Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 32
OLÝMPIAO
44
MÁNUDAtiUR 17. ÁGÚST 1987.
Jarðarfarir
Steinunn Gróa Bjarnadóttir er
látin. Hún var fædd á Reykjafirði við
ísafjarðardjúp 9. september 1924,
dóttir hjónanna Guðrúnar Ólafs-
dóttur og Bjarna Hákonarsonar.
Steinunn giftist Trausta Eyjólfssyni
en hann lést árið 1971. Þau hjónin
eignuðust tvö börn. Útför Steinunn-
ar Gróu verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
María S. Hjartar verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag, 17. ágúst,
kl. 13.30.
Jarðarför Sigurðar Eyjólfssonar,
Langeyrarvegi 3, Hafnarfirði, fer
fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
'7" mánudaginn 17. ágúst kl. 13.30.
Útför Stefaniu Sigmundsdóttur,
sem andaðist í Landspítalanum 9.
ágúst sl., fer fram frá Bústaðakirkju
í dag, 17. ágúst, kl. 15.
Útför Magnúsar Brynjólfssonar
bókbandsmeistara, Lynghaga 2, fer
fram frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 19. ágúst kl. 13.30.
Valborg Júlíusdóttir lést í Borg-
arspítalanum hinn 31. júlí. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
'.Jiinnar látnu.
Hrund Jónsdóttir, Sævangi 40,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
18. ágúst kl. 13.30.
Hansína Guðmundsdóttir, Njáls-
götu 12, Reykjavík, er lést laugar-
daginn 8. ágúst, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18.
ágúst kl. 15. Jarðsett verður í Hafn-
arfjarðarkirkjugarði.
Útför Sigrúnar Einarsdóttur hár-
greiðslumeistara, Lönguhlíð 3,
Reykjavík, verður gerð frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 18. ágúst kl.
15.
Tilkynningar
Átthagasamtök Héraðsmanna
efna til hópferðar á Njáluslóðir laugardag-
inn 22. ágúst nk. Upplýsingar gefur Hreinn
Kristinsson í síma 84134.
Aðstoðarmaður landbúnað-
arráðherra ráðinn
Landbúnaðarráðherra, Jón Helgason, hef-
ur ráðið Bjarna Guðmundsson, sem verið
hefur aðstoðarmaður hans sl. 4 ár, áfram
til að sinna því starfi. Bjami er ráðinn í
starfið að 2/3 hlutum en auk þess mun
hann taka að sér kennslu við búvísinda-
deild Bændaskólans á Hvanneyri, þar sem
hann starfaði áður en hann réðst í land-
búnaðarráðuneytið. Bjarni er doktor í
landbúnaðarfræðum frá norska landbún-
aðarháskólanum. Þá hefur landbúnaðar-
ráðherra ráðið Niels Árna Lund, ritstjóra
Tímans, til starfa á vegum landbúnaðar-
ráðuneytisins til næstu áramóta. Starf
hans mun m.a. felast í kynningu á málefn-
um landbúnaðaráðuneytisins en auk þess
mun hann verða landbúnaðarráðherra til
aðstoðar í vmsum sérverkefnum. Níels
hefur þennan tíma fengið leyfi frá rit-
stjórnarstarfi við Tímann en því starfi
hefur hann gegnt sl. 2 ár.
Ársrit Útivistar1987
erkomið út
Það geta allir eignast sem gerast Útivist-
arfélagar og greiða árgjald, kr. 1.200.
Meðal efnis eru leiðsögn um Dali, Viðey
og Þjórsárver. Fjöldi litmynda er í ritinu,
m.a. af íslenskum hraunhellum. Útivistar-
félagar: Greiðið heimsenda gíróseðla fyrir
árgjaldinu og fáið ritið sent strax.
Aldraðir í Langholtssókn
Bifreiðarstjórar Bæjarleiða og fjölskyldur
þeirra bjóða öldruðum velunnurum Lang-
holtskirkju út fyrir borgarmörkin mið-
vikudaginn 19. ágúst nk. Haldið verður
kl. 13 til Borgarfjarðar. Leiðsögumaður
fararinnar verður Jón Ámason skóla-
stjóri. Félagar úr kven- og bræðrafélagi
safnaðarins aðstoða eftir föngum og bjóða
til kaffidrykkju í Hótel Borgarnesi. Lagt
verður stað frá safnaðarheimilinu stund-
víslega kl. 13.
I gærkvöldi
Kjartan Gunnar Kjartansson blaöamaöur:
Er frjálshyggja ekki
sljómmálaskoðun?
Kynni mín af blaðamannsstarfinu
gefa eindregna vísbendigu í þá átt
að blaðamenn hafi ekki tíma til að
glápa á sjónvarp þó fréttamenn þurfi
að vísu að fylgjast vel með fréttun-
um. Aldrei þessu vant sat ég þó við
skjáinn í gærkvöldi og fylgdist með
dagskrá ríkissjónvarpsins.
Nú hef ég reyndar ekkert út á
fréttaflutning ríkissjónvarpsins að
setja en ég get heldur ekki tekið
undir þá skoðun sem stundum sést
á prenti að ríkisfjölmiðlum sé betur
en öðrum treystandi fyrir því vanda-
sama hlutverki að upplýsa landslýð-
inn um markverðustu viðburði
líðandi stundar. Stöð tvö gefur t.d.
fréttum ríkissjónvarpsins ekkert eft-
ir.
I gærkvöldi var þáttur í ríkissjón-
varpinu sem vissulega vakti forvitni
mína og gat lofað góðu en því miður
varð ég fyrir vonbrigðum þegar upp
Kjartan Gunnar Kjartansson
var staðið enda var viðfangsefhið
vandmeðfarið. Gerð var úttekt á ís-
lenskri æsku, hvorki meira né
minna, og ég get ekki neitað því að
þátturinn var heldur yfirborðs-
kenndur.
Stjómendur þáttarins gerðu ör-
stutta úttekt á tíðaranda æskufólks
á V esturlöndum frá upphafi rokksins
og fram til vorra tíma og höfðu þá
helst áhyggjur af því hvort og hvers
vegna unglingamir vildu ekki
breyta þjóðfélaginu. Mér fannst sú
afstaða skína í gegn að þeir einir
unglingar væm meðvitaðir um sam-
félag sitt og stöðu þess sem héldu
uppi andófi og væm nógu vinstri
sinnaðir. Stjómmálaáhugi unga
fólksins, sem nú er að hasla sér völl,
var einfaldlega afgreiddur á þann
veg að hann væri enginn. En mér
er spum: Hafa menn ekki skoðanir
ef þeir em ekki vinstri sinnaðir? Er
ekki bara málið það að vinstri stefria
68-kynslóðarinnar hefiir beðið hug-
myndafræðilegt skipbrot sem enginn
fær varið?
Átthagasamtök Héraðsmanna
• efna til hópferða á Njáluslóðir laugardag-
inn 22. ágúst nk. Nánari upplýsingar gefur
Hreinn Kristinsson í síma 84134.
Samnorrænt þing um
vinnuumhverfismál
Dagana 25.-27. ágúst verður haldið á Hót-
el Sögu á vegum Vinnueftirlits ríkisins
samnorrænt þing um vinnuumhverfismál
(36. Nordiska arbetsmiljömötet). Þingið
munu sitja yfir 200 þátttakendur, þar af
yfir 180 erlendir gestir. Þátttakendur
verða helstu sérfræðingar Norðurland-
anna á sviði vinnuumhverfismála.
Kynningarnámskeið fyrir
fóstrur
Dagvist barna í Reykjavík mun dagana
17. og 18. ágúst standa fyrir kynningar-
námskeiði fyrir fóstrur og annað uppeldis-
menntað fólk sem hefur verið fjarverandi
dagvistaruppeldi forskólabarna um lengri
Spakmælið
Vér höfum ekki enn lært að þekkja lífið, hvernig ættum vér þá
að þekkja dauðann?
Konfúsíus
SKÓLARTTVÉL
sem hefur allt og meira til
Olympia Carrera, ritvélin sem hlaut vestur-þýsku IF87 viðurkenninguna
fyrir hönnun og útlit
er ritvél hinna fjölhæfu og vandlátu.
Skólaritvél, ferðaritvél, heimilisritvél og atvinnuritvél, - aðeins 6,5 kg.
með alspenni og tösku til að fylgja þér hvert sem er.
Ritvél, hlaðin kostum, með lyklaborð aðlagað að fingrunum sem
auðveldar hraða og villulausa vélritun, 24 stafa leiðréttingaminni,
mismunandi leturgerðir, síendurtekningu áöllum lyklum og
ásláttarjafnara, allt til að tryggja góðan frágang án fyrirhafnar.
Carrera er aðhæfð ritvinnsluforritum
og tengjanleg við allar tölvur.
OLYMPIAO
/ í i 1 i ! II! t 11 1 » i 1 \ \
I I I I 11111111(5 I M
hi I I I I I I M I i M *
I - II I I I M M I
n
« n
E
KJARAN
ÁRMÚLA 22, SÍMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVÍK
eða skemmri tíma en hefur hug á að hefja
starf að nýju. Námskeið þetta er fyrst og
fremst hugsað sem kynning á hinni fjöl-
breyttu starfsemi Dagvistar barna í
Reykjavík, auk þess sem kynntar verða
nýjungar í dagvistaruppeldi á Islandi sl.
5Á0 ár. Námskeiðsstjórar eru umsjónar-
fóstrurnar Fanný Jónsdóttir og Arna
Jónsdóttir sem jafnframt veita allar nán-
ari upplýsingar og annast innritun þátt-
takenda í síma 27277.
Félag eldri borgara
í Reykjavik
ráðgerir 5 daga hálendisferð 26.-30. ágúst
nk. Farið verður norður Sprengisand um
Gæsavötn og Öskju í Herðubreiðarlindb
síðan til Mývatns og suður um Kjöl. Gist-
ing í Nýjadal, Laugum í Reykjadal og
Þelamerkurskóla. Nánari upplýsingar á
skrifstofu félagsins í síma 28812.
Tapað - Fundið
Lyklakippa fannst
Lyklakippa með bíllykli, húslykli og
naglaklippu fannst í grennd við Holtsgötu.
Upplýsingar í síma 28052.
Til ritstjóra DV,
Ellerts B. Schram og
Jónasar Kristjánssonar
Á undanfömum mánuðum heíúr
blað yðar fjallað um tiltekið mál sem
varðar meint kynferðisafbrot gagn-
vart bömum. Hefur mál þetta verið
til meðferðar hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Blaðamenn DV hafa
kosið að gefa máli þessu síaukið rúm
og vægi. Skrif þessi hafa verið slík
að flestir helstu fjölmiðlar landsins
hafa talið sig knúna að birta fréttir
af málinu. Hefúr mjög verið þrengt
að ýmsum aðilum sem tengdir em
fyrrgreindu máli. Að mati undirrit-
aðra og blaðamanna sjálfra hefur
umfjöllun þessi farið langt út fyrir
siðleg mörk. Á aðalfundi Blaða-
mannafélags íslands 15. júní 1985
vom samþykktar nýjar siðareglur.
3. grein þeirra hljóðar svo:
„Blaðamaður vandar upplýsingaöfl-
un sína svo sem kostur er og sýnir
fyllstu tillitssemi í vandasömum
málum. Hann forðast allt, sem vald-
ið getur saklausu fólki, eða fólki sem
á um sárt að binda, óþarfa sársauka
eða vanvirðu.“
Ekki verður betur séð en grein
þessi hafi verið freklega brotin í við-
tali helgarblaðs DV, meðal annars
er bam þar nafngreint og afar óvið-
urkvæmileg ummæli höfð eftir um
böm.
I 2. grein sömu siðareglna:
„Blaðamanni er Ijós persónuleg
ábyrgð á öllu, sem hann skrifar..
Ekki verður séð að Elín Alberts-
dóttir og Siguijón M. Egilsson,
blaðamenn DV, hafi velt þessu fyrir
sér er þau vega af fullum þunga að
sálarheill og félagslegri velferð vam-
arlausra bama í skrifúm sínum.
Mörg mál af þessum toga eru í
vinnslu hjá hinum ýmsu bama-
vemdamefndum um land allt og
virðist alfarið tilviljun háð hvaða
mál em birt í blaðinu. Venjan er sú
hjá bamavemdamefhdum að fjalla
ekki um einstök mál á opinberum
vettvangi og er hagur skjólstæðinga
ekki sfst hafður í huga.
Skal bent á að starfshættir bama-
vemdamefnda taka almennt mið af
lögum um vemd bama og ungmenna
nr. 53 frá 1966 og Bamalögum nr. 9
frá 1981. Þeir einstaklingar, er telja
sig órétti beitta í málsmeðferð bama-
vemdamefnda, geta leitað til
Bamavemdarráðs íslands.
Að lokum vilja undirritaðir beina
þeim tilmælum til ritstjóra DV með
bamavemdarsjónarmið í huga að
blaðið birti ekki frásagnir af einstök-
um bamavemdarmálum.
Með fyrirfram þökk fyrir birtingu,
Leifúr Helgason,
formaður bamavemdamefiidar
Hafnarfjarðar.
Marta Bergman,
félagsmálastjóri í Hafnarfirði.