Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987. 19 Erlend myndsjá Aurora endurbyggð Beitiskipið Aurora, sem á sínum tíma lék svo mikilvægt hlutverk við upphaf sovésku byltingarinnar, hefur undanfarið verið í slipp þar sem gagnger endumýj- un hefur farið fram. Nú er Aurora komin á flot að nýju og verður væntanlega aftur til sýnis þeim sem forvitnir eru um slíka gripi. Gáfað- asta kona heims Þessi mynd var tekin af Marilyn Mach Von Savant á brúðkaupsdegi hennar síðastliðinn sunnudag. Mari- lyn er í dag talin greindasta kona heims, enda hefur gáfnavisitala henn- ar mælst 228 stig, eða næstum því hin sama og Albert Einstein er talinn hafa borið. Raunar var Einstein karlinn aldrei mældur, svo Marilyn á eina staðfesta heimsmetið í gáfum, sam- viskusamlega skráð í Heimsmetabók Guinness. Brúðguminn er enginn andlegur aukvisi heldur. Nafh hans er Robert Jarvik, hann er læknir og sá hinn sami og hannaði Jarvik-hjartað, gervi- hjarta sem nota má í fólk. Citroen- sigling Citroen-verksmiðjumar sýndu um helgina bíla, sem breytt hafði verið í báta, til þess að láta þá taka þátt í keppni á hátíð í Saint Nazaire í vesturhluta Frakklands. Bílamir breyttu sjást hér til vinstri en til hægri sést flak eins af hrað- bátum þeim sem tóku þátt í hátíð- inni. Bátnum hvolfdi á miklum hraða með þeim afleiðingum að þrír menn létu lífið, eigandi bátsins. blaðamaður og annar farþegi. Leikfong handa Ceciliu Cecilia Cichan, fjögurra ára stúlka, sem ein farþega lifði af flugslysið í Detroit í síðustu viku, er enn á sjúkrahúsi þar sem hún er að byrja að gróa sára sinna. Landar hennar, Bandaríkjamenn, hafa verið iðnir við að senda henni kveðjur og gjafir og nú er svo komið að starfsmenn sjúkrahússins eiga í mestu vandræð- um með að koma flóðinu fyrir. Sjúkrastofa Ceciliu rúmar ekki meir og geymsluherbergi em einnig orðin fidl. AðHess látnum Dauði eins gamalmennis getur haft ótrúleg áhrif, að minnsta kosti þegar hinn ellihrumi er Rudolf Hess. fyrrum nasistaforingi, sem lést í síð- ustu viku. Sovéskir, bandarískir og breskir hermenn þurfa nú ekki lengur að gefa hver öðrum hornauga við vaktaskipti í Spandau-fangelsinu því Hess var eini fanginn þar og því leggst nú varðstaðan niður. Sonur Hess liggur nú á sjúkrahúsi eftir hjartaáfall. Nýnasistar kveðja nú einn siðasta leiðtoga sinn hinstu kveðju og starfsmenn kirkjugarðsins í Wunsiedel þurfa að snyrta grafreit Hess-fjölskyldunnar, gera allt tilbúið að taka við þessum umdeilda leið- toga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.