Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
Fréttir
Fiskmarkaðimir í Hafnarfirði og Reykjavík:
Veltan orðin 230 milljónir
- hlutur markaðanna er rúmar 9 milljónir króna
Um átta þúsund tonn hafa verið seld hjá fiskmörkuöunum frá þvi að þeir tóku til starfa.
Markaðurinn í Hafharfirði og
Faxamarkaðurinn í Reykjavík hafa
selt, frá því að þeir tóku til starfa,
rúm átta þúsund tonn af-fiski. Verð-
mæti aflans hjá mörkuðunum er 230
milljónir króna. Báðir markaðimir
taka 4% í sölulaun, er þeirra hlutur
því rúmar 9 milljónir króna.
Fiskmarkaðurinn í Hafharfirði hóf
starfsemi 15. júní og Faxamarkaður-
inn viku síðar. í Hafharfirði hafa
verið seld rúm fimm þúsund tonn
og meðalverð þar er 28,73 kr. Faxa-
markaðurinn hefur selt tæp þrjú
þúsund tonn, meðalverð þar er 28,33
kr. Fiskmarkaðurinn hefur því feng-
ið 5,9 milljónir í þóknun en Faxa-
markaðurinn 3,3 milljónir króna.
í samtölum við framkvæmdastjóra
beggja markaðanna kom fram að
nokkuð er um að skip sem venjuleg-
ast sigldu með aflann hafa landað
undantekningarlítið á mörkuðunum
frá því að þeir tóku til starfa.
Ef sala á mörkuðunum helst svip-
uð því sem verið hefur þá koma
markaðimar tveir til með að selja
um 40 þúsund tonn af fiski á ári.
Verðmæti aflans yrði nærri 115
milljónir króna. Söluþóknun þeirra
á einu ári yrði um 45 milljónir króna.
Við markaðina starfa 19 manns,
10 í Hafnarfirði og níu við Faxa-
markaðinn í Reykjavík. Bjami
Thors, framkvæmdastjóri Faxa-
markaðarins, sagði að of snemmt
væri að segja til um hvemig salan
ætti eftir að þróast. Markaðimir
yrðu að hafa starfað í tólf mánuði
áður en hægt væri að segja til um
hvemig þeir stæðu sig miðað við
markaði erlendis.
Hann sagði að í dag mættu þeir
seljendur sem sigla með aflann fá
tvöfalt hærra verð erlendis til að
siglingin borgaði sig. Við siglingu
þarf að taka tillit til lýmunar, tíma
og kvótataps. Við gámaútflutning
mætti leggja 20 til 25 krónur á hvert
kíló til að sala í gámum skilaði því
sama og að selja á mörkuðunum hér
heima.
-sme
Mikill áhugi á
komu Vigdísar
Jón G. Haukaaon, DV, Færeyjum
„Það er mikill áhugi fyrir komu
forseta íslands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur til Færeyja. Færeyingar
þekkja allir Vigdísi," sagði Atli Dam,
lögmaður Færeyinga, við DV í morg-
un.
Vigdís Finnbogadóttir er fyrsti
þjóðhöfðinginn sem kemur í opin-
bera heimsókn til Færeyja en
Margrét Danadrottning er sögð
koma til Færeyja á fjögurra ára
fresti.
Atli Dam sagði að Vigdís færi um
allar eyjamar og margt yrði skoðað.
„Hún lendir á flugvellinum í Vogum
og þar verður margt manna að taka
á móti henni, en ef hún hefði komið
siglandi til Þórshafhar hefðu örugg-
lega þúsundir manna tekið á móti
henni á hafharbakkanum."
Að sögn Atla er ár síðan hann
bauð Vigdísi í þessa opinberu heim-
sókn til Færeyja. „Okkur var það
mikil ánægja þegar hún þáði boðið
strax,“ sagði Atli.
Kosningamar fá
mesta umQöllun
Jón G. Haukæcn, DV, Ftereyjum;
Kosningar í Færeyjum, sem fara
fram 8. september, um tvo fulltrúa á
danska þingið fá mesta umfjöllun í
blöðum og útvarpi í Færeyjum þessa
dagana. Lítið hefur verið minnst á
komu Vigdísar í fjölmiðlum í gær
og í morgun en Jögvan Arge frétta-
maður útvarps segir að fjölmiðlamir
taki við sér á morgun og á fimmtu-
daginn vegna komu Vigdísar.
„Kosningamar fá mestu umfjöll-
unina núna,“ sagði Jögvan við DV
í morgun. Sex flokkar em í fram-
boði. Líklegastir sigurvegarar em
Sambandsflokkurinn og Fólkaflokk-
urinn en jafhaðarmenn em líka
sterkir.
Þeir tveir fulltrúar Færeyinga sem
nú sitja á danska þinginu em óli
Breckmann ritstjóri og Pauli Ellefs-
en, formaður Sambandsflokksins.
Forsetaveður
Ján G. Hauksacn, DV, Færeyjum
Veðurstofan í Færeyjum lofaði í
morgun forsetaveðri þegar forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
kæmi til Færeyja á fimmtudaginn.
„Það verður gott veður, því lofa
ég, sannkallað forsetaveður," sagði
starfsmaður veðurstofunnar við DV
í morgun. Leiðindaveður er nú í
Færeyjum, þungbúið og rok. 1 gær
hellirigndi.
Loðnuverðið:
Ekki dregur saman
hjá deiluaðilum
- mjölverð mjakast upp á við á heimsmarkaði
Fundur yfimefiidar Verðlagsráðs
sjávarútvegsins um loðnuverð var ár-
angurslaus í gær og ber mikið á milli
kaupenda og seljenda. Að sögn Bened-
ikts Valssonar hjá Þjóðhagsstofhun,
sem er oddamaður nefndarinnar, hefur
ekkert dregið saman hjá deiluaðilum
á þeim þremur fundum sem haldnir
hafa verið.
Samkvæmt útreikningum Þjóðhags-
stofriunar frá í sumar var gert ráð fyrir
að rekstur loðnubræðslnanna yrði á
núlli á þessari vertíð ef loðnuverðið
yrði 1277 krónur á tonnið. Seljendur,
sjómenn og útgerðarmenn vildu þá fá
1900 krónur fyrir tonnið sem er meðal-
verð síðustu loðnuvertíðar.
Benedikt Valsson sagði í samtali við
DV í gær að verð á loðnumjöli hefði
heldur mjakast upp á við á heims-
markaði frá því í fyrra. Þá var verðið
frá 5,70 og upp í 5,80 dollarar fyrir
prótíneininguna en nú er verðið 6,50
og upp í 6,60 dollarar. Á móti kæmi
síðan lækkun dollarans. í júlí í fyrra
var dollarinn á 41 krónu en er nú
kominn niður í 38,84 krónur. Þetta er
um það bil 5% lækkun.
Verð á lýsi hefur eitthvað mjakast
upp að undanfömu en erfitt að segja
til um hve mikið þar sem ekkert lýsi
hefur verið selt frá íslandi í marga
mánuði. Birgðir em engar til í landinu.
Það er því útlit fyrir að enn um sinn
verði karpað um loðnuverðið í yfir-
nefhd Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
-S.dór
Gestkvæmt hefur verið á sýningunni Veröld ’ 87 að undanförnu og hefur aðsókn farið fram úr björtustu vonum
Herférð fyrir
hreinlæti í Árbæ
Lögreglan í Árbæ hefúr nú hafið
aðgerðir til að fegra borgina. Hún fer
þannig fram að lögreglumenn aka
milli sölutuma í hverfinu um það leyti
sem þeim er lokað og benda eigendum
á allt ruslið sem er í kringum staðina.
Með þessu vilja lögreglumenn stuðla
að hreinni borg. -PLP
Veröld ’87
Um 20 þúsund gestir
Um 20 þúsund manns munu vera
búin að sjá sýninguna Veröld’87 og
virðist ekkert lát vera á aðsókn, sam-
kvæmt upplýsingum frá skipuleggj-
endum sýningarinnar. Um sexleytið á
sunnudag höfðu komið um 6 þúsund
manns þann daginn og sagði talsmað-
ur Kaupstefiiunnar að við lægi að vísa
þyrfti fólki frá, svo mikil var örtröðin.
Aðsóknin hefúr svo haldið áfram eftir
helgi.
Þetta mun vera einhver besta að-
sókn sem sýning af þessu tagi hefur
fengið frá upphafi, að sögn Kaup-
stefiiumanna. -PLP