fjáröflunarleiðir. Enda veitir ekki af þegar ráðist er í jafnstórt verkefni og kaup á björgunarbát. Veltan hjá hjálparsveitinni þessa fáu mánuði, sem hún hefur starfað, er orðin um 1,5 milljónir og átti hún 325.000 krón- ur til að greiða í kaupverðið. Afgangurinn var fenginn að láni. Það er því mikið starf framundan hjá þessu áhugasama fólki, sem stendur að sveitinni, við að greiða niður skuldirnar. Formaður Hjálpar- sveitar skáta á Eskifirði er Bjarni Hávarðarson. DV á Dahrík: Vélaþvegið er vel þegið Það er senniiega betra að fara í hund- ana en að lenda í þessum hundi. DV-mynd JGH Jón G. Haukssan, DV, Akuieyri: „Það er mikið um að menn komi og láti þvo vélamar - enda er skemmti- legra að hafa allt hreint undir húdd- inu,“ segir Gestur Jóhannesson, bifvélavirki á Dalvík. Gestur vinnur á bílaverkstæðinu Kambi ásamt foður sínum. Hann notar sjóðandi heitt vatnið beint úr kranan- um til að gusa á vélamar. „Það er einkabíllinn núna. Hann er að fara á bílasölu," sagði Gestur um farkostinn sem hann smúlaði þegar okkur bar að. Það er vissara að hafa allt á hreinu undir húddinu. DV á Hofsósi: Hundur í hundi Jón G. Hauksscn, DV, Akureyxi Sé það rétt að stundum sé hundur í mönnum þá var hundur í þessum hundi á Hofsósi. Til stóð að mynda seppa þar sem hann lá angurvær á teppi og slakaði á. En það tók annað við þegar komið var nálægt honum. Hann rauk upp og gelti. Vígtennumar blöstu við. Sem betur fer var hann í bandi. Og þökk sé bandinu, það hélt. En er það nema von að til sé eitthvað sem heitir hundasúrur. Hundar geta verið súrir. Gusugangur á Dalvik. Gestur þvær vélarnar upp úr sjóðandi heitu vatni. „Það er skemmtilegra að hafa allt hreint undir húddinu." DV-mynd JGH Heilsteyptir steypumenn fyrir framan steypustöðina í Gunnólfsvík. Frá vinstri: Þórir Jónsson, Þorgeir Hauks- son og Reimar Sigurjónsson, allir frá Þórshöfn. DV-mynd JGH DV í Gunnótfsvík: Eitt stykki steypustöð til að steypa eitt hús Jón G. Hauksscn, DV, Akureyri: íslenskir aðalverktakar hafa reist danska steypustöð í Gunnólfsvík. Stöðin framleiðir steypu fyrir eitt hús. Það er að sjálfeögðu hús ratsjárstöðvarinnar uppi á Gunnólf- svíkurfjalli. Búið er að steypa grunninn. Éftir verkið fer sú danska suður. Svo fullkomið er mælaborðið í stöðinni að ef menn vissu ekki betur mætti halda að þetta væri stýriborð eldflaugaskotpalls. DV á Sauðárkróki: Rollurassar blasa við Jón G. Haukssan, DV, Akureyri: H ún er nýstárleg veggskreytingin á sláturhúsinu á Sauð- árkróki sem blasir við þegar ekið er framhjá húsinu. Ekki er annað að sjá en meginuppistaða listaverksins sé rol- lurassar. Starfsmaður sláturhússins sagði að verkið ætti að sýna lífshlaup rollanna, allt frá fæðingu til slátrunar. Hvað um það, skreytingin er skemmtileg og rollurassam- ir taka sig vel út, hengdir upp á vegg. ■■Í.wv.x: <ív.» Sí'-.: ‘ ' iSa*-■ ■ Rollurassamir á sláturhúsi Sauðárkróks. DV-mynd JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.