Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987. Utlönd Gleymdi að slá á klukkuna Anatoly Karpov vann í gær sigur í annarri vlöureign heimsmeistara- einvígisins í skák, sem nú fer fram í Sevilla á Spáni, þegar Garry Kasp- arov, núverandi heimsmeistari, gleymdi aö slá á klukkuna aö aflokn- um tuttugasta og sjötta leik sínum. Þegar heimsmeistaranum uröu mis- tökin Ijós átti hann innan viö eina mínútu eftir til þess að leika flórtán leiki. Keppendur íá viö upphaf skák- ar tvo og hálfan klukkutíma og eiga aö ljúka fjörutíu leikjum innan þess tíma, ella tapast skákin. Úrslit skákarinnar í gær eru mikill sigur fýrir Anatoly Karpov þvi hann haföi svart og er tiltölulega sjaldgæft aö sigur vinnist á þá menn í viöureign af þessu tagi. Staöan í einvíginu er nú sú aö Karpov hefúr einn og hálfan vinning en Kasparov hálfan. um fallna Skæruliöar kontrahreyfingarinn- ar, sem berst gegn stjómvöldum í Nicaragua, með fulltingi Banda- ríkjamanna, héldu þvi fram í gær að þeir heföu fellt liðlega seytján hundruð manns úr stjómarher sandinista í landinu, auk þess aö þeir hefðu skotið niöur þijár sovésk- ar herþyriur í bardögum í septemb- ermánuöi. praötil átaka hafi komiö við stjómar- herinn alls 297 sinnum í þessum mánuði og að meirihluti átakanna hafi átt sér stað í Jinotega-héraði í norðurhluta landsins, skammt frá landamærun- um við Honduras. Áiás á konsúlat Syrgjendur í Bagdad með myndir af skólabörnunum sem fórust i eldflaugaárás írana á skóla í borginni. Símamynd Reuter Eldflaugaárás á skip í landhelgi Kuwait Átta manns særðust í sprengingu sem varö í konsúlati Bandaríkjanna í Barcelena á Spáni í gær. Meðal hinna slösuðu voru tvær konur sem starfa í tölvumiöstöð konsúlatsins. Að sögn talsmanna bandariska konsúlsins í Barcelona vora engir Bandaríkjamenn meöal hinna særðu. Ekki var í gær vitaö hveijir staöiö hefðu aö sprengingunni en aðskilnaðarsinnar Baska hafa frarn- ið nokkuð mörg sprengjutilræði í Barcelona undanfama mánuöi. Óeirðalögregla í Lima, höfúðboig Perú, beitti í gær táragasi til þess að dreifa hópi bankastarfsmanna sem efnt höföu til mótmælaaögeröa fyrir utan stærsta banka í einkaeigu í boiginni. Starfsmennimir vora að mótmæla fyrirhugaðri eignaupptöku ríkisins á bankanum. Miklar deilur standa nú yfir iiulli sljómvalda og bankaeigenda og hafa starfsmenn banka gengiö í lið meö vinnuveitendum sínum. Undanfariö hef- ur nær daglega komiö til óeiröa og átaka af einhverju tagj í Lima. íranskri eldflaug var í morgun sko- tið að olíuflutningaskipi frá Líberíu í landhelgi Kuwait. Skipið er í eigu Bandaríkjamanna. Áhafnir nokkurra báta í grenndinni aöstoða nú skipveija á olíuflutningaskipinu við aö ráða nið- urlögum elds sem kom upp er eld- flaugin hitti skipiö. Iranir beina árásum sínum sérstak- lega aö skipum sem sigla til og frá Kuwait vegna stuðnings yfirvalda þar við stjómina í Irak. Það var þess vegna sem beðið var um að helmingur olíu- flutningaskipa Kuwaitmanna fengi að sigla undir bandarískum fána til þess aö pjóta flotavemdar Bandaríkja- manna. írakar tilkynntu í gær um árás á skip undan ströndun írans. Var þaö fyrsta loftárás Iraka eftir eldflaugaár- ásina á bamaskóla í Bagdad á þriðju- daginn. Þijátíu og sex manns létust í árásinni, þar af þijátíu böm. Ian Stewart, breski hermálaráð- herrann, tilkynnti í gær aö Bretar hygðust ekki efla ílotavemd sína á Persaflóa. Ráöherrann sigldi í gegnum Hormuzsund í gær til að kynna sér aðstæður. Sagði hann það undir flota- foringjum komið ef og hvenær þyrfti að beita valdi til aö vemda bresk kaup- skip. M ’Bow tapar atkvæðum M’Bow, framkvæmdastjóri UNESCO, Menningar- og fræðslu- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, fékk í gær tuttugu og eitt atkvæði við íjórðu atkvæðagreiðslu hjá framkvæmda- nefnd stofnunarinnar. Var það tveimur atkvæðum minna en haim fékk við þriðju atkvæða- greiðslu. Spánverjinn Federico Mayor, sem studdur er af vestrænum ríkjum, fékk nítján atkvæði en hann hlaut í síðustu atkvæðagreiðslu tíu atkvæði. Það verður þvi kosið um þessa tvo á föstudaginn. Til þess að hljóta fram- kvæmdastj óraembættið þarf fram- bjóðandi tuttugu og sex atkvæði. Þær tíu þjóðir sem stutt hafa aðra fram- bjóðendur eða ekki tekið þátt í atkvæðagreiðslum þurfa að greiða annaðhvort M’Bow eða Mayor at- kvæði sitt. Afrika og Miðausturlönd styðja M’Bow sem er frá Senegal. Hann hefúr gegnt embættinu í þrettán ár og vegna óánægju með frammistöðu hans hafa vestræn ríki hótað að segja sig úr UNESCO. M’Bow hefur fengið meirihluta í öli- um fjórum atkvæðagreiðslunum. Vestrænir andstæðingar hans segja hann þó ekki nægan til þess að M’Bow sitji þriðja kjörtímabUið. Blaðafulltrúinn sagður gagnnjósnari Vill tamílana úr landi Douglas Hurd, innanrikisráöherra Bretlands, hyggst reyna aö íá æösta dómstól landsins til þess að breyta þeirri ákvörðun aö heimila sex tam- Qum frá Sri Lanka að dvejja áfram í Bretlandi. Talsmaður innanrikis- ráöuneytisins sagöi að ráðherrann vUdi reka tamílana sex úr landi því annars yröu með dvalarheimUdum þeirra opnaöar dyr fyrir þúsundir flóttamann frá Sri Lanka sem steyp- ast myndu yfir Bretland. Flóð í Venezuela Óttast er aö aUt að flöratíu og þrír hafi farist í Uóðum í vesturhluta Venezuela í gær en tniklar rignimg- ar þar undanfarið hafá orðið til þess aö vöxtur hefúr hlaupíö í ár sem hrifið hafa íbúöabyggingar meö sér. Þegar iiafa fúndist seytján lík á flóðasvæðunum en tuttugu og sex manns er enn saknaö. Gizur Helgasan, DV, Iábedc Yfirvöld í Sviss gáfú út í gær við- bótarupplýsingar um dauða Uwe Barschels, fyrrverandi forsætisráð- herra Schleswig-Holstein. Krufning haíði leitt í ljós að í maga Barschels vora leifar fimm mismunandi lyfja, aðaUega svefnlyfja og róandi. Hvort magn lyfianna var nægjanlegt til aö draga hann til dauða var ekki upplýst en hins vegar var þeirri kenn- ingu hafnað að um morð hafi verið að ræða. Huldumaðurinn, sem Barschel átti viðtal við í Genf, hefur enn ekki fúnd- ist. Vikublaðið BUd-Zeitung hefúr greint frá því að fyrram blaöafúUtrúi Barsc- hels, Reiner Pfeiffer, hafi verið gagnnjósnari og unniö á laun fyrir sósíaldemókrata. í gærkvöldi var sagt í rás 2 í þýska sjónvarpinu að Reiner Pfeiffer hafi um hríð legið undir grun um aö vera i\jósnari fyrir Austur- Þjóðveija. í byijun næstu viku á hann að mæta fyrir þingnefndinni í Kiel sem rannsakar hneykshsmáUð. i Mynd þessi af fyrrum forsætisráðherra Schleswig-Holstein, Uwe Barschel, birt- ist í nýjasta tölublaðinu af tímaritinu Stem. Það var blaðamaöur þess sem fann Barschel látinn á hóteli í Genf. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.