Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1987, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1987, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987. Utlönd Andlit ógnarinnar breytir um baráttuaðferðir Abu Nidal, skæruliöinn sem mest er lýst eftir um allan heim, styrkir nú virki sitt í Líbanon og byggir upp stuöning meðal þeirra Palestínu- manna sem virkir eru í baráttu fyrir palestínskum þjóðarrétti. Breytingar á viðhorfum og valda- hlutfbllum í heimi araba og annars staðar eru sagðar hafa orðið tíl þess aö Abu Nidal hefur nú tekiö opin- bera afstöðu og einbeitt sér að baráttunni gegn ísrael. Nidal er talinn hafa staðið fyrir hermdarverkum í átján löndum og hafa ráðist á bandarísk, evrópsk og arabísk skotmörk. Svo virðist sem Abu Nidal, sem í raun og veru heitir Sabri al-Banna, hafi látíð af ævintýramennsku sinni, að minnsta kostí um stundarsakir, tíl þess að ná stuðningi við baráttu sína í fjölmennum flóttamannabúð- um í suðurhluta Lábanons. Byltingarráð hans er sagt hafa komið upp bækistöðvum í flótta- mannabúðum nálægt Týros, Sídon og í Bekaadalnum. Menn Abu Ni- dals eru einnig sagðir hafa tek- ið þátt í árásum inn á hið svo- kallaða öryggissvæði ísraels norðan við landamæri ísraels og Líban- ons. Loftárásir ísraelskir heimildarmenn segja Abu Nidal aldrei hafa komið upp neti skæruliða í ísrael eða á her- teknu svæðunum. Skoðanakannan- ir á Vesturbakkanum og Gazasvæð- inu gefa hins vegar til kynna að margir Palestínumenn dáist að hon- um og aðferðum hans í laumi. Þann 5. september síðastliðinn gerðu ísraelsmenn loftárásir á suð- urhluta Líbanons og aðalskotmarkið var byltingarráð Abu Nidals. Tutt- ugu skæruliðar hans féllu í loftárás- imum. Sá orðrómur er á kreiki í ísrael að þegar árásin var gerð hafi staðið yfir sameiginlegur fundur skæruliða Abu Nidals og stuðnings- manna aðalkeppinautar hans, Yassers Arafat. Rekinn frá Sýrlandi Árið 1974 kastaðist í kekki miili Arafats og Abu Nidals þegar sá síð- amefhdi starfaði sem fulltrúi Frels- issamtaka Palestinumanna í Irak. Frelsissamtökin dæmdu hann þá til dauða fyrir að hafa ráðgert morð á Arafat. Abu Nidal fluttí seinna til Damaskus og efldi tengsl sín við Gaddafi Líbýuleiðtoga. í byijun þessa árs var skrifstofu Þessi mynd er sögð vera af hryðju- verkamanninum Abu Nidal. Abu Nidals í Sýrlandi lokað og er taiið að það hafi verið til að blíðka vestræn ríki sem harðlega hafa gagnrýnt þátt Sýrlands í hryðju- verkastarfsemi. Abu Nidal er nú talinn dveljast í Líbýu undir vemd Gaddafis, leiðtoga landsins. Skæm- liðaflokkur Nidals nýtur fjárhags- legs stuönings Líbýumanna og talið er að nokkrir þeirra hafi barist fyrir Líbýu í landamæradeilunum við Chad. Hryðjuverk Samtök hans hafa verið taiin bera ábyrgð á árás á sendiherra ísraels- manna í London árið 1982. Notuðu ísraelsmenn árásina sem fyrirslátt fyrir innrásinni í Líbanon. Samtökin hafa einnig verið sögð hafa staðið að baki árásunum á afgreiðslu ísra- els á flugvöllum í Vín og Róm árið 1985 þegar nítján manns biðu bana. ísraelsmenn segja að Abu Nidal hafi skipulagt flugránstiiraun í Karachi í september í fyrra og fjölda- morð í bænahúsi í Istanbul í sama mánuði. Tuttugu og tveir biðu bana í árásinni á bænahúsið. Yfirvöld í Tyrklandi hafa ekki greint opin- berlega frá hveijir árásarmennimir tveir vora sem styttu sér aldur með handsprengjum. Lætur illa að stjórn Óvinir Abu Nidals segja hann vera mikilmennskubrjálæðing sem dansi eftir höfði leyniþjónustu íraka, Sýr- lendinga og Líbýumanna. Vinir Abu Nidals segja harm vera sannan bylt- ingarmann. Arabaríkjum hefur hvað sem öðra líður alltaf gengið illa að stjóma Abu Nidal. Að hann var rekinn frá Sýrlandi er ein af ástæðunum fyrir því hversu mikla áherslu hann leggur á að byggja upp starfsemi í Líbanon. Önnur ástaeða er stríðið um flótta- mannabúðimar milli Palestínu- manna og shíta sem njóta stuðnings Sýrlendinga. Ný ímynd Byltíngarráð Abu Nidals er sagt vera að afla sér nýrrar ímyndar sem stjómmálaleg og hemaðarleg sam- tök. Afmá eigi hryðjuverkastimpil- inn af byltingarráðinu. Palestínumenn segja einnig að leynilegir ftmdir hafi verið haldnir milli stuðningsmanna Arafats og byltingarráðs Abu Nidals en að lítið sé vitað um árangur fundanna. Pal- estínumenn og ísraelsmenn greina frá því að Abu Nidal hafi verið í Alsír fyrr á þessu ári skömmu fyrir fund þjóðarráðs Palestínumanna sem aftur hafi þjappað sér saman um Arafat. Viröist sem einhvers konar millibilsástand ríki en ekki sé hægt að segja að stríðsöxin hafi ver- ið grafin. Byltingarráð hryðjuverkamannsins Abu Nidals, sem stundum hefur verið nefndur „andlit ógnarinnar", hefur komið upp bækistöðvum í flóttamannabúðum Palestínumanna í Líbanon. Er Abu Nidal sagður vilja vemda búðimar og byltingarráðið sækjast eftir nýrri ímynd. Simamynd Reuter ALLT I HELGARMATINN! Rauðvínslegin lambalæri. Kryddlegin lambalæri og sérlega meyrt og Ijúffengt lambakjöt sem þið getið kryddað eftir eigin smekk. -Náttúruafurð sem bráðnar uppi í manni. HAGKAUP SKEIFUNNI KRINGLUNNI KJÖRGARÐI AKUREYRI NJARÐVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.