Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987.
Úllönd
Ekkert lát
á árásum
Byltingarverðir írans hafa gert
árásir á fjögur olíuflutningaskip og
eitt venjulegt flutningaskip á Persaf-
lóa frá því í gær.
íranskur hraðbátur réðst í nótt á
flutningaskip frá Kýpur undan
ströndun Sameinuðu arabísku
furstadæmanna. Árásin var gerð
stuttu eftir árás á flutningaskip sem
skráð er í Líberíu. Sú árás var gerð
í Hormuzsundi. Engin slys urðu á
mönnum og skemmdir aðeins smá-
vægilegar. í gærkvöldi réðust bylt-
ingarverðir á spænskt olíuflutninga-
skip.
írakar tilkynntu í morgun tíundu
árás sína á flutningaskip á Persaf-
lóa. Var skipið skammt undan
ströndum írans er íraskar herflug-
vélar gerðu árás á það.
Bandaríkjamenn tilkynntu í gær
að þeir myndu leggja áherslu á að
banni við vopnasölu til írans yrði
komið á hið fyrsta ef yfirvöld í Iran
hefðu ekki samþykkt vopnahlésá-
lyktun Sameinuðu þjóðanna fyrir
fostudag.
Járnbrautaiiest ók
yfir mótmælanda
Það atvik varð skammt frá San
Francisco í Bandaríkjunum í gær að
vopnaflutningalest ók yfir einn úr
hópi mótmælenda sem reyndi að
stöðva ferð lestarinnar. Maðurinn,
Brian Willson, einn af helstu leið-
togum þeirra sem berjast gegn
vopnaflutningum til ríkja Mið-Amer-
íku, missti fótinn og slasaðist alvar-
lega á höfði.
Mótmælendur komu í gær saman á
brautarstöð í Concord í Kalifomíu,
um fjömtíu mílur austur af San Fran-
cisco. Héldu þeir þar mótmælafund
vegna vopnaflutninga til Mið-Amer-
íkuríkja og ætluðu að reyna að koma
í veg fyrir að vopnaflutningalest, hlað-
in búnaði frá vopnabirgðastöð banda-
ríska sjóhersins í Concord, kæmist út
úr brautarstöðinni. Raðaði fólkið sér
á teinana og ætlaðist til þess að lestin
næmi staðar.
Þegar ljóst varð að lestin myndi
ekki nema staðar véku mótmælendur
úr vegi á síðustu stundu. Willson, sem
varð of seinn til að stökkva, varð fyrir
lestinni og féll niður á milli brautar-
teinanna þar sem hann lá meðan lestin
fór yfir hann.
Willson missti hægri fót í slysinu,
meiddist á vinstri fótlegg og hlaut al-
varleg höfuðmeiðsl. Hann liggur nú á
sjúkrahúsi og er talinn í lífshættu.
Bandarísk freigáta fer fyrir lest olíuflutningaskipa frá Kuwait á Persaflóa.
Símamynd Reuter
Holly Raven, eiginkona Brian Willson, horfir skeHingu lostin á þegar lestin
ekur yfir eiginmann hennar sem liggur milli teinanna. Sfmamynd Reuter
Brian Willson, leiðtogi hópsins sem
mótmælti vopnaffutningunum, heldur
tölu skömmu fyrir slysið.
Sfmamynd Reuter
afsláttur á lambaframpörtum
Ljúffengur biti á lágu verði
Gerðu góð kaup þegarþú átt leið í næstu matvörubúð og fáðu þér lambaframpart frá Sláturfélaginu með 10% afslætti.
<
w
_j
2
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS