Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
23
Fréttir
Unglingadeildir slysavamafélaganna þinga á Egilsstöðum
Undirstaða björgunar-
sveitanna á íslandi
Anna íngólfedóttir, DV, EgSsstöðum;
Þrátt fyrir að farið sé að kólna á
nætuma lágu nær áttatíu unglingar
í tjöldum í Atlavík um síðustu helgi.
Hópur þessi kom víða að af landinu
í þeim tilgangi að hittast og gera
góða hluti saman. Þama fór nefni-
lega fram landsmót unglingadeilda
Slysavamafélags Islands. Þetta er í
annað sinn sem slíkt landsmót er
haldið.
Helgi Kristinsson, formaður ungl-
ingadeildar Gró á Egilsstöðum, var
inntrn- frétta af starfi unglingadeild-
anna á landinu. Hann sagði að alls
væm starfandi tíu unglingadeildir
og tilgangurinn með starfi þeirra
væri sá að þjálfa ungt fólk til björg-
unarstarfa. Þeir sem vilja starfa með
deildunum þurfa að vera á aldrinum
13-18 ára. Áhugasemi og vilji er það
sem heldur krökkunum í deildunum.
Haldnir em fundir, námskeið og
þess háttar og þurfa krakkamir að
koma á þessa fundi og vera viðbúnir
því að mæta hvenær sem er.
Baldur Pálsson umdæmisstjóri, Helgi Kristinsson, formaður unglingadeildar Gró á Egilsstöðum, og Hrafnkell
Kárason tengiliður.
Þegar krakkamir ná átján ára
aldri ganga þeir inn í slysavamafé-
lagið í sínu byggðarlagi og taka þá
í fyrsta skipti þátt í reglulegu leitar-
starfi.
Á mótinu nú um helgina, en ungl-
ingadeild Gró skipulagði það og
undirbjó, var meðal annars haldinn
fyrirlestur um skyndihjálp. Einnig
fluttu formenn deildanna skýrslur
og ráku starfið í sinni deild í hnot-
skum.
Meginmál mótsins var skipulögð
leit að fimm mönnum sem týndir
vom í fjalli rétt ofan við bæinn Haf-
ursá í Vallahreppi. Bmgðust leitar-
menn vel við og virtist leit öll hin
skipulegasta.
Að sögn Hrafrikels Kárasonar,
tengiliðs unglingadeildar Gró, er
brýn þörf fyrir unglingadeildir. Þær
reka starfið áfram og em það sem
mesta rækt þarf að leggja við, nefrii-
lega undirstaða björgunarsveitanna
á Islandi.
SJALFSA FGREIÐSLA
Allan sólarhringinn, - alla dagaí
i
I '
I nœsta Hraðbanka getur þú:
1. Tekið út reiðufé,
allt að tíu þúsund
krónum á dag.
2. Greitt gíróseðla
t.d. orkureíkninga
og símareikninga,
með peningum eða
millifærslu af eigin
reikningi. y
3. Lagt inn peninga
og millifært
af sparireikningi
á tékkareikning
eða öfugt.
4. Fengið upplýsingar
um stöðu
tékkareiknings og
sparireiknings.
Opið allan
sólarhringinn!
M
Feð bankakort í hendi ertu kominn með
lyklavöldin að hvaða afgreiðslustað
Hraðbankans sem er.
Hraðbankinn er sjálfsafgreiðslubanki þar
sem þú sinnir algengustu bankaerindum
þínum á þeim tíma sólarhringsins sem hent-
ar þér best.
Þú borgar ekkert aukalega því nú hefur
færslugjaldið verið fellt niður.
......... ""...J—r
- þegar þér hentar best!
Afgreiðslustaðir Hraðbankans:
Landsbankinn: Hótel Loftleiðum, Borgarspítala, Breiðholti, Akureyri.
Búnaðarbankinn: Austurstræti, Landspítala,Hlemmi, Kringlunni.
Sparisjóðurinn í Keílavík,
Sparisjóður vélstjóra, Borgartúni.
Samvinnubankinn, Háaleitisbraut.
Útvegsbankinn, Hafnarfirði.
SPRON, Skólavörðustíg.