Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Qupperneq 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
Erlend myndsjá
Kvenleg
áhöfn
Merkur áfangi náðist í kvenrétt-
indabaráttu í Astralíu síðastliðinn
laugardag þegar breiðþota af gerð-
inni DC-10 lenti á alþjóðaflugvellin-
um í Sydney. Það merkilega við
flugið var að áhöfn þotunnar var
skipuð konum einum saman en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem slíkt ger-
ist í flugsögu Ástralíu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
Lennie Sorenson flugstjóra, Dorothy
Clegg og Carlene Cipriano aðstoðar-
flugmenn fyrir framan þotuna á
flugvellinum í Sydney. Þær stöllur
flugu þotunni frá Hawaii.
Atvik þetta hefði verið fullkomið
hefði ekki svo slysalega tekist til að
þotan sjálf ber karlmannsnafh. Eins
og sjá má er hún nefhd Robert
Gallaway en telja verður næsta
ómögulegt að þar fari kvenvera.
DV
Trúboði
laus
Bandaríska hjúkrunarkonan og trú-
boðinn Kindra Bryan lýsir hér reynslu
sinni fyrir fréttamönnum en hún var
tekin í gíslingu af uppreisnarmönnum
í Mósambik þann 7. maí síðastliðinn
og haldið í rúma tvo mánuði. Bryan
er nú laus og heil heilsu.
Sihan-
ouk enn
á férð
Norodom Sihanouk prins, fyrrum
þjóðhöfðingi Kambódíu, er um þessar
mundir staddur í Peking þar sem hann
ræðir við kínverska leiðtoga og félaga
sína í kambódísku samsteypustjóm-
inni.
Prinsinn hélt óvæntan blaðamanna-
fund á flugvellinum í Peking á laugar-
dag og var greinilega mikið niðri fyrir.
Af meðfylgjandi mynd má ráða að
prinsinn hafi haft ýmislegt að segja
og hafi lagt áherslu á orð sín.
Huston
og
Bogart
Bandaríski leikstjórinn John Hus-
ton sést hér á mynd með gömlu stjöm-
unni Humphrey Bogart. Myndin var
tekin árið 1931 þegar þeir unnu að
gerð myndarinnar „The African
Queen“. Mynd þessi birtist í bók sem -
Katharine Hepbum skrifaði um gerð
kvikmyndarinnar.
Huston lést í svefiii að morgni síðast-
liðins föstudags.
Nautahlaup
í Mexíkó
Árlegu nautahlaupi í bænum Tecata
í Mexíkó er nú nýlokið. Hlaupið er
nefht eftir Pamplonada-hlaupinu sem
frægt er. Ellefú naut vom í hlaupinu
að þessu sinni en enginn mun hafa
meiðst.
Madonna geffúr fé
til eyðnirannsókna
Bandaríska poppstjaman Madonna notaði tækifærið, þegar hún var stödd
í París um helgina, til þess að afhenda forsætisráðherra Frakklands, Jacqu-
es Chirac, hálfa milljón franskra franka sem verja á til eyðnirannsókna í
landinu.
Madonna hélt tónleika í París á laugardagskvöld að eitt hundrað þúsund
aðdáendum viðstöddum. Væntanlega hefúr forsæ'tisráðherrann verið þar í
hópi og ef til viU koma aðrir stjómmálaleiðtogar einnig á hljómleika stjöm-
unnar framvegis ef von er á framlögum af þessu tagi.