Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Side 5
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
5
dv______________s_____Fréttir
Rækjuveiðiskipin:
Hætta veiðum
SKYNDISALA
- verðlækkun og veðurfar aðalástæðan
HEFST í FYRRAMÁLIÐ KL. 9.
v
Nær öll fiskiskipin, sem stundað
hafa rækjuveiðamar í sumar, eru nú
hætt veiðum. Ástæðumar em tvær,
leiðinlegt veðurfar á rækjuslóðinni á
þessum árstíma og 11% verðlækkun
sem varð á dögunum á rækju. Margir
loðnubátar hafa verið á rækju í sumar
og haust og munu þeir margir hveijir
nú snúa sér að loðnuveiðunum en fáir
loðnubátar era byrjaðir veiðar.
Að sögn Guömundar S. Maríasson-
ar, framkvæmdastjóra Félags hörpu-
disks- og rækjuframleiðenda, ættu
flestar rækjuverksmiðjurnar að eiga
nokkum lagar eför góða veiði sumars-
ins og haustsins. Rækjuafli hefur
aldrei fyrr verið jafnmikill og í sumar.
Guðmundur sagði það misjafnt hve
birgar verksmiðjumar væra af rækju
og gætu þær sem minnst eiga þurft
að loka einhvem tímann í vetur vegna
hráefnisskorts.
Nokkrum sinnum undanfarin ár
hafa verksmiðjumar keypt rækju af
Rússum en að sögn Guðmundar er
enga rækju að fá hjá þeim núna.
Guðmundur S. Maríasson sagði að
sér sýndist sem aðeins væri að lifna
yfir rækjuverðinu á heimsmarkaði.
Enga rækju væri að fá frá íslandi sem
stendur en stór farmur fór utan fyrir
mánuði. Það að enga rækju er að fá
hér hefur heldur hækkað verðið.
Margir spá því að rækjuverðið hækki
í jólamánuðinum. Guðmundur sagði
að þannig hefði það alltaf verið þar til
í fyrra. Þá hefði það ekkert hækkað í
kringum jólin enda var verðið þá hátt
og hafði haldist óeðlilega hátt um
nokkum tíma.
-S.dór
AÐEINS I 3 DAGA:
föstudag, laugardag kl. 9-16 og mánudag.
Seljum stakar stærðir.
Rýmum til fyrir nýjum vörum.
GERIÐ GÓÐ KAUP.
TEGUND PORTO
STIGATEPPI
Hentug fyrir
stigaganga, skrifstofur,
verslanir, forstofur o.fl.
E3|
BYGGINGAVÖRUR
Hringbraut 120 - sími 28600,
Stórhöfða - sími 671100.
Verð á fermetra
890
kr
mtíáiiiíwn
VISA_
dT^IBVCCIHMVÖHÖHl
Rækjuveiðum hefur nú verið hætt,
m.a. vegna verðlækkunar.
Slátrun
að mestu
lokið
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Grétar Halldórsson, skrifstofustjóri
hjá Sláturfélagi Suðurlands, segir að
slátrun fjár sé nú að mestu lokið. Þar
er búið að slátra um 20 þúsund fjár.
Slátrun gekk fljótt og vel og var eng-
um erfíðleikum þundið að manna
sláturhúsin núna en undanfarin ár
hefur það gengið illa og það er alltaf
vont aö hafa óvant fólk í vinnu.
Slátursala var alveg í hámarki
seinnipartinn í sláturtíðinni en engin
sala var á slátri fyrst til að byija með.
Kjötsala er samt í lágmarki enda þyk-
ir það dýrt. Sumir hafa fengið sér
selskjöt í staö kindakjöts því að það
er miklu ódýrara.
Hæstu meðalvigt á dilkum hafði
Kjartan Lárasson, Austurey, Laugar-
dal, 28 kiló.
Fræðið börnin
um gildi bílbelta
yUMFERÐAR
RÁÐ
1
,
,
% *
NAGLARNIR EYÐA GÖTUM BORGARINNAR
igl Gatnamálastjóri