Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987.
11
Hluti vopna þeirra, sem tekin hafa verið af nýnasistum, á samkomum þeirra við kirkjugarðinn þar sem átti að
grafa Hess. Sitnamynd Reuter
Hess grafinn í
kyrrþey í gær
Rudolf Hess, fyrrum foringi þýskra
nasista og einn helsti aðstoðarmaður
Adolfs Hitler, leiðtoga nasista, var í
gær grafinn í kyrrþey og ekkert heíur
verið gefið upp um greftrunarstað
hans.
Lík fyrrum nasistaforingja hafa til
þessa yfirleitt verið brennd og ösku
þeirra dreift yfir Þýskaland, til þess
að koma í veg fyrir að grafreitir þeirra
yrðu að helgistöðum nýnasista.
í gær gáfu þau fjögur ríki sem gættu
Hess í Spandau fangelsinu, þá fjóra
áratugi sem hann var fangi þar, út
sameiginlega jdirlýsingu um dauða
hans. I yfirlýsingunni, sem undirrituð
var af fulltrúum Breta, Frakka,
Bandaríkjamanna og Sovétmanna,
segir að Hess hafi hengt sig í raf-
magnssnúru. I yfirlýsingunni segir að
háls Hess hafi ekki brotnað við heng-
inguna, heldur hafi nasistaforinginn
aldni kafnað.
Lögreglan í Austurríki handtók í
Lögfræðingur Hess fjölskyldunnar á
blaðamannafundi í gær þar sem hann
tilkynnti að sonur Rudolf Hess hefði
fengið slag.
Simamynd Reuter
gær þrettán nýnasista, sem viðstaddir
voru minningarathöfn um Hess fyrir
utan dómkirkju í miðborg Vín. Tals-
menn lögreglunnar sögðu mennina
hafa verið handtekna þar sem þeir
brutu með samkomu sinni lög þau er
banna allar athafni nýnasista í
landinu.
Austurrískir nýnasistar sendu í gær
frá sér yfirlýsingu þar sem þeir for-
dæma aðgerðir lögreglunnar gegn
„fríðsömum hóp manna sem komu
saman til að syrgja hinn mikla, þýska
píslavott, Rudolf Hess.“
I gær tóku breskir hermenn við
gæslu í Spandau fangelsinu í Vestur-
Berlín, þar sem Hess dvaldi allt frá
því dómur var felldur yfir honum.
Undirbúningur er þegar hafin að þvi
að rífa fangelsið en samkomulag var
fyrir löngu gert milli ríkjanna fjögurra
um að brjóta það til grunna um leið
og Hess, sem var eini fanginn þar sfð-
ustu tuttugu árin, létist.
Fordæma stjóm
ina fyrir Kaledóníu
Franski sósfalistaflokkurinn for-
dæmdi í gær ríkisstjóm landsins fyrir
það hvemig hún tók á aðgerðum lög-
reglunnar í Nýju-Kaledóníu gegn þeim
sem þar mótmæltu fyrirhugaðri þjóð-
aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði um
helgina.
Talsmaður flokksins, Jean-Jack Qu-
eyranne, sagði í gær við fréttamenn
að þjóðaratkvæðagreiðslu væri ekki
hægt að halda með kylfum og öðmm
bareflum.
Queyranne vísaði í orðum sínum til
þess að um helgina réðst lögregla í
Nýju-Kaledóníu á þrjú hundruð al-
menna borgara, sem þá tóku þátt í
friðsamlegum mótmælum, og dreifði
þeim með kylfúbarsmíð og táragasi.
Búist er við að í þjóðaratkvæða-
greiðslunni, sem fyrirhuguð er þann
13. september, muni niðurstaðan verða
sú að meirihluti íbúa landsins, sem er
í Suður-Kyrrahafi, haldi yfirstjóm
Frakka þar.
Miklar dcilur hafa staðið um sjálf-
stæði landsins undanfarið milli þjóð-
flokks Kanaka annars vegar og
franskra innflytjenda hins vegar.
Tveir leiötoga kanaka á Nýju-Kaledóniu við dómhúsið
Noumea í gær.
Símamynd Reuter
Utlönd
Nefta að semja við Líbýumenn
íhuga að leyfa nunnum að stavfa
Stjómvöld í Moskvu íhuga nú að heimila fjórum nunnum, úr reglu móður
Teresu, að starfa á sjúkrahúsum eða á bamaheimilum í Sovétríkjunum að
sögn háttsetts embættismanns þar.
Talsmaður sovéskra stjómvalda sagði { gær að yfirvöld hefðu nú til um-
fjöllunar umxnæli móður Teresu, sem hún lét sér um munn fara í ávarpi til
sovésku friðamefndarinnar, en móðirin sagði að það myndi gleðja sig mjög
ef mmnur fengju að starfa í Sovétríkjunum.
Móðir Teresa hefúr undanfarið verið á ferðalgai um Sovétríkin.
Móðir Teresa hefur ekki enn farið þess á leit að nunnur úr samtökum
hennar. sem nefiiast Boðberar ölmusu, fengju starfsleyfi í Sovétríkjunum.
Samtökin starfa að líknarmálum fyrir snauða í sjötfu og sjö löndum.
Móðir Teresa, sem er sjötíu og sex ára, sagði í gær að það væri mun áuð-
veldara að gefa hungniðum brauð heldur en að létta einmanaleik og andlegu
hungri fólks i iðnvæddum ríkjum heimáns.
Herstöðvamar hindra þróunina
Filippseyskur öldungadeildarþing-
maður, sem hefur yfirumsjón með
rannsóknimi Filippse>dnga á her-
stöðvum Bandaríkjiinianna á eyjun-
um og áhrifúm þeirra þar, sagði í
gær að nærvera herstöðvanna í
landinu hindraði iélagslega og aðra
þróun þess.
Öldungadeildarþingmaðurinn
sagði á fúndi í þinginu í gær að
Filippseyjar þörftiuðust þess sárlega
að eignast sjálfstæða stefnu í utan*
ríkismálum.
Sagði hann að vegna herstöðvanna og vegna yfirþyrmandi bandaríski
menningaráhrifa, gengj Filippseyingum mjög illa að fa sjálfetæði átt viðu
kennt. Sagði hann tímabært að þróa sjálfstæða utanríkisstefriu, hversu erfi
sem það kynni að reynast til að byrja með.
Utanríkisráðherra Chad neitaði
aifarið í gær þeim möguleika að
stjóm landsins gengi til samninga
við Líbýumenn um Aouzou-svæðið í
norðurhluta Chad sem heijir land-
anna tveggja hafa barist um undan-
farið.
Utanríkisráðherrann ítrekaði
þessa stefiiu stjómar Chad af því
tilefoi að Kenneth Kaunda, forseti
Zambíu og nýkjörinn aðalritari ein-
ingarsamtaka Afrikuríkja, mun éiga
fund með Muaammar Gaddafi, leið-
toga Líbýu, siðar í þessari viku.
Sagði ráðherrann landsmenn sína vonast til þess að Kaunda tækist að
koma vitinu fyrir Gaddafi og stjóm hans.
Aouzou-svæðið er um hundrað og tíu þúsund ferkílómetra landspilda, sem
Líbýumenn héldu hemumdri í fjórtán ár en stjómarher Chad náði á sitt
vald stærsta bæ svæðisins, Aouzou, þann 8. ágúst síðastliðinn.
Kæra fyrrverandi kanslara
Ríkissaksóknari Austurríkis
skýrði frá því í gær að hann hef'ði
fengið fyrimiæll um að höfða mál á
hendur fyrrverandi kanslara lands-
ins, Fred Sinowatz, fyrir að hafa
misbeitt valdi sínu í tengslum við
skjöl vegna þátttöku Kurt Wald-
heim, núverandi kanslara, í síðari
heimstyrjöldinni.
Talsmaður émbættis ríkissaksókn-
arans sagði að beiðnin um máls-
höfðun hefði verið nafhlaus.
Talsmaðurinn vildi ekki fcjá sig
nánar um málið og fékkst ekki til
að segja hvort Sinowatz, og Hans
Pusch, sem ákærður er fyrir sömu
sakir, yrðu drégnir fyrir dóm. Sagði
hann þáð myndi gerast því aðeins
að saksóknara þættu ásakanimar á
hendur þeim á rökum reistar.
Sinowatz og Pusch hafa neitað sakargiftum. Þeim er gert að sök að hafa
á ólöglegan máta fengið aðgang að skýrslum um styijaldarferil Waldþeim,
í þeim tilgangi að nota þær gegn honum í kosningunum um
kanslaraembættið á síðasta ári. Waldheim vann sigur í kosningunum og
sagði Sinowatz af sér í kjölfar þeirra.
Waldheim hefúr verið sakaður um að hafa verið félagi í nasistaflokknum
á tímum síðari heimsstyrj aldarinnar og að hafa tekið þátt í ógnarverkum
gegn gyðingum á Balkanskaga. Hann hefúr þvertekið fyrir hvoru tveggja.