Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987. 25 Fólk í fréttum Jón R. Ragnarsson rallökumaður hefur verið í fréttum DV en hann sigraði í Ljómarallinu. Jón Rúnar er fæddur í Samtúni 10 í Reykjavík 12. desember 1945 og ólst upp í foreldrahúsum. Hann var í ellefú sumur í sveit á Hofsnesi í Öræfum hjá Bjama Sigurðssyni og Lydíu Pálsdóttur. Jón var í námi í Héraðsskólanum að Núpi í Dýrafirði en fór 15 ára að læra rakaraiðn hjá Kristjáni Jóhannessyni og lauk þar sveinsprófi 1964. Hann vann að rak- arastörfum í 10 ár og var síðast með eigin stofu sem hann rak með Garð- ari ScHeving á Suðurlandsbraut 10. Jón stofhsetti Bílaryðvöm í Skeif- unni 17 1970 ásamt Bimi Jóhannes- syni, sem þeir hafa rekið ásamt Bílaleigunnunni BJ síðan 1982. Jón heíúr keppt í rallakstri síðan 1975, Jon R. Ragnarsson fyrst með Ómari Ragnarssyni, og tekið þátt í 50-60 keppnum. Kona Jóns er Petra Baldursdóttir, verkstjóra á Hjalteyri í Eyjafirði, Péturssonar og konu hans, Svein- bjargar Hansdóttur Wium. Böm þeirra em Sveinbjörg, gift Emi Eng- ilbertssyni, vélfræðingi hjá Eim- skipafélaginu, Rúnar nemi, sem hefur verið aðstoðarmaður föður síns í rallinu, og Baldur nemi. Systkini Jóns em Ómar fréttamað- ur, giftur Helgu Jóhannsdóttur, Eðvarð, aðalgjaldkeri Kaupfélagsins og verðandi útibússtjóri Samvinnu- bankans á Höfn í Homafirði, giftur Jóhönnu Magnúsdóttur kennara. Ólöf kennari, gift Ólafi Jóhanni Sig- urðssyni vélvirkja, Guðlaug hús- móðir, býr í Svíþjóð, gift Sigurjóni Leifssyni matreiðslumanni, og Sig- urlaug húsmóðir, gift Hrafni Magnússyni sjómanni. Foreldrar Jóns em Ragnar Eð- varðsson, bakari og nú öryggisvörð- ur í Rvík, og Jónína Rannveig Þorfinnsdóttir kennari . Faðir Jóns, Ragnar, er sonur Eð- varðs, bakarameistara í Rvík, Bjamasonar, formanns í Rvík, Gísla- sonar. Meðal systkina Eðvarðs em Anna, gift Erlendi Þórðarsyni, presti í Odda, og Sigríður, móðir Bjama Jónssonar listmálara. Móðir Ragn- ars var Sigurlaug Guðnadóttir, b. á Óspaksstöðum í Hrútafirði, Einars- sonar, og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Meðal systkina Sigur- laugar vom Einar, prófastur í Reykholti, faðir Bjama, fram- kvæmdastjóra Byggðastofriunar, og Guðmundar, forstjóra Skipaútgerð- ar ríkisins. Annar bróðir Sigurlaug- ar var Jón, prestur og skjalavörður, faðir rithöfundanna Guðrúnar, Ing- ólfe, Torfa og Eiríks. Móðir Jóns, Jónína, er dóttir Þor- finns, múrara í Rvík, bróður Guð- brands á Prestbakka, fóður Ingólfe, forstjóra Útsýnar. Þorfinnur var sonur Guðbrands, b. á Orustustöð- um, Jónssonar og Guðlaugar Páls- dóttur. Móðir Jónínu er Ólöf, systir Bjama, hugvitsmanns á Hólmi, Run- ólfedóttir, b. í Hólmi í Landbroti, Bjamasonar, b. í Hólmi, Runólfeson- ar, bróður Þorsteins, afa Jóhannesar Kjarvals, og Eiríks Sverrissonar sýslumanns, langafa Eggerts Briem í Viðey, föður Eiríks, fv. forstjóra Landsvirkjunar. Afmæli Rafn I. Jensson Rafh Ingólfúr Jensson vélaverk- fræðingur, Sunnuflöt 37, Garðabæ, er sextugur í dag. Hann fæddist á Hafranesi við Reyðarfjörð en fluttist á fjórða árinu með foreldrum sínum til Hafharfjarðar. Rafn lauk stúd- entsprófi frá MR 1948 og fyrrihluta- prófi í verkfræði frá HÍ 1952. Hann tók síðan próf í vélaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1955. Hann hefur verið verkfræðingur hjá ís- lenskum aðalverktökum og hjá Einarsson og Pálsson, verið meðeig- andi og verkfræðingur hjá Trausta hf. og rekið eigin verkfræðistofu frá 1968. Hann hefúr verið kennari við TÍ og við verkfræði- og raunvísinda- deild HÍ. Árið 1959 giftist Rafh Luisu Bjamadóttur meinatækni frá ísafirði, f. 11.1.1931. Foreldrar henn- ar, sem báðir em látnir, vom Bjami Magnús, netagerðarmeistari á ísafirði, Pétursson, og kona hans, Herdís, dóttir Jóhannesar jámsmiðs í Hnífsdal Elíassonar. Rafri og Luisa eiga tvær dætur. Auður, f. 31.3. 1960, lærir vélaverk- fræði í Álaborg. Sambýlismaður Auðar er Stefán Stefánsson líffræð- ingur en hann starfar við fiskeldis- stöð í Hirtshals á Jótlandi. Þau eiga eina dóttur, Völu Dögg, f. 23.1.1981. Yngri dóttirin, Herdís Björg véla- verkfræðingur, f. 1962, starfar á verkfræðistofu föður síns. Rafh á sex systkini: Guðný, f. 1924, var gift bandarískum manni, Thom- as Brennan, sem nú er látinn. Eignuðust þau þijú böm. Helga, f. 1926, er giift Óskari Halldórssyni, starfemanni hjá Brunabótafélagi ís- lands, og eiga þau sjö böm. Einar Vilhelm, vélsmiður hjá Vélsmiðju Homafjarðar, f. 1930, er giftur Eddu Hjaltested og eiga þau átta böm. Sigurður, vélstjóri hjá Eimskipafé- laginu, f. 1932, er giftur pólskri konu, Martissu. Guðbjöm Níels húsgagna- smiður, f. 1934, er giftur Guðrúnu Pálsdóttur og eiga þau fjögur böm. Yngst systkinanna er svo Valfríður, gift Bandaríkjamanni, Philip Pow- ers. Hún á þrjú böm með fyrri manni sínum sem er látinn. Faðir Rafhs var Jens, sjómaður og síðar húsvörður í Hafnarfirði, f. 1896, d. 1975. Föðurafi Rafns var Runólf- Rafn Ingólfur Jensson vélaverk- fræðingur. ur, verkamaður, Jónsson. Móðir Rafiis er Björg, f. 1901, Einarsdóttir, kennara á Fáskrúðsfirði Borgfjörð, Sigurðssonar, trésmiðs á Isafirði, Andréssonar, prests fFlatey, Hjalta- sonar. Móðir Sigurðar var Margrét Ásgeirsdóttir, b. og hreppstjóra á Rauðamýri á Langadalsströnd, Ás- geirssonar, af Amardalsættinni. Rafn og Luisa munu taka á móti gestum á afmælisdaginn á heimili sínu að Sunnuflöt 37, Garðabæ, frá kl. 17. Magnús Már Lárasson Magnús Már Lárusson, fyrrv. há- skólarektor, er sjötugur í dag. Hann fæddist í Kaupmannahöfn en fluttist ungur með foreldrum sínum til ís- lands. Magnús tók stúdentspróf frá MR 1937 og var við guðfræðinám við Kaupmannahafnarháskóla 1937-38. Hann lauk síðan guðfræði- prófi frá HÍ1941. Hann var kennari við MA frá 1941-44 en hóf kennslu við guðfræðideild HÍ 1947 og varð guðfræðiprófessor 1950. Auk þess kenndi hann við Flensborgarskól- ann og Kennaraskólann. Hann var prestur á Breiðabólsstað á Skógar- strönd 1941 og á Skútustöðum við Mývatn 1944-49. Hann var gistipró- fessor við guðfræðideild háskólans í Uppsölum 1963-64 og við lagadeild háskólans í Lundi 1966. Hann var skipaður prófessor í sagnfræði við Hl 1968 og kjörinn rektor Háskólans 1971 en lét af rektorsstörfum 12. október 1973. Magnús fékk lausn frá prófessorembætti 1. október 1974 vegna afleiðinga augnsjúkdóms. Magnús Már hefúr gegnt fjölda trúnaðarstarfa af ýmsum toga. Hann hefur fjórum sinnum verið forseti guðfræðideildar HÍ, verið skipaður í Skálholtsnefnd, verið í stjóm Hins íslenska fomleifafélags, setið í verð- launanefhd Gjafar Jóns Sigurðsson- ar, verið skipaður í ömefnanefnd ríkisins, verið varamaður í stjóm Handritastofnunar íslands, setið í Ámanefnd og í skiptanefnd hand- rita. Hann hefur verið kirkjuþings- maður, er heiðursfélagi Félags norrænna fræða og félagi í Vísinda- félagi Islendinga. Hann er heiðurs- doktor frá lagadeild háskólans í Lundi og guðfræðideild Háskóla ís- lands. Árið 1941 giftist Magnús Már Maríu, f. 19.2.1917, Guðmundsdóttur b. í Sandvík í Norðfjarðarhreppi, Grímssonar. Böm þeirra Magnúsar em: Monika, f. 1942, gift Adólf Adólfesyni, bæjarstjóra í Bolungar- vík. Þau eiga fjögur böm. Allan Vagn, héraðsdómari í Ámessýslu, f. 1945. Hann er giftur Margréti Guð- mundsdóttur húsmóður og eiga þau Qögur böm og eitt bamabam. Sess- elja, húsmóðir, f. 1950, gift Arsæli Kjartanssyni flugmanni, og þau eiga eitt bam. Jónas Bjöm, læknir, f. Magnús Már Lámsson. 1952, giftur Katrínu Guðmundsdótt- ur tölvufræðingi. Þau eiga þrjú böm. Yngstur er svo Finnur, f. 1956, en hann er að skrifa doktorsritgerð í þjóðháttafræði. Kona hans er Karen, sænsk hjúkrunarkonam, og eiga þau tvö böm. Finnur og Karen búa i Svíþjóð. Foreldrar Magnúsar vom Jónas Magnús Lárusson, gistihússtjóri á Akureyri, síðast í Rvík, og kona hans, Ida Maria, dóttir Carls Gustavs Gullströms, b. í Austur- Gautlandi í Svíþjóð. Faðir Magnús- ar, Jónus, var sonur Lárusar, kaupmanns í Ólafsvík, Jónassonar. 70 ára Guðfinna Vilhjálmsdóttir, Hjalla- seli 55, Reykjavík, er 70 ára í dag. Rósa Magnúsdóttir, Suðurgötu 7, Miðneshreppi, er 70 ára í dag. 60 ára______________________ María Anna Lund, Háleitisbraut 34, Reykjavík, er 60 ára í dag. Geirlaug Jónsdóttir, Ásgarði, Reykholtsdal, er 60 ára í dag. 50 ára________________________ Sólveig Rósa Jónsdóttir, Lauf- brekku 1, Kópavogi, er 50 ára í dag. Ásbjörn Pétursson, Lindargötu 2, Reykjavík, er 50 ára í dag. Guðrún Guðmundsdóttir, Blöndu- bakka 18, Reykjavík, er 50 ára í dag. Viðar Marmundsson, Svanavatni, Austur-Landeyjahreppi, er 50 ára í dag. Rita Doris Sæmundsson, Melgerði 2, Kópavogi, er 50 ára í dag. Sigrún Daviðsdóttir, Brekku- hvammi 18, Hafnarfirði, er 50 ára í dag. Þómnn Sigurborg Pálsdóttir, Rauðalæk 30, Reykjavík, er 50 ára í dag. Kristmann Hjálmarsson, Safamýri 61, Reykjavík, er 50 ára í dag. 40 ára________________________ Jónina B. Gisladóttir, Frostaskjóli 39, Reykjavík, er 40 ára í dag. Valgerður Ingólfsdóttir, Baðsvöll- um 8, Grindavík, er 40 ára í dag. Jón Sigtiyggsson Jón Sigtiyggsson, fy. aðlabókari Iðnaðarbankans, Tómasarhaga 20, Rvík, verður sjötugur í dag. Hann er fæddur á Hömrum í Lax- árdal í Dalasýslu og lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1941. Jón var cand. phil. frá Háskóla íslands 1942 og hóf nám í viðskiptafræði við Háskóla ísl. en lauk ekki prófi. Hann var skattritari í skrifstofu tollstjórans í Rvík 1941-1953 og aðalbókari Iðnaðar- banka Islands hf. frá stofnun hans, 23. júní 1953. Jón hefur jafnframt gegnt störfum skrifetofustjóra frá upphafi og ennfremur störfum bankastjóra í forföllum. Hann var 1954 skipaður í nefnd til að gera til- lögur til viðskiptaráðuneytisins um ráðstafanir til aukinnar sparifj;ir- söfnunar í lemdinu. Jón hefúr starfað mikið að félagsmálum og m.a. verið í stjóm Breiðfirðingafélagsins í Rvík og ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings. Kona Jóns er Halldóra Jónsdóttir, sjómanns í Rvík, Kristmundssonar og konu hans, Magneu Tómasdótt- ur. Systkini Jóns em Sigurbjörn Berg- mann, aðstoðarbankastjóri Lands- banka íslands, giftur Ragnheiði Viggósdóttur, og Margrét Guðbjörg, gift Eggerti Hjartarsyni, vélvirkja í Kópavogi. Foreldrar Jóns vom Sigtryggur Jónsson, b. og hreppstjóri á Hrapps- stöðum í Laxárdal, og kona hans, Guðrún Sigurbjömsdóttir ljósmóðir. Faðir Jóns, Sigtryggur, var sonur Jóns, b. og hreppstjóra á Hömrum i Laxárdal, Jónassonar, b. í Stóra- Skógi, Jónssonar. Móðir Sigtryggs var Ástríður Ámadóttir, b. í Kirkju- hvammi á Vatnsnesi, Jónassonar. Móðir Jóns, Guðrún, var dóttir Sig- urbjöms, b. og söðlasmiðs á Svarf- hóli í Laxárdal, Bergþórssonar, b. á Hömrum í Laxárdal, Sigmundsson- ar. Móðir Guðrúnar var Guðbjörg Kristín Guðbrandsdóttir, b. á Sáms- stöðum í Laxáidal, Halldórssonar. Hann og kona hans, Halldóra Jónsdóttir, ætla að taka á móti gest- um á afmælisdaginn í Oddfellow- húsinu, Vonarstræti 10, kl. 17.00 til 19.00. Grímur Margeir Helgason Grímur Margeir Helgason, for- stöðumaður handritadeildar Lands- bókasafnsins, Kambsvegi 23, Reykjavík, verður sextugur í dag. Harrn er fæddur á Leifsstöðum í Vopnafirði og lauk kandídatsprófi í íslenzkum fræðum frá Háskóla ís- lands 1955. Grímur var kennari í bama- og miðskóla Seyðisfiarðar 1948-1949 og kennari í Verzlunar- skólanum 1957-1962. Hann var starfsmaður í handritadeild Lands- bókasafnsins 1962-1966 og hefur verið forstöðumaður frá 1966. Hann hefur skrifað greinar í Árbók Lands- bókasafnsins og hefur m.a. gefið út Handritaskrá Landsbókasafrisins, m. aukabindi, ásamt Lárusi H. Blöndal, Pontus rímur, í riti rímnafé- lagsins X, Dæmisögur Esóps í ljóðum, íslenzkar fomsögur, íslend- ingasögur I-IX, ásamt Vésteini Ólasyni, og sér nú um nýja útgáfu af Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar. Kona Gríms er Hólmfríður kenn- ari Sigurðardóttir, verslunarmanns á Raufarhöfn, Ámasonar og konu hans Amþrúðar Stefánsdóttur. Böm þeirra em Vigdís, kennari og rithöf- Ólöf Sigfúsdóttir, Greniteigi 7, Keflavík, er 40 ára í dag. Einar Ólafsson, Blöndukvísl 20, Reykjavík, er 40 ára í dag. Sigríður Pétursdóttir, Jómkvísl 14, Reykjavík, er 40 ára í dag. Rut Jenny Hansen, Sundlaugavegi 14, Reykjavík, er 40 ára í dag. Anna Þ. Pálsdóttir, Freyjugötu 21, Sauðárkróki, er 40 ára í dag. Björg Stefánsdóttir, Bakkavör 3, Seltjamanesi, er 40 ára í dag. Jóhannes Jóhannesson, Skaftahlið 15, Reykjavík, er 40 ára í dag. undur, Sigurður tæknifræðingur, Anna Þrúður sjúkraliði, Helgi Krist- inn Islenskufræðingur, Grímur, Hólmfríður og Kristján. Systkini Gríms em Einar, fram- kvæmdastjóri innanlandsflugs Flugleiða og Unnur, verslunarmað- ur á Seyðisfirði. Foreldrar Gríms vom Helgi Krist- inn, b. á Leifsstöðum í Vopnafirði, Einarssonar, b. á Leifestöðum, Helgasonar. Móðir Helga var Kristj- ana Steinunn Jósefedóttir, b. á Krossi í Ljósavatnshreppi í Suður- Þingeyjarsýslu, Arasonar og Guðnýjar Bjömsdóttur, b. á Ytri- skál, Nikulássonar Buch. Móðir Gríms var Vigdís Magnea Grímsdóttir, b. í Hvammgerði í Vopnafirði, Grímssonar, b. á Fljóts- bakka í Eiðarþinghá, Grímssonar, smiðs, söngmanns og b. í Leiðarhöfh, Grímssonar. Móðir Vigdísar var Margrét Sæmundsdóttir, b. í Víkur- koti í Blönduhlíð í Skagafirði, Ámasonar. Móðir Margrétar var Sigríður Jónsdóttir og Ólafar Bjömsdóttur, prests í Tröllatungu, Hjálmarssonar. Andlát Andreas Lapas flugvirki, Fálka- götu 8, lést á Heilsuvemdarstöð- inni í Reykjavík 30. ágúst. Ásgeir Guðmundsson frá Þorfinns- stöðum, Kópavogsbraut 18, andað- ist í Landspítalanum 29. ágúst. Guðríður Sigurjónsdóttir, Hrafn- hólum 6, Reykjavík, '.ést í Land- spítalanum mánudaginn 31. ágúst. Elsa Steinunn Sigurgeirsdóttir, Hofsvallagötu 18, lést á Grensás- deild Borgarspítalans 31. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.