Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
11
Utlönd
Neitar aðild
Juan Ponce Enríle, öldungadeildarþingmaður
og einn hörðustu andstæðinga Corazon Aqu-
ino, forseta Filipseyja, hefur nertað alfaríð að
hafia átt hlut að uppreisnartilrauninni, sem
gerð var gegn henni í síðustu viku.
Enrile sagði jaihframt að Aquino gæti sjálfri sér um
kennt, því byltingartilraunin væri bein afleiðing af
stjómarháttum hennar.
Leiðtogar uppreisnarmanna úr röðum kommúnista á
Filipseyjum sögðu í gær að þeir myndu nú sæta færis
og herða aðgerðir sínar gegn stjóm og her landsins,
meðan enn ríkit upplausn og óvissa eftir byltingartil-
raunina. Sem kunnugt er fór byltingin út um þúfur og
hafa byltingarmenn ýmist verið handteknir eða hraktir
Allir fórust
Talið er að áttatíu og þrír hafi farist í flugslysi
skammt undan vesturströnd Thailands í gær-
morgun.
Slysið varð þegar Boeing 737 þota frá Thai Airways
var í aðflugi að flugvelli á eyju skammt frá ströndinni.
Haft er eftir embættismanni á svæðinu að svo virðist
sem flugmenn þotunnar hafi beygt af leið til að forðast
árekstur við aðra flugvél. Hafi þeir við það misst stjóm
á þotunni, sem sjónarvottar segja að hafi steypst í hafið.
Að sögn yfirvalda var önnur þota, frá flugfélaginu
Dragon Air, sem er starfrækt í Hong Kong, á lokaað-
flugi að sama flugvelli á þessum tíma og áttu þotumar
að lenda með mínútu millibili. Er talið að nærri hafi
legið árekstri á milli þeirra, en ekki var í gær ljóst hvort
það var vegna mistaka flugmanna, flugumferðarstjómar
eða af öðrum orsökum.
í felur.
A sunnudagskvöld réðst hópur vopnaðra manna, sem
talið er að hafi verið skæmliðar kommúnista, inn í
birgðastöð stjómarhersins í Manila, höfuðborg landsins,
og sprengdu þar í loft upp bensínbirgðir.
Stjómarhermenn, sem tryggir reyndust ríkisstjóm-
inni, unnu að því yfir helgina að hreinsa upp eftir átökin.
Talið er að meir en fjömtíu hafi fallið og um tvö hundr-
uð og sjötíu hafi særst í bardögunum, sem vom hinir
verstu á Filipseyjum frá því síðari heimsstyrjöld lauk.
í fyrstu var talið mögulegt að einveijir hefðu komist
lífs af úr flugslysinu og vom bátar þegar sendir á slys-
stað. Grunnt er á þeim slóðum sem þotan hrapaði á og
stóð annar vængur hennar upp úr sjónum.
Að sögn björgunarmanna fiindust engir á lífi á slys-
stað, en hins vegar fundust þegar átta lík. Sjötiu og
fjórir farþegar vom um borð í vélinni, og níu manna
áhöfn. Hún var á leið frá borginni Songklha í suð-
austurhluta Thailands, til Phuket, sem er baðstranda-
reyja við suð-vesturströnd landsins.
Þrjátíu og sjö af farþegum þotunnar vom útlendir
ferðamenn, þar af þrír frakkar, þrír japanir, tveir banda-
ríkjamenn, einn ítali og þrjátíu kínverjar.
Atta ára dóm
Liðlega fimmtug þýsk kona, Margaret Hoeke,
fymim ritari forseta V-Þýskalands, var í gær
dæmd til átta ára fangelsisvistar fýrir njósnir
í þágu Sovétmanna.
Hoeke var fundin sek um landráð af dómstól í Bonn,
og sagði dómarinn, Klaus Wagner, að hún hefði verið
sérlega hættulegur njósnari og sérlega mikilvæg fyrir
sovésku leyniþjónusutuna, KGB, vegna stöðu sinnar.
Hoeke var ein margra einmana kvenna í lykilstöðum,
sem sovéska leyniþjónustan fékk til liðs við sig með því
að stofna til ástarsambanda milli kvennanna og leyni-
þjónustumanna.
Aðgerð þessi var kölluð „hunangsgildran" og hafa
konumar, sem urðu fyrir þessu, verið nefndar „njósnar-
ar einmanaleikans“.
Meðal þeirra upplýsinga sem talið er að Hoeke hafi
afhent KGB vom leyndarskjöl sem lutu að umræðunni
innan Atlantshafsbandalagsins um staðsetningu kjam-
orkuvopna í evrópu árin 1982 og 1983.
Dómstóllinn sem í gær fjallaði um mál Hoeke féllst
ekki á þá kröfu saksóknara í málinu, að dæma bæri
konuna í ellefu ára fangelsi. Segir í dómsorði að mála-
vextir hljóti að verka mildandi á dóm, einkum sú
staðreynd að Hoeke hafi verið véluð af ástmanni sínum,
sem var KGB njósnarinn Franz Becker.
Hoeke var njósnari lengur en nokkur önnur af riturum
þeim sem tekist hefur að sanna njósnastarfsemi á. Ho-
eke hafði starfað á skrifstofu forseta V-Þýskalands í tíu
ár, þegar Becker komst í ástarsamband við hana. Frá
því samband þeirra hófet, árið 1968, hefur Hoeke haft
aðgang að yfir seytján hundmð leyniskjölum vegna
starfs síns, en ekki fylgir sögunni hversu mörg hún af-
henti ástmanninum.
Mótmæla uppgjöf
Þúsundir verfcamanna í ísraelskum flugvéla-
veifcsmiðjum mötmæltu ígær þvíað rikisstjóm
landsins hefur gefist upp við framleiðslu á
Lavi orustuþotum.
Verkamennimir kveiktu í haugum af notuðum dekkj-
um á aðalþjóðveginum milli Tel Aviv og Jerúsalem og
lokuðu veginum milli borganna í nokkrar klukkustund-
ir. Mikið umferðaröngþveiti hlaust af uppátæki þeirra
og vegna þess misstu hundruð ferðamanna af flugvélum
sínum og urðu strandaglópar í landinu.
Verkamennimir höfðu hótað að koma í veg fyrir flug-
tök og lendingar á alþjóðaflugvellinum í Tel Aviv, en
féllu frá þeirri hótun sinni. Mótmælin enduðu friðsam-
lega viðast hvar í landinu, eftir nokkurra klukkustunda
þóf.
Moshe Katzau, atvinnumálaráðherra ísrael, sagði i
gær að ríkisstjóm landsins myndi gera allt sem i hennar
valdi stendur til þess að finna nýja atvinnu handa þeim
tvö þúsund og fimm hundruð verkamönnum sem sagt
verður upp störfum vegna ákvörðunar ríkisstjómarinn-
ar.
Verkamennimir vom þó ekki einungis að mótmæla
atvinnumissinum, heldur einnig því að þeim þykir
skömm að því að hætta við framleiðslu á þotunum, sem
hafa reynst mjög vel í reynsluflugi, vegna þrýstings frá
Bandaríkj amönnum.
Verslunarhúsnæði óskast
- æskileg stærð 30-60 fermetrar.
Upplýsingar í Versl. Ánar - sími 673860
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Heildverslun óskar eftir skrifstofuhúsnæði.
Upplýsingar i síma 623860.
ÆGISBORG
FÓSTRUR - STARFSFÓLK
Fóstrur og starfsfólk óskast til starfa á dagheimilis-
og leikskóladeildir Ægisborgar. Vinnutími eftir há-
degi. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður og
yfirfóstra í síma 14810.
!3
11. Frá Menntaskólanum
^ íKópavogi
Skólinn verður settur í samkomusal skólabyggingar-
innar kl. 14. föstudag 4. september.
Kennarafundur verður miðvikudaginn 2. september
kl. 14.
Skólameistari
ÁGÆTU MÓÐU RMÁLSKENNARAR
Nemendur 7., 8. og 9. bekkjar Grunnskólanum í Þor-
lákshöfn vantartilfinnanlega kennara í íslensku, einnig
kennslu 12 ára barna. Góð vinnuaðstaða, ódýrt hús-
næði í boði og við erum aðeins í 50 km fjarlægð frá
höfuðborginni.
Vinsamlegast hringið og leitið upplýsinga hjá skóla-
stjóra i símum 99-3910, 99-3621 og formanni skóla-
nefndar í síma 99-3789.
III REYKJKMIKURBORG
Mr Aautein, Stödun
ÚTIDEILDIN í REYKJAVÍK
Við í útideild erum að leita að karlmanni til að sinna
leitar- og vettvangsstarfi meðal barna og unglinga í
Reykjavík. Um er að ræða tæplega 70% starf í dag-
og kvöldvinnu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun á félags-
og/eða uppeldissviði, t.d. félagsráðgjafar, kennarar,
uppeldisfræðingar o.fl.
Nánari upplýsingar um starfið eru gefnar í sima 20565
milli kl. 13 og 17 virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
RÝMINGARSALA
Nýir vörubílahjólbarðar.
Mikil verðlækkun.
900x20 nælon frá kr.
8.500,-
1000x20 nælon frá kr.
10.500, -
1100x20 nælon frá kr.
11.500, -
1200x20 nælon frá kr.
12.500, -
1000x20 radial frá kr. 12.600,-
1100x20 radial frá kr. 14.500,-
1200x20 radial frá kr. 16.600,-
Gerið kjarakaup. Sendum
um allt land.
BARÐINN HF.,
Skútuvogi 2 - Reykjavík.
Sími 30501 og 84844.