Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Blaðsíða 38
,38
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sérsveitin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bláa Bettý
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
Bíóhúsið
Undir eldfjallinu
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7. 9 og 11.
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Angel Heart
Sýnd kl. 5 og 10.
Lögregluskólinn 4.
Sýnd kl. 5 og 7.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 9 og 11.
Blátt flauel
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Um miðnætti
Sýnd kl. 7.30.
Háskólabíó
Ginan
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Rugl i Hollywood
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Vslhöll
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Foli
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
Vildi að þú værir hér
Sýnd kl. 3. 5, 7, 9 og 11.15.
Kvennabúrið
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Villtir dagar
Sýnd kl. 3, 5, 7. 9 og 11.15.
Herdeildin
Sýnd kl. 3. 5.20, 9 og 11.15.
Þrir vinir
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Otto
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.06 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Óvænt stefnumót
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Neðanjarðarstöðin
Sýnd kl. 7 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5 og 9.
Þjóðleikhúsið
Sala aðgangskorta hefst fimmtudag-
inn 3. september.
Verkefni í áskrift leik-
árið 1987-1988.
Rómúlus mikli
eftir Friedrich Durrenmatt.
Brúðarmyndin
eftir Guðmund Steinsson.
Vesalingarnir, Les Miserables,
söngleikur byggður á skáldsögu eftir Victor
Hugo.
Listdanssýning
íslenska dansflokksins.
A Lie of the Mind
eftir Sam Shepard.
Fjalla-Eyvindur
eftir Jóhann Sigurjónsson.
Lygarinn
eftir Goldoni.
Verð pr. sæti á aðgangskorti með 20% afs-
lætti kr. 4320.
Ath! Fjölgað hefur verið sætum á aðgang-
skortum á 2.-9. sýningu.
Nýjung fyrir ellilífeyrisþega:
Aðgangskort fyrir ellilifeyrisþega á 9. sýn-
ingu kr. 3300.
Kortagestir leikárið 1986-1987:
Vinsamlegast hafið samband við miðasölu
fyrir 10. september, en þá fara öll óseld
aðgangskort i sölu.
Fyrsta frumsýning leikársins,
Rómúlus mikli, verður 19. september.
Almenn miðasala hefst laugardaginn 12.
september.
Miðasala opin alla daga kl. 13.15-19 á
meðan sala aðgangskorta stendur yfir. Simi
i miðasölu 11200.
LUKKUDAGAR
1. sept.
40123
Nissan Sunny
bifreið frá
Ingvari
Helgasyni
að verðmæti
kr. 400.000,-
Vinningshafar hringi i síma
91-82580.
Kvikmyndir
Laugarásbíó/Rugl í Hollywood:
Sannkallað rugl
Hollywood Shuffle
Framleiðandi og leikstjóri: Robert Towns-
end
Handrit Robert Townsend og Carl Craig.
Myndatökustjóri: Keenen Ivory Wayans.
Tónlist Patrice Rushen, Udi Harpaz.
Aðalhlutverk: Robert Townsend, Anne-
Marte Johnson, Startetta Dupois, Helen
Martin, Craigus R. Johnson.
Ekki er öll vitleysan eins. Nú þykj-
ast menn vera búnir að finna
velheppnaða vasaútgáíú af Eddie
Murphy, Robert nokkum Townsend,
sem framleiðir, leikstýrir, semur
handritið og fer með aðalhlutverk í
þessari ótrúlega mislukkuðu mynd.
Þar segir frá piltinum Bobby Tayl-
or, blökkumanni sem býr í Los
Angeles og á sér þá ósk heitasta að
slá í gegn í Hollywood, og gefa upp
á bátinn starf á skyndibitastaðnum
Winky Dinky Dog, þar sem hann
hefur unnið í nokkur ár. Hann er
svo heppinn að vera valinn úr hópi
ungra svertingja og fær hlutverk í
kvikmynd. Draumurinn hefur ræst
en hlutverkið sem hann fær er dæmi-
gert fyrir þau hlutverk sem svert>
ingjar fá, hann á að leika morðingja
í glæpagengi. Eftir mikla umhugsun
ákveður hann að gefa hlutverkið
upp á bátinn í stað þess að niður-
lægja sig og svarta kynstofhinn með
því að leika það.
Myndin er sögð eiga að vera gam-
anmynd, en mikið óskaplega er hún
langt frá því að vera fyndin, ekki
í eitt skipti kallaði hún fram bros
enda brandaramir frekar langsóttir
þar sem húmorinn er afskaplega
amerískur, m.a. er gert grín að ýms-
um þáttum á amerískum sjónvarps-
stöðvum sem íslendingar þekkja
hvorki haus né sporð á. Ekki bætir
ruglingslegt handrit úr skák, aðal-
persónan sveiflast á milli drauma
um betra blökkumannalíf og hins
vegar veruleikans.
Það er ekki skrýtið að Robert þessi
Townsend skuli ekki hafa fengið
framleiðanda að myndinni heldur
þurft að fjármagna hana sjálfúr.
Myndin ber þess líka merki að lítið
er í hana lagt.
Hins vegar kemur á óvart að
bandaríski kvikmyndaleikarinn
Eddie Murphy er sagður hafa hrifist
af myndinni og ráðið Taylor um-
svifalaust sem leikstjóra í næstu
mynd sinni, eins og segir í auglýs-
ingu með þessari mynd. Honum
hljóta að hafa orðið á mistök þar.
BTH
Á ferðalagi____________________________________
Eitthvað við allra hæfi í Keriingarfjöllum
Kerlingaríjöll eru sérstæð fjalla-
þyrping sem rís yfir hásléttuna
suðvestur af Hofsjökli. Þau eru klasi
af ólíkum tindum og dalkvosir og
gljúfragil eru á milli. Snjór situr all-
an ársins hring í efetu tindunum sem
eru nærri 1500 metra háir og mynda
jökla. Einnig eru þar óteljandi hver-
ir og pyttir enda er jarðhiti geysimik-
ill í Kerlingaríjöllum. Fjölbreytnin
er einstök á jafnlitlu svæði og eru
Kerlingarfjöllin mikil fjallaprý'ði á
Kili.
Kerlingarfjöll draga nafn sitt af 25
m háum drangi eða kerlingu sunnan
í Kerlingartindi i vestanverðum
Qöllunum.
Ágætis vegur liggur til Fjallanna
til hægri af Kjalvegi. Fljótlega til
hægri handar má sjá marka fyrir
flugvelli og skömmu síðar er komið
að tveimur gljúfrum. Þar fellur all-
mikill foss, Gýgjarfoss, niður í
klettaþró. Vegurinn liggur brúaður
yfir annað gil og foss, Hvin, og þá
er stutt eftir þangað til grösugur
hvammur blasir við þar sem sæluhús
Ferðafélags íslands ásamt skíðaskál-
anum stendur. Nefriist þar Árskarð
og þar er frá fomu fari áfanga- og
áningarstaður í Kerlingaríjöllum.
Nú er þama vinsæll ferðamanna- og
skíðastaður og hinn nafnkunni
skíðaskóli í Kerlingarfjöllum er þar
starfræktur yfir sumarmánuðina.
Margar styttri og lengri göngu-
ferðir er hægt að fara frá skálanum
í Árskarði. Ein sú allra stysta og
auðveldasta er einfaldlega upp á
Árskarðsfjall, austan megin skálans.
Þaðan er ágætis útsýni um Kerling-
aríjöllm sjálf og auðvelt að átta sig
á umhverfinu. Hveradalir skera
Kerlingaríjöllin í tvennt og liggja
dalimir inn frá Árskarðinu. Þar er
jarðhiti mestur í Fjöllunum öllum.
Hægt er að fara í örstutta gönguferð
og skoða fyrstu hverina en skemmti-
legast og jafnframt lengra mun vera
að ganga á Hánípur og þaðan um
dalina.
Þegar komið er til Kerlingaríjalla
beinist athyglin öðm fremur að
háum, hömrum girtum tindi sem
gnæfir við himininn. Það er Loð-
mundur, næstshæsti tindur Kerling-
arfjalla. Hann er girtur skriðjöklum
á þrjá vegu og aðeins á tveimur eða
þremur stöðum em einstigi þar sem
komast má upp á sléttan og flatan
kollinn.
Enda þótt vegalengdir í Kerlingar-
fjöllum séu ekki miklar er víða
seinfarið og landslag svo fjölbreytt
að staðir þeir sem fjærst liggja sælu-
húsinu verða út undan. Þeir ferða-
menn, sem ætla sér að dvelja nokkra
daga í Fjöllunum, ættu því að hafa
með sér tjald og útbúnað til útilegu
svo að þeir geti skoðað þau öll. Þá
er hægt að fara í Kisubotna og skoða
Kerlingargljúfur, sem er eitt hið
stórkostlegasta klettagljúfúr á
landinu, og margt fleira.
Möguleikamir á gönguferðum em
nær ótæmandi í Kerlingarfjöllunum
og hægt er að finna eitthvað fyrir
alla, létt og erfitt, stutt og langt.
Loðmundur, næsthæsti tindur Kerlingarfjalla.
Útvaip - Sjónvarp
RÚV, rás 1, kl. 22.45:
Frá einleikara-
prófstónleikum
Nokkrir ungir, efnilegir tónlistar-
;nn þreyttu einleikarapróf í Há-
ólabíói 14. febrúar síðastliðinn.
issir nemendur vom allir úr Tónlist-
skólanum í Reykjavík og eiga
untíðina fyrir sér. Ríkisútvarpið
;ði leið sína þangað og hljóðritaði
aleikana.
Memendumir vom þrír, þau Bryndís
örgvinsdóttir, Helga Bryndís Magn-
dóttir og Bjöm Pavíð Kristjánsson.
Verkin sem leikin vom: Sellókonsert
nr. 1 í a-moll op. 33 eftir Camille Saint-
Saens þar sem Bryndís leikur á selló,
Helga Brýndís leikur á píanó Píanó-
konsert í G-dúr eftir Maurice Ravel
og Bjöm leikur Flautukonsert eftir
Jacques Ibert.
Sinfóníuhljómsveit Islands leikur
með í öllum verkimum, Mark Reed-
man stjómar.
.8 i oa i ‘ .i r
Sjónvarpið kl. 21.05:
Velsk mynd
Æskuminningar skóladrengs heib
ir velsk mynd, sem verður í sjón-
varpinu, eftir Huw K. Evans.
Leikstjóri er Meredith Edwards.
Villi sex var maður einn kallaður
á árum áður en hvere vegna er eklri
ljóst Alla vega hafði þessi maður
mikil áhrif á þann er þessi mynd
fjallar um. Þessi tiltekni maöur rifjar
upp minningar frá fyrri tíð er hann
gekk í skóla í Norður-Wales áaamt
þessum félaga sínum, Villa sex. Þeir
brölluðu margt saman í æsku.