Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987.
29 <•
Hvernig á að velja sér
eiginmann?
Hvemig eigið þið, stúlkur, að
velja ykkur heppilegan eiginmann?
Ef þið kynnist manni sem ykkur
þykir spennandi eru til fljótlegar
aðferðir til að finna út hvort það
sé þess virði að eyða tíma í hann.
Aðferðirnar em amerískar og er
að finna í bók sem nefnist „How
to Marry the Man of Your Cho-
ice“ eða í lauslegri þýðingu
„Hvemig ná á í mann við sitt
hæfi“. Gluggum í þessa skrýtnu
bók, svona til gamans.
Fyrsta ráðleggingin, sem gefin er
í bókinni, er að varast beri að
„kyssa froskinn". Betra sé að
spyrja manninn hinna ýmsu spum-
inga um líf hans og atferli. Þannig
sé hægt að komast að öllu um hann
á ömggan og skjótan hátt.
Á meðan þú ert að kynnast mann-
inum skaltu reyna að tala sem
mest um hann en minna um sjálfa
þig, það er nægur tími til þess.
Spyrðu hann strax um öll hans tak-
mörk og viðhorf. Þú getur til dæmis
spurt: Trúirðu á himnaríki og hel-
víti? Hversu oft ferðu í leyfi? Og
hvert þá og hve lengi? Hvaða skoð-
anir hefurðu á fóstureyðingum og
svo framvegis.
Einnig er mikilvægt að fræðast
um fortíð hans sem og nútíð, for-
vitnast um æsku hans, skólaárin,
hvenær hann fór fyrst út með
stúlku og hveijir vinir hans vom.
Þegar málin em rædd skaltu ekki
gleyma að fá fram viðhorf hans til
fjármála, kynlífsmála, stjóm- og
Nauðsynlegt er að fá viðhorf hans til fjármála og þá skaltu skrá allt
niður sem hann segir um málið.
trúmála. Það em allt fjögur mikil-
væg atriði í lífi hvers manns og
áríðandi að viðhorf væntanlegs
pars eða hjóna séu þau sömu eða
svipuð til þessara málaflokka.
Annað skapar alvarlega árekstra.
Þá skaltu fræðast um matarvenjur
hans, áhugamál, hvort hann sé
hlynntur gæludýrum eða ekki og
ýmislegt annað sem kannski virkar
smávægilegt en er í rauninni mjög
mikið atriði.
Eftir nokkurn tíma, þegar þú
hefur kynnst manninum betur og
getað lætt ýmsum spurningum að
honum, skaltu setjast niður og fara
yfir spumingar og svör. Varastu
að hafa það of áberandi að þú sért
beinlínis að „kynna þér hann og
hans skoðanir". Reyndu að fara
svolítið fínt í þetta en skráðu svör-
in niður eftir hvert skipti sem þið
hittist. Þannig verður auðveldara
að fara yfir heildarsvörin í lokin
og vega og meta eftir aðstæðum.
Þá höfum við skyggnst dálítið inn
í þessa ráðgjafabók og verður hver
og einn að dæma eins og honum
hentar. „Allt er nú gefið út“, gæti
verið gagnrýni DV. Þúsundir Am-
eríkana hafa keypt bókina og þá
örugglega farið eftir henni. Verði
þeim bara að góðu og það er von-
andi að allt hafi farið að óskum.
Hingað til „hafa hlutirnir bara þró-
ast“ segja fróðir menn um málið.
en Kaninn getur verið svolítið sér-
stakur og gleypir gjarnan við
bókum líkum þessum.
Sviðsljós
Burt Reynolds
Frank Sinatra
er alveg yfir sig hissa á sjón-
varpsstöðinni bandarísku
CBS. Forráðamenn stöðvar-
innar höfðu ráðgert að fram-
leiða sjónvarpsþætti um ævi
Franks Sinatra. Nokkrir leikar-
ar höfðu verið nefndir til að
leika söngvarann, þar á meðal
Robert De Niro og Bruce Will-
is. Þeir höfðu þó, einhverra
hluta vegna, báðir lýst því yfir
að áhugi hjá þeim væri alls
ekki fyrir hendi. Nú er svo
komið að sjónvarpsstöðin
hefur hætt við framleiðslu
þáttanna. Skýringar þeirrar
ákvörðunar liggja ekkert á
lausu en eins og segir þá varð
Frank sjálfur svekktur.
, .Látúns-
barkiim“
sló í gegn á
Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri
„Stundum „fíla“ ég þetta í botn,
stundum ekki,“ sagði „látúnsbark-
inn“ eini og sanni, Bjami Arason,
er hann hafði komið fram í göngu-
götunni á Akureyri síðastliðið
laugardagskvöld. Unglingadans-
leikurinn var að sjálfsögðu haldinn
í tilefni hundrað tuttugu og fimm
ára afmælis Akureyrar og Bjami
var eini „aðkeypti" skemmtikraft-
urinn sem þar kom fram og hann
sló í gegn.
Unglingarnir troðfylltu göngu-
götuna fyrir framan sviðið þegar
„látúnsbarkinn“ þeyttist þar um
og kirjaði hvert lagið á fætur öðru
með sinni djúpu rödd. Ungar stúlk-
ur vom þar í miklum meirihluta
og létu ófriðlega á milli þess sem
þær tóku undir sönginn af krafti.
Þegar Bjami hafði lokið söng sín-
um kallaði liðið: „Réttó, réttó.“
Bjarni kom fram aftur og aukalag-
ið var gamalt Presleylag sem tekið
var með tilþrifum.
Á eftir þurfti Bjarni að gefa aðdá-
endum sínum eiginhandaráritanir
og var þröng á þingi því stelpurnar
vildu komast i nálægð við goðið
mikla. Það var þá sem Bjarni sagði
að hann „fílaði“ þetta stundum og
stundum ekki og hann bætti svo
við: „Jú, það er alveg helvíti gaman
að þessu.“
Bjarni „látúnsbarki" gefur eiginhandaráritanir.
fékk fína gesti í kvöldverð fyr-
ir skömmu. Það er svo sem
varla i frásögur færandi nema
vegna smágríns sem átti sér
stað það kvöld. Þegar gestun-
um var þoðið inn í hús leikar-
ans fylgdi þeim lítill brúnn
hundur. Burtvarðnú hálfhissa
en sagði ekki orð. En hann
varð þeim mun meira undr-
andi þegar einn gesturinn lét
hundinn setjast við kvöld-
verðarborðið. Enn sýndi hann
stilli sína. Þegar hundurinn
gerði svo þarfir sínar á gólfið
missti Burt þolinmæðina og
öskraði á gestina: „Sjáið þið
ekki hvað hundurinn ykkar
hefur gert á gólfið." - „Okkar,
við héldum að þetta væri
hundurinn þinn, Burt minn."
Þar með kom það í Ijós að hér
var um óboðinn gest ná-
grannans að ræða.
Madonna
v
*
gefur fólki nú það holla ráð
að hætta að mala í bílasíma
meðan það keyrir út um borg
og bí. Hún lenti nefnilega í
því um daginn að vera að *
masa í símann undir keyrslu
og keyrði þeint á húsvegg.
Þar með ákvað hún að fjar-
lægja bílasímana úr bílunum
sínum þremur og láta öll símt-
öl bíða bangað til í hús er
komið. Agætt hjá söngkon-
unni. t