Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987. >30 Kvikmyndahús Bíóborgin Tveir á toppnum Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sérsveitin Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. Bláa Bettý Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20. Bíóhúsið Undir eldfjallinu Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bíóhöllin Tveir á toppnum Sýnd kl.5,7, 9og11. The Living Daylights Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Angel Heart Sýnd kl. 5 og 10. Lögregluskólinn 4. Sýnd kl. 5 og 7. Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 9 og 11. Blátt flauel Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Um miðnætti Sýnd kl. 7.30. Háskólabíó Gínan Sýnd kl. 7, 9 og 11. Laugarásbíó Rugl i Hollywood Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Valhöll Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Foli Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. Regnboginn Vildi að þú værir hér Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Kvennabúrið Sýnd kl. 9 og 11.15. Villtir dagar Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Herdeildin Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15. Þrír vinir Sýnd kl. 3, 5 og 7. Otto Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.06 og 11.15. Herbergi með útsýni Sýnd kl. 7. Stjömubíó Óvænt stefnumót Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Neðanjarðarstöðin Sýnd kl. 7 og 11. Wisdom Sýnd kl. 5 og 9. Þjóðleikhúsið Sala aðgangskorta hefst fimmtudag- inn 3. september. Verkefni í áskrift leik- árið 1987-1988. Rómúlus mikli eftir Friedrich Dúrrenmatt. Brúðarmyndin eftir Guðmund Steinsson. Vesalingarnir. Les Miserables, '•#' söngleikur byggður á skáldsögu eftir Victor Hugo. Listdanssýning Islenska dansflokksins. A Lie of the Mind eftir Sam Shepard. Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson. Lygarinn eftir Goldoni. Verð pr. saeti á aðgangskorti með 20% afs- lætti kr. 4320. Ath! Fjölgað hefur verið sætum á aðgang- skortum á 2.-9. sýningu. Nýjung fyrir ellilífeyrisþega: Aðgangskort fyrir ellilífeyrisþega á 9. sýn- ingu kr. 3300. Kortagestir leikárið 1986-1987: Vinsamlegast hafið samband við miðasölu fyrir 10. september, en þá fara öll óseld aðgangskort í sölu. Fyrsta frumsýning leikársins, Rómúlus mikli, verður 19. september. Almenn miðasala hefst laugardaginn 12. september. Miðasala opin alla daga kl. 13.15-19 á meðan sala aðgangskorta stendur yfir. Simi í miðasölu 11200. LUKKUDAGAR 2. sept. 31660 Raftæki frá FÁLKANUM að verðmæti kr. 3.000,- Vinningshafar hringi i sima 91-82580 Kvikmyndir Bíóhúsið/Undir eldfjallinu: Útbrunnið eldfjall Opnunaratriði myndarinnar er góður forsmekkur þess sem koma skal en myndin er ölt hin drungalegasta! Under the volcano Bandarisk. Leíkstjóri: John Huston. Aðalhlutverk: Albert Rnney, Jacqueline BisseL Anthony Andrews. Kvikmyndin Undir eldfjallinu getur vart talist til merkilegri mynda sem leikstjórinn nýlátni, John Huston, hefur komið nálægt. Hins vegar er ekki hægt að segja annað en að hún sé ein sú furðulegasta. Kvikmyndin gerist í mexíkanskri sveit og við komum inn í söguna á „degi hinna látnu“. Upphafið lýsir kannski vel myndinni sem er öll hin drungalegasta. Albert Finney leikur fyrrverandi starfsmann bresku utan- ríkisþjónustunnar í Mexíkó sem hefur ílengst þar. Hann er virkur alkóhólisti og saknar eiginkonunnar sem farið hefur frá honum. Hann flækist eitt og annað þetta kvöld ásamt vini sínum, mexíkönskum lækni. Meðal annars liggur leið þeirra inn í kapellu þar sem heilög guðsmóðir er beðin fyrir endurkomu eiginkonunnar. Dagmn eftir er eiginkonan komin, full iðrunar og dregur manninn út af einni knæpunni. Hins vegar er alveg vonlaust fyrir hana að fá hann til að taka frí frá stútnum og allar tilraunir hennar til að endurreisa sambandið brotna á beiskju hans. Ekki bætir úr skák að hjá þeim býr hálfbróðir drykkjumannsins, leikinn af Anthony Andrews. Sífellt er verið að gefa í skyn að þau tvö hafi átt vingott saman og það mildar ekki afstöðuna. Leið þeirra þriggja liggur á hátíð í nærliggjandi þorpi en á leiðinni sjá þau mann sem augljóslega hefúr verið myrtur. Áfram er drukkið á hátíðinni og þaðan liggur leiðin á veitingahús sem stendur við nauta- atshring. Andrews tekur sig til, hoppar niður til bola og tekur nokk- ur lauflétt spor með rauða klútinn, áhorfendum til mikillar ánægju. Eft- ir það fær beiskja eiginmannsins útrás, hann hellir sér yfir þau bæði og lýkur síðan á braut. Hann fer inn í heldur óvistlega krá, drekkur áfram og er útveguð gleðikona. Þegar út er komið lendir hann í illdeilum við morðingja mannsins fiá deginum áður sem lýk- ur með því að þeir slá hann af. Nánast samtímis hleypur hestur á eiginkonu hans og myndin endar þannig, með sameiningu í dauðan- um. Eins og áður er sagt er myndin hin drungalegasta, fúrðuleg og langt í fiá skemmtileg. Fólk ætti heldur að velja sér aðrar kvikmyndir til skemmtunar nema það hafi unun af góðum vinnubrögðum leikstjórans. -JFJ Á ferðalagi________________ Enn Milli Hofsjökuls og Langjökuls liggur háslétta allmikil og er hún venjulega nefnd Kjölur, einu nafiú. Þama uppi á hæsta punkti verða vatnaskil milli Norður- og Suður- lands og renna þaðan stórámar Blanda, norður eftir, og Hvítá, suður eftir. Breidd Kjalar á milli jöklanna er um 20 til 25 km. Þetta er eins og áður sagði háslétta og þar liggur Kjalhraun. Nokkur einstök fjöll og fell rísa upp af þessari hásléttu. Hið mesta þeirra er Kjalfell sem rís um 400 m yfir umhverfið. Skammt norðaustan við Kjalfell er Beinahóll eða Beinabrekka, þar sem Reynisstaðabræður, fé og föm- neyti, urðu úti árið 1780. Þar finnast enn bein úr fé þeirra bræðra og þekkist hóllinn úr fjarlægð vegna hvítra beinanna sem standa út úr hólnum. Jafnmikið hefúr ömgglega ekki verið skrifað og rætt um nokkum slysaatburð hér á landi sem þennan. Atburðurinn þykir enn þann dag í dag mjög dularfullur og ekki hefur fengist fúllnægjandi skýring á sumu því er í þessari för gerðist. Um helför þessa yrkir Jón Helga- son prófessor í Áföngum: Liðið er hátt á aðra öld; enn mun þó reimt á Kili, þar sem í snjónum bræðra beið mun reimt á Kili beisklegur aldurtili; skuggar lyftast og líða um hjam líkt eins og mynd á þili; hleypur svo einn með hærusekk, hverfur í dimmu gih. Árið 1971 var reistur minnisvarði um Reynisstaðabræður úr stuðla- bergi á Beinahól. Eftir dauða bræðranna og fylgdar- manna frá Reynistað fékk almenn- ingur mikinn ímugust á þessari öræfaleið sem annars hafði um margar aldir verið ein fjölfamasta samgönguæð milli landsfjórðunga. Það lá við að Kjalvegur legðist af hátt upp í hundrað ár. Reimleikaorð fór að myndast um leiðina, einkum í nánd við Kjalfell og hraunið. Ekki dró svo útilegumannatrúin úr hræðslunni. Óhugnanleg hula svífur enn yfir þessum stað og verður seint aflétt. Kjalvegur er þó aftur orðinn fjölfar- in leið og þeir eru óteljandi ferða- mennimir, íslenskir sem erlendir, sem leggja leið sína þama um enda er margt að sjá og skoða. Beinahóll þar sem Reynisstaðabræður báru bein sín. Kerlingarfjöll i baksýn. LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR Aðgangskort Sala aðgangskorta, sem gilda á leiksýningar vetrarins, stendur nú yfir. Kortin gilda á eftir- taldar sýningar: 1. Faöirinn eftir August Strindberg. 2. Hremming eftir Barrie Keefe. 3. Algjört rugl Christopher Durang. 4. Sildin kemur, síldin fer eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist eftir Valgeir Guðjónsson. 5. Nýtt islenskt verk, nánar kynnt síðar. Verð aðgangskorta á 2.-10. sýningu kr. 3.750. Verð frumsýningakorta kr. 6.000. Upplýsingar, pantanir og sala i miðasölu Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó daglega kl. 14-19. Sími 1-66-20. Einnig slmsala með VISA og EUROCARD á sama tíma. Útvarp - Sjónvarp Stöð 2 kl. 20.15: Lögreglan í Reykjavík snýr lukkuhjólinu Þátturinn Happ í hendi, sem allf- lestir ættu núorðið að kannast við, er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld í umsjón Biyndísar Schram að vanda. í þessum þætti fáum við að sjá svart/ hvítú karlana spreyta sig á lukku- hjólinu. Þessir svart/hvítu menn em að sjálfsögðu lögreglan í Reykjavík. Þeir verða að vísu ekki í búningun- um en engu að síður verður gaman að fylgjast með hvort þeim tekst eins vel upp án þeirra og í þeim á götum úti. Lögreglan í Reykjavík snýr lukkuhjótinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.