Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987. 7 Utlönd Hundruð Parísarbúa tóku í gœr þátt í mótmœlagöngu gegn stefhu frönsku ríkiastjómarinnar í málefii- um Nýju Kaledóniu. Lýstu mótmæl- endumir yfir stuðningi við hugmyndir kanaka um sjáhstæði þessarar frönsku nýlendu og báru spjöld með myndum af einum leið- toga kanaka, Eloi Maehoro, sem féll i átökum við lögreglu í nýlendunni fyrir liðlega tveim árum. Þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram í Nýju Kaledóníu innan skamms um ur nái meirihluta fyrir því að vera áfram frönak nýlenda. Bjartsýnir eftir fund með páfa Leiðtogar heimssambands gyð- inga, sem áttu fund með páfa í gær, lýstu bjartsýni eftir fundinn og sögðu að samband gyðinga við páfa- garð ætti nú að geta lagast að nýju eftir að hafa beðið mikinn hnekki þegar páfi bauð Kurt Waldheim, for- seta Austurríkis, í opinbera heim- sókn til páfagarðs. Alls voru það níu af leiðtogum gyðinga sem heimsóttu páfa í gær en fund- ur af þessu tagi hefur ekki verið haldinn áður. Stóð fundurinn í liðlega klukkustund í sumarhöll páfa sunnan við Rómaborg. Engfnn komst Irfs af Ljóst er nú orðið að enginn komst lífs af í flugslysinu sem varð undan vesturströnd Thailands fyrr í vikunni. Allir þeir áttatíu og þrír, sem voru um borð í Bœing 737 þotunni, sem þar steyptist i hafið, eru taldir látnir þótt ekki hafi fúndist nema fáein Ifk á slysstaðnum. Ekkert er enn ljóst um tildrög slyssins annað en að flugmenn þotunnar misstu greinilega stjóm á henni í aðfiugi og steyptist hún beint í hafið. Fyrstu fregnir af þvi að þeir heföu orðið að sveigja skyndilega úr vegi ann- arrar þotu reyndust algerlega tilhæfulausar. Björgunaretarf heldur enn áfram og í gær reyndu kafarar að leita í flaki þotunnar sem liggur á grunnsævi. Hungursneyð í Zambíu Talið er að hunguraneyð hrjái nú um sjö hundruð og sjötíu þúsund íbúa Zambíu en neyðarástand þetta er til komið vegna mikilla þurrka í mörgum héruðum landsins. KANARIEYJAR - JOLAFERÐ Enska ströndin og Tenerife. Vetraráætlunin komin. íbúðir og hótel á eftirsóttum stöðum. VETRARDVÖL A MALLORCA 5 mánuðir, kr. 67.850,- Pantið snemma. FLUGFERDIR SGLRRFLUG Vesturgötu 17 símar 10661, 15331, 22100. HAUSTTILBOÐ SOLHUSIÐ Sólbaðsstofa Astu B. Vilhjálms, Grettisgötu 18, sími 28705 Nýjar perur Nýjar perur á að seljast. J \ Nýjarperur VERIÐ VELKOMIN ÁVALLTHEITTÁ KÖNNUNNI Reykingabann í Belgíu Reykingamenn í Belgíu, sem freistast til að kveikja sér í einni í opinberum byggingum, eiga nú von á því að verða sektaðir. Sam- kvæmt nýjum lögum, sem tóku gildi í gær, er nú heimilt að leggja þungar sektir á þá sem brjóta reykingabann í opinberum bygg- ingum. Samkvæmt lögum þessum er bannað að reykja í skólum, á sjúkrahúsum, í biðsölum jám- brautarstöðva og menningar- og íþróttamiðstöðvum í eigu opin- berra aðila. Þá eru veitingastaðir skyldaðir til að hafa reyklaus svæði í veit- ingasölum sínum. Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti belgískra borgara er fylgjandi þessu banni. Aðeins átt- undi hver aðspurðra var mótfall- inn því. Samtök, sem beijast gegn krabba- meini í Belgíu, lýstu því yfir í gær að þessu banni beri að fylgja eftir með hækkun á tóbaki til að mæta þeim kostnaði sem notkun þess veldur þjóðfélaginu. í yfirlýsingu samtakanna sagði að þrefalda þyrfti verð á tóbaksvörum í þessu skyni. Verð á sígarettupakka yrði þá hátt á þriðja hundrað íslenskra króna. Hárlos ? ÁSTA KAREN VAR ORÐIN ÞREYTT Á AÐ HAFA BURSTANN ALLTAF FULLAN AF HÁRUM. Hún gerði sér grein fyrir að þéttur og góður hár- vöxtur krefst réttra næringarefna, sem stundum skort- ir í fæðuna. Þess vegna reyndi hún HÁRKÚR töflurnar. Hálfum mánuði eftir að hún byrjaði að nota þær var hún laus við hárlosið og hefur það ekki angrað hana síðan. HÁRKÚRtöflurnar innihalda næringarefni sem eru nauðsynleg góðum hárvexti. Laugavegi 24, Nýbýlavegi 22, sími 17144. Kópavogi, sími 46422.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.