Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1987, Side 5
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987.
5
Fréttir
Markar íslenskt heilsu-
salt tímamót í saltneyslu?
gæti orðið Ivfankeri fýrir Sjóefnavinnsluna hf. á Reykjanesi
TUraunir til þess að búa til sérstakt
heilsusalt í Sjóefhavinnslunni hf. eru
hafnar. Hægt er aö vinna sjóblöndu
með þeirri óáýru gufuorku sem fyrir-
tækið býr að og þannig gæti heilsusalt
fengist á sama verði og venjulegt salt
sem gæti markað tímamót í saltneysl-
unni. Heilsusaltið er mjög ólíkt
venjulegu salti og hefur ekki ókosti
þess sem valda meðal annars hækkuð-
um blóðþrýstingi og hjartsláttartrufl-
unum.
Þetta er eitt af þeim verkefnum sem
Sjóefnavinnslan hf. gæti þrifist á en
nú er unnið að því að losa ríkið út úr
fyrirtækinu, afskrifa megnið af fé þess
í því og hefja rekstur á alveg nýjum
fjárhagsgrundvelli. Venjulegt salt er
næstum eingöngu natríumklóríð.
Heilsusaltið er blanda af natríum, kal-
íum, kalsíum og magnesíum í sömu
hlutfóllum og í mannslíkamanum.
Hugmyndin að heilsusaltinu er ekki
ný. Þaö hefur verið vitað að natríum-
klóríðsaltið gengi um of á önnur sölt
líkamans sem yrðu þvi af skomum
skammti og af því hlytist truflun á lík-
amsstarfseminni. Heilsusalt fæst í
apótekum en það er þá unnið og bland-
að með kostnaðarsömum hætti. Sjó-
efnavinnslan getur unnið saltið úr
réttri blöndu af sjó og jarðsjó og fram-
leitt það miklu ódýrara. Þessi mögu-
leiki er sjaldgæfur ef ekki einstæður
í heiminum vegna mengunar annars
staðar og hinnar ódýru gufuorku hér.
Notkun á heilsusalti er hægt að líkja
við notkun sætuefna í stað sykurs sem
eiga að gefa sætubragðið án þess að
því fylgi ýmsir heilsuspillandi ókostir
sykursins. Samkvæmt heimildum DV
beinast viðræður ríkisins og Hitaveitu
Suðumesja um yfirtöku Sjóefna-
vinnslunnar meðal annars að þátttöku
fyrirtækja í efnaiðnaði. Rætt hefur
verið viö lyfjasamsteypuna Pharmaco
hf. og Delta hf. sem hefur áhuga á
heilsusaltinu, svo og áburðinum kísl á
psoriasisútbrot og unglingabólur.
-HERB
Báturinn í öruggri höfn og Ólafur í baksýn. DV-mynd Ragnar Imsland
Bóndinn á Skála
í hafnargerð
Júlia tnsland, DV, Hofn;
Bændur við Berufjörð hafa löngum
stundað sjó með búskapnum og þá oft
við erfiðar aðstæður.
Víðast háttar þannig til að orðið hef-
ur að draga báta á land eftir hvem
róður. En með tilkomu stórvirkra
viimuvéla er oft hægt að bæta aðstöð-
una og það hefur bóndinn á Skála,
Ólafur Hjaltason, gert. Fyrir neðan
bæinn hefur hann útbúið góða höfn
fyrir bátinn „Skála“ þar sem honum
er óhætt í öllum veðrum.
Ólafur hefur lítið komist á sjó í sum-
ar en veitt vel þegar farið var.
Sjálfsbjörg byggir
íþróttahús á Akureyri
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyii
„Við höfum hugsaö okkur að nýta
þetta hús aðallega til útleigu fyrir al-
menning en einnig verður þama
aðstaða fyrir íþróttafélag fatlaðra,"
sagði Tryggvi Sveinbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar á Akur-
eyri, en félagiö hefur nú hafið
byggingu íþróttahúss í bænum.
Húsið er byggt vö Bugöusíöu þar
sem aðalstöðvar félagsins á Akureyri
em. Hið nýja hús verður 27x14 m að
grunnfleti, það tengist núverandi húsi
félagsins og er áætlað að byggingu
þess verði lokið snemma á næsta ári.
„Við leggjum höfuðáherslu á að
koma þama upp sölum þar sem hægt
verður að iðka veggtennis," sagði
Tryggvi. „Viö teljum mjög góðan grun-
dvöll tíl reksturs slíkra veggtennissala
og nýtum þá aðstöðu sem fyrir hendi
er í tengslum við nýja húsið, svo sem
búningsaðstöðu, afgreiðslu og fleira.
Við rekum nú líkamsrækt sem opin
er almenningi og í tengslum við hana
ljósaböð og fleira.“
Tryggvi sagði aö félagið fengi enga
styrki vegna byggingarinnar. „Þetta
er algerlega okkar framtak. Við erum
með rekstur sem gerir okkur kleift að
fjármagna þetta og einnig fáum við
lánsfé á opinberum markaði," sagði
Tryggvi.
Forsetar í eff i og neðri
Jón Kristjánsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Austurlandi, verður
líklega forseti neðri deildar Alþingis.
Búist er við að Karl Steinar Guðna-
son, þingmaður Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi, verði kjörinn
forseti efri deildar.
Alexander Stefánssyni, fyrrverandi
ráðherra, var samkvæmt heimildum
DV boðinn forsetastóll neðri deildar.
Alexander afþakkaði stólinn en valdi
frekar varaformannssæti í fjárveit-
inganefnd og jafnframt formennsku í
ráðninganefnd ríkisins og samstarfs-
nefnd um opinberar framkvæmdir.
-KMU
Hreindýraveiðiþjófar gera það gott:
Kjöt fyrir 4 milljónir?
„Maður heyrir þetta en við höfum
ekkert getað sannað," sagði Runólfur
Þórarinsson, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu, þegar hann var
spurður að því hvort veiðiþjófnaður á
hreindýrum væri stundaður í stórum
stíl hér á landi.
„Við höfum beðið sýslumenn um að
auka eftirhtið en þetta eftirlit er dýrt
og þeir fá ekki aukafjárveitingar til
þess úr dómsmálaráðuneytinu. Þeir
hafa sent flugvél í eftirlitsferðir en það
hefur ekki borið árangur," sagði Run-
ólfur.
Runólfur var spurður að þvi hvort
verið gæti að tugjr eða jafnvel hundr-
uð dýra væru felld utan kvóta á hveiju
ári. „Það getúr vel verið rétt,“ sagði
Runólfur en kvaðst ekki hafa neina
haldbæra vitneskju um máhð. „Viö
getum engum lögum komið yfir þessa
menn nema þeir verði staðnir að
verki," sagði hann.
Ef reiknað er með þvi að meðalvigt
dýra sé um 45-50 kíló og söluverð 800
krónur fyrir kílóið af óstimpluðu kjöti
og veidd dýr séu 100 á ári hverju er
andvirði þeirra hreindýra, sem veiöi-
þjófar granda, á bilinu 3,6 til 4 milljónir
króna á ári. Varla er heldur hægt að
gera ráð fýrir því að þetta fé sé gefið
upp til skatts.
-ój
A\ \^
ítilefniaf
komu fyrstu sendingar
FUNAI
myndbandstækja til íslands
bjóðum við sérstakt
kynningarverð á takmörkuðu
magni af VHS Funai VCR 4800
* HQ (high quallty) kerfl
* Þráölaus fjarstýrlng
* 4 þátta/14 daga upptökumlnni
* 12 ráslr
Hraöupptaka
Rakavarnarkerfl (Dew)
SJálfvlrk bakspólun
Vörumarkaöurinn
KRINGLUNNI S:685440