Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
7
Fiskmarkaður Norðuriands hf.:
Atvinnumál
Salan fer öll
fram í gegnum tölvur
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyii;
„Þetta er íyrsti fiskmarkaðurinn með
þessu fyrirkomulagi sem tekur til
starfa enda sniðinn eftir okkar að-
stæðum sérstaklega," sagði Sigurður
P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðar Norðurlands hf., sem
tekur til starfa í næsta mánuði.
„Þessi markaður fer allur fram í
gegnum tölvunet okkar,“ sagði Sig-
urður. Hann sagði að stjómstöðin yrði
til húsa á Akureyri og þangað til-
kynntu seljendur um afla, aflamagn,
aflasamsetningu, veiðidaga, löndunar-
höfii og löndunardag. Á hádegi hvem
dag em síðan sendar upplýsingar um
tölvunet markaðarins til væntanlegra
kaupenda um það sem á boðstólum
er þann daginn og frameftir degi geta
síðan kaupendur gert tilboð í aflann
í gegnum tölvur sínar.
Stjómstöð tölvunetsins er á Akur-
eyri en tölvur verða einnig á Þórshöfh,
Húsavík, Grenivík, Dalvík, Hrísey,
Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkróki.
Þegar menn á þessum stöðum fara að
bjóða í aflann hafa þeir allar upplýs-
ingar á tölvuskermi fyrir framan sig
og geta fylgst með þeim boðum sem
þegar hafa komið i aflann og geta
hækkað boð sín eftir því sem líður á
daginn, fram að þeim tíma að lokað
er fyrir tilboð.
Ef einhver kaupandi kaupir allan
afla af skipi mun hann geta ráðið lönd-
unarhöfri en ef um hluta aflans er að
ræða landar viðkomandi skip í sinni
heimahöfri og kaupandi sækir aflanp
þangað.
Sigurður P. Sigmundsson sagði að
markaðurinn tæki til starfa síðari
hluta septembermánaðar. Hluthafar í
Fiskmarkaði Norðurlands em ýmsir
aðilar á Norðurlandi sem fást við út-
gerð og vinnslu, auk þess sem Akur-
eyrarbær á þriðjung hlutafjár.
Viðtalið____________________
Flestum hnútum
kunnugur
-segir Hannes Hauksson, nýráðinn framkvæmda-
stjori Rauða krossins
„Ég er búinn að starfa hjá Rauða
krossinum sem deildarstjóri fjár-
máladeildar frá árinu 1983 og því
flestum hnútum kunnugur hér,“
sagði Hannes Hauksson, nýráðinn
framkvæmdastjóri Rauða krossins.
Hannes var ráðinn þegar Jón Ás-
geirsson ákvað að láta af störfum
eftir áralangt, farsælt starf hjá
Rauða krossinum. Hannes tekur
formlega við starfinu 1. október en
er í rauninni þegar sestur í fram-
kvæmdastjórastólinn þar sem fyrir-
rennari hans er í sumarfríi.
„Það er í mörg hom að líta í þessu
starfi. Við erum aðilar að alþjóðleg-
um samtökum Rauða krossins og við
tökum þátt í starfi Almannavama.
Þar fyrir utan störfum við að ýmsum
sérverkefhum. Á landinu em 48
Rauða krossdeildir með 20 þúsund
félagsmönnum og við hér á skrifstof-
unni erum með eins konar sam-
hæfingar- og þjónustumiðstöð fyrir
deildimar svo það er í ýmsu að snú-
ast.“
Hannes nefhdi sem föst verkefhi
sjúkraflutninga, rekstur sjúkra-
heimilis og nú síðast húsnæði að
Tjamargötu 35 sem notað væri til
að reka unglingaathvarf.
„í athvarfið leita unglingar sem
eiga við ýmis vandamál að stríða.
Oftast em það erfiðar heimilisað-
stæður, ofbeldi og óregla á heimilum.
Athvarfið hefur verið rekið í hátt á
annað ár og þangað hafa leitað 120
einstaklingar á aldrinum 11-18 ára.
Athvarfið hefur greinilega sannað
tilverurétt sinn, það em því miður
margir unglingar sem þurfa á ein-
hveijum samastað að halda þegar
verulega bjátar á heima fyrir.“
Hannes Hauksson er 29 ára gam-
all. Hann útskrifaðist úr viðskipta-
deild Háskóla íslands árið 1982 og
fór hann þá að starfa hjá verktaka-
fyrirtækinu Hegranesi en réðst sem
fyrr segir til Rauða krossins árið
eftir. Hannes er kvæntur Hjördísi
Hannes Hauksson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins.
DV-mynd JAK
Gunnarsdóttur og eiga þau fimm ára
gamla dóttur.
Helstu áhugamál Hannesar em
stangaveiði, skotveiði og útivera.
„Ég reyni að komast einu sinni eða
tvisvar í lax á sumrin og svo fer ég
gjaman á rjúpu á vetuma. Við hjón-
in höfum aðgang að tveimur
sumarbústöðum sem við reynum að
notfæra okkur eftir bestu getu. Mér
finnst gott að losna úr ysnum í höf-
uðborginni og slaka á í sveitinni
enda var ég mikið í sveit sem bam
og hálfgert náttúmbam.
Það er bara verst að ég verð að
fara með símann með sér ef ég fer
úr bænum vegna tengslanna við
Almannavamir," sagði Hannes
Hauksson, sem kveið því ekki að
takast á við nýtt starf.
„Starfið leggst mjög vel í mig. Sam-
starfsfólkið er mjög gott og hæft og
við ætlum okkur stóra hluti.“
-ATA
Það nýmæli verður tekið upp hjá fiskmarkaði Norðurlands, sem opnaður verður innan tiðar, að fisksaian fer öll fram
í gegnum tölvur.
f JL-BYGGINGAVÖRUR TEPPADEILD
UTSSLA-NEI!
LÁGT VERfi - IÁ!
Við höldum ekki útsölu. En með hagstæðum innkaupum
reynum við að hafa vöruverð alltaf sem lægst.
495
Madras 100% zinthetic................kr.
Meriden 50% polyprop, 50% polyamid .. kr.
Sandra 50% polyprop, 50% polyamid.....kr.
Turbo 50% polyprop, 50% polyamid......kr
Cadis 100% polyamid..................kr.
per m
640
665
665
760
785
per m2
per rrri
per mz
per mz
Tweed 50% polyprop, 50% polyamid kr. X \JsJ per mz
Rosanne 100% polyamid........kr. 875 per mz
1.185
Shadows 100% polyamid....... kr.
Greiðslukjör gerast varla betri
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND.
per m
FTHl BYGBlNEAýQRPBl
Hringbraut 120, sími 28600, og Stórhöfða, simi 67100.